Innlent

Slapp við frekari refsingu

Maður á þrítugsaldri slapp við refsingu eftir að hann var fundinn sekur um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni og lamið hann ítrekað í höfuðið. Hinn ákærði hafði áður fengið nokkra dóma fyrir fíkniefnabrot og þjófnaði. Hann var í febrúar á þessu ári dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi í Malmö í Svíþjóð fyrir fíkniefnasmygl. Í ljósi þess að dómur ákærða er hegningarauki við sænska dóminn, þótti ekki nauðsynlegt að refsa manninum frekar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×