Erlent
58 59 60 61 62 63 64 65 66 … 334 ›
Abbas og Olmert funda Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hittust til að ræða mögulega stofnun palestínsk ríkis á fundi í Jerúsalem í morgun. Fundur leiðtoganna er haldinn svo þeir geti stillt saman strengi sína fyrir ráðstefnu um málið í nóvember sem Bandaríkjamenn hafa boðað til. Erlent 10.9.2007 12:03
Barinn í beinni Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbí leik fyrir utan leikvang í Melborun þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar. Hópur manna réðst þá að fréttamanninum, Ben Davis, og gekk í skrokk á honum. Erlent 10.9.2007 12:05
Saksóknari fær gögn Saksóknari í Portúgal fær í dag í hendurnar gögn vegna rannsóknar á hvarfinu á bresku telpunni Madeleine McCann. Um er að ræða það sem lögregla hefur aflað eftir að foreldrar stúlkunnar fengu réttarstöðu grunaðra í málinu í síðustu viku. Erlent 10.9.2007 11:59
Kom og fór Sjö ára útlegð Nawas Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, lauk í morgun en hún hófst aftur sex klukkustundum eftir heimkomuna. Músharraf lét vísa þessu svarna óvini sínum úr landi til að forða sér frá hatrammri deilu um forsetaembættið. Erlent 10.9.2007 12:02
Nýnasistar handteknir í Ísrael Fyrirfram hefði mátt ætla að engir nýnasistar væru í Ísrael. Lögreglan þar í landi hefur þó handtekið átta slíka. Erlent 9.9.2007 19:02
Nýnasistar handteknir í Ísrael Ísraelska lögreglan hefur handtekið átta nýnasista þar í landi og leyst upp samtök sem mennirnir höfðu stofnað. Þeir eru á aldrinum 16 til 21 árs - allir ísraelskir ríkisborgarar, aðfluttir frá Austur-Evrópu. Þeim er gefið að sök að hafa ráðist með ofbeldi gegn útlendingum, samkynhneigðum og trúræknum gyðingum. Erlent 9.9.2007 12:18
Sharif snýr heim Musharraf, forseti Pakistans, óttast endurkomu eins höfuð andstæðings síns á morgun. Sá ætlar að koma forsetanum frá völdum. Músaraff hefur látið handtaka tvö þúsund stuðningsmenn hans og hert gæslu á flugvellinum í höfuðborginni. Erlent 9.9.2007 12:15
McCann-hjónin komin heim Hjónin Kate og Gerry McCann, sem bæði eru með réttarstöðu grunaðra vegna hvarfs dóttur þeirra Madeleine í Portúgal í vor, eru komin heim til Englands. Heim fóru þau með leyfi portúgalskra yfirvalda. Erlent 9.9.2007 12:11
Rússaflug ógnar farþegaflugi Rússnesku sprengjuflugvélarnar sem nú sveima í vaxandi mæli yfir Norður-Atlantshafi tilkynna aldrei um ferðir sínar og skapa því vissa hættu fyrir borgaralegt flug. Flugumferðarstjórar senda farþegavélum þær upplýsingar sem þeir hafa um Rússana og breyta stefnu og flughæð farþegavélanna ef þörf krefur. Rússar eru þeir einu sem senda herflugvélar af stað án þess að tilkynna um þær. Innlent 7.9.2007 16:25
Við erum plötuð í stórmörkuðum Heldur þú að þú vitir hvað þú kaupir þegar þú ferð út í búð ? Onei. Háskólaprófessor við Verslunarháskólann í Stokkhólmi segir að stórmarkaðir geti haft 70 prósent stjórn á því hvað fólk kaupir inn. Þegar um er að ræða einstakar vörur geta markaðirnir aukið sölu á þeim um 1000 prósent með því að stilla þeim rétt upp. Jens Nordfält prófessur hefur gert lista yfir nokkur brögð sem viðskiptavinirnir eru beittir. Erlent 7.9.2007 14:22
Störfum fækkaði í Bandaríkjunum í ágúst Nýbirtar tölur frá bandaríska vinnumálastofnunni benda til að fyrirtæki þar í landi hafi sagt upp 4.000 starfsmönnum í nýliðnum mánuði. Þetta er þvert á væntingar enda talið að fyrirtæki myndu halda áfram að ráða til sín fleira starfsfólk. Niðursveiflu á fjármálamörkuðum vegna vanskila á fasteignalánum í vor er kennt um ástandið. Viðskipti erlent 7.9.2007 13:18
Greenspan segir fjárfesta áhyggjufulla Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir fjárfesta áhyggjufulla og einkenni ótti þeirra stöðuna á fjármálamarkaði upp á síðkastið. Hann líkti ástandinu á hlutabréfamörkuðum í kjölfar mikilla vanskila á bandarískum fasteignalánamarkaði nú við fall á mörkuðum árið 1987 og 1998. Viðskipti erlent 7.9.2007 10:11
Kallað hermenn heim en ekki gæsluliða Nærri tuttugu þjóðir hafa kallað herlið sitt heim frá Írak frá innrásinni 2003. Fulltrúar sumra ríkjanna starfa þó enn þar á vegum Sameinuðu þjóðanna eða Atlantshafsbandalagsins þrátt fyrir heimkvaðningu hermanna. Erlent 6.9.2007 18:25
Árás hrundið í Ísrael Sex palestinskir vígamenn voru felldir þegar þeir reyndu að gera árás á ísraelska varðstöð við Gaza ströndina í dag. Ísraelar beittu orrustuþyrlu til þess að hrinda árásinn. Palestínumennirnir tilheyrðu samtökunum Islamic Jihad. Erlent 6.9.2007 16:36
Víkingar sóttir í hauga í Noregi Norskir fornleifafræðingar eru nú að sækja jarðneskar leifar þriggja víkinga í hauga þar semþær voru skildar eftir þegar skip voru grafin úr haugunum á fyrrihluta síðustu aldar. Annað var hið fræga Gauksstaðaskip en hitt var sótt í haug í Oseberg. Erlent 6.9.2007 15:41
Gabb í Kaupmannahöfn Hryðjuverkaútkall lögreglunnar í Kaupmannahöfn eftir hádegi, reyndist vera gabb. Tilkynnt var um sprengiefni og hugsanleg efnavopn. Lögreglan tól kallið alvarlega, girti af hverfið og flutti fólk á brott. Nú er verið að reyna að finna þá sem göbbuðu hana og eiga þeir ekki von á góðu ef þeir nást. Erlent 6.9.2007 14:16
Kaupmannahafnarlögreglan í hryðjuverkaútkalli Danska lögreglan hefur lokað hverfi í norðvesturhluta Kaupmannahafnar. Lögreglan hafði fengið tilkynningu um að þar sé sprengiefni og efnavopn. Íbúar í nærliggjandi húsum hafa verið fluttir á brott. Talsmaður lögreglunnar segir í samtali við Extra Bladet að miðað við það sem á undan sé gengið, sé engin áhætta tekin þegar svona tilkynningar berist. Því hafi fólki verið forðað. Verið er að leita í húsi við Næturgalaveg 75. Erlent 6.9.2007 12:55
Evrubankinn fylgir fordæminu Evrópski seðlabankinn fylgdi fordæmi nokkurra seðlabanka í dag og ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Áður hafði Seðlabanki Íslands og bankar í Bretlandi, Kanada, Brasilíu og Ástralíu ákveðið að halda vöxtum kyrrum í ljósi hræringa á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 6.9.2007 11:52
Rússnesku sprengjuvélarnar nálgast Ísland Breskar orrustuþotur hafa tekið við af norskum við að fylgjast með átta rússneskum sprengjuflugvélum sem eru á flugi yfir Norður-Atlantshafi. Ef að líkum lætur munu rússnesku vélarnar svo taka stefnuna á Ísland, og hér eru náttúrlega engar vélar til þess að senda á móti þeim. Erlent 6.9.2007 11:43
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósentum. Ákvörðunin kom ekki á óvart enda höfðu flestir reiknað með þessari niðurstöðu. Fyrr á árinu var hins vegar gert ráð fyrir 25 punkta vaxtahækkun en hún var endurskoðuð í ljósi óróleika á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 6.9.2007 11:42
Spáð handtöku vegna hvarfs Madeleine McCann Breska Sky fréttastofan segir að mikilvæg DNA sýni hafi fundist í íbúðinni sem foreldrar Madeleina McCann bjuggu í ásamt börnum sínum, þegar telpan hvarf. Daily Mirror heldur því fram að sýnin muni leiða til handtöku innan tveggja sólarhringa. Sýnin voru skoðuð í rannsóknarstofu bresku lögreglunnar. Erlent 6.9.2007 11:13
Norskar orrustuþotur á móti Rússum Norðmenn sendu í morgun tvær orrustuþotur á móti rússneskum sprengjuflugvélum sem nálguðust norska lofthelgi. Ofursti í norska flughernum segir að þeir fylgist náið með öllum ferðum Rússa og búist við tíðum heimsóknum þeirra á næstu árum. Erlent 6.9.2007 10:33
Rússar sagðir tilbúnir að afhenda Írönum kjarnorkueldsneyti Rússar og Íranar hafa náð samkomulagi um afhendingu á eldsneyti fyrir fyrsta kjarnorkuver Írana, að sögn ríkisútvarpsins í Teheran. Afhending eldsneytisins hefur tafist verulega. Rússar segja að það sé vegna þess að Íranar hafi ekki innt af hendi umsamdar greiðslur. Íranar segja hinsvegar að það sé vegna þess að Rússar séu undir miklum þrýstingi frá Vesturlöndum um að hætta við afhendinguna. Erlent 6.9.2007 10:13
Líkur á óbreyttum stýrivöxtum í Evrópu Vaxtaákvörðunardagur er hjá Englandsbanka í Bretlandi og evrópska seðlabankanum í dag. Greinendur gera fastlega ráð fyrir því að vextir verði óbreyttir í skugga hræringa á fjármálamörkuðum. Seðlabankinn hér á landi, í Brasilíu, Kanada og Ástralíu hafa allir haldið stýrivöxtum óbreyttum. Líkur eru hins vegar á stýrivaxtalækkun í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 6.9.2007 09:23
Íslendingar kalla herlið sitt heim frá Írak Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að Ísland hætti þáttöku í friðargæslu í Írak. Frá og með fyrsta október verða engir íslenskir friðargæsluliðar í landinu. Með þessari frétt fylgir mynd af íslensku friðargæslusveitinni sem væntanlega verður kölluð heim fyrsta október. Erlent 5.9.2007 14:46
Danir halda framhjá í bunkum Fjórir af hverjum tíu Dönum halda framhjá maka sínum einhverntíma ævinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnuðurinn hefur áhyggjur af því að framhjáhald fari að teljast eðlilegt. Konur óttast mest tilfinningaleg tengsl manna sinna við aðrar konur. Karlmenn óttast hinsvegar mest kynferðislegt samneyti kvenna sinna við aðra menn. Erlent 5.9.2007 14:19
Bush íhugar heimflutning frá Írak George Bush forseti Bandaríkjanna staðfesti í dag að hann væri byrjaður að hugsa um heimflutning bandarískra hermanna frá Írak, í takt við pólitíska og hernaðarlega þróun þar í landi. Bush sagði þetta á fundi með fréttamönnum í Ástralíu í dag. Erlent 5.9.2007 13:18
Stjörnufréttamaður hrapaði á botninn Hún var hröð niðurleiðin hjá danska stjörnufréttamanninum Jeppe Nybroe, hjá danska sjónvarpinu. Fyrir nokkrum mánuðum var hann einn af virtustu fréttamönnum Danmerkur. Í dag er hann atvinnulaus og það eru birtar háðslegar myndir af honum á You Tube. Erlent 5.9.2007 12:29
Foreldrar Madeleine að skilja -portúgalskir fjölmiðlar Foreldrar Madeleine McCann eru að því komin að skilja, að sögn fjölmiðla í Portúgal. Hjónin hafa haldið til í Portúgal síðan dóttir þeirra hvarf fyrir tæpum fjórum mánuðum. Þau segjast enn sannfærð um að litla telpan finnist á lífi. Portúgalskir fjölmiðlar virðast orðnir þreyttir á þeim og hafa birt um þau margar særandi fréttir. Gerry og Kate McCann eiga nú í málaferlum við blað sem hélt því blákalt fram að þau hefðu sjálf valdið dauða dóttur sinnar. Erlent 5.9.2007 12:51
Óbreyttir stýrivextir í Ástralíu Seðlabanki Ástralíu hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 6,5 prósentum að sinni vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum. Greinendur höfðu gert ráð fyrir því að vextirnir myndu hækka. Vaxtaákvörðunardagur er í Kanada í dag en á evrusvæðinu, í Bretlandi og hjá Seðlabankanum hér á morgun. Gert er ráð fyrir því að bankarnir feti allir í fótspor ástralska seðlabankans og haldi vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 5.9.2007 12:30