Erlent Noboa hefur fengið flest atkvæði Alvaro Noboa hafði hlotið flest atkvæði í forsetakosningunum í Ekvador þegar búið var að telja um fjórðung atkvæða. Erlent 16.10.2006 08:01 Ætlar ekki að vera viðstaddur þingsetningu Moshe Katsav, forseti Ísraels, ætlar ekki að vera viðstaddur þingsetningu ísraelska þingsins í dag. Fjöldi þingmanna hafði hótað því að ganga út ef Katsav mætti. Lögreglan í Ísrael hefur krafist þess að Katsav verði ákærður fyrir nauðganir. Erlent 16.10.2006 08:38 Neyðarástandi lýst yfir eftir jarðskjálfta Neyðarástandi var lýst yfir á Hawaii í gær eftir að jarðskjálfti upp á 6,6 á Ricther reið þar yfir. Skjálftinn eyðilagði byggingar og vegi víða um eyjarnar. Erlent 16.10.2006 07:20 Öryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn N-Kóreu Bandaríkin, Bretland og Frakkland komust hjá ágreiningi við Rússland og Kína um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreu og samþykktu öll 15 aðildarríki öryggisráðsins nýja ályktun. Hún felur í sér að Norður Kórea eyðileggi öll kjarnorkuvopn, gjöreyðingarvopn og langdrægar flaugar, en útilokar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Erlent 14.10.2006 18:38 Skjóta Tíbeta á flótta Rúmenskir kvikmyndatökumenn náðu því á mynd þegar kínverskir landamæraverðir skutu á hóp Tíbeta sem var fótgangandi á leið yfir til Nepals. Tveir létu lífið. Kínversk stjórnvöld viðurkenna að átök hafi átt sér stað, en halda því fram að fólkið hafi ráðist á landamæraverðina. Erlent 14.10.2006 17:29 Wal-Mart braut á starfsfólki Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart, sem er ein sú stærsta í heimi, hefur verið dæmd til að greiða fyrrum starfsfólki sínu að minnsta kosti 78 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 5,3 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur. Starfsfólkið var þvingað til að vinna í frítíma sínum, svo sem í kaffi- og matarhléum, án þess að fá greitt fyrir það. Viðskipti erlent 14.10.2006 13:19 Útgerðum í Ósló fjölgar Viðskipti erlent 15.10.2006 10:02 Geislavirk efni nærri tilraunastað Frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga sýna að geislavirk efni hafi fundist nærri þeim stað þar sem Norður-kóreumenn segjast hafa sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á mánudaginn. Heimildarmaður í bandaríska stjórnkerfinu hefur staðfest þetta bæði við Reuters-fréttastofuna og CNN í kvöld. Erlent 13.10.2006 23:49 365 þúsund Írakar á vergangi Mörg þúsund Írakar flýja nú heimaland sitt á degi hverjum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segir þetta stöðuga og lágværa brottflutninga. Þeim Írökum sem leita hælis á Vesturlöndum fjölgi dag frá degi. Auk alls þessa séu 365 þúsund Írakar á vergangi og þeir verði aðeins fleiri eftir því sem á líði. Erlent 13.10.2006 23:01 Nýr megrunardrykkur reynist umdeildur Sérfræðingar í heilbrigðisgeiranum gera lítið úr fullyrðingum Coca-Cola og Nestle um að nýr drykkur frá þeim hjálpi fólki við að létta sig drekkið það þrjár 30 millilítra dósir á dag. Erlent 13.10.2006 22:17 Sýknaður af ákæru um að rjúfa friðhelgi einkalífs Díönu og Dodis Franskur dómstóll hefur sýknað breskan ljósmyndara af ákæru um að hafa skert friðhelgi einkalífs Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayeds. Jason Fraser tók myndir af parinu þar sem þau kysstust á snekkju við ítölsku Rívíeruna í ágúst árið 1997, nokkrum dögum áður en þau týndu lífi í bílslysi í París. Það var faðir Dodis, auðjöfurinn Mohamed Al Fayed, sem kærði Fraser. Dómsorð í málinu hefur enn ekki verið birt opinberlega. Erlent 13.10.2006 21:35 Meðferð á föngunum í Guantanamo rannsökuð Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á meintri illri meðferð á föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu eftir að fréttir bárust af því að fangaverðir stærðu sig af því að hafa barið og misþyrmt föngum þar. Erlent 13.10.2006 21:04 Vilja aftur að samningaborðinu Norður-kóreumenn eru tilbúnir til að snúa aftur að samningaborðinu og ræða næstu skref í kjarnorkudeilu sinni við vesturveldin. Alexander Alexeyev, vara-utanríkisráðherra Rússlands, sagði þetta í viðtali við Itar-Tass fréttastofuna síðdegis í dag. Ekki kemur fram í fréttinni að stjórnvöld í Pyongyang setji nokkur skilyrði fyrir því að hefja viðræður á ný eftir tæplega eins árs hlé. Erlent 13.10.2006 20:21 Ban Ki-Moon næsti framkvæmdastjóri SÞ Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna skipaði í kvöld Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, í embætti framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur við af Kofi Annan um næstu áramót. Erlent 13.10.2006 19:18 Enn eitt hneykslið hjá Repúblíkönum Fyrsti bandaríski þingmaðurinn hefur nú játað á sig mútuþægni í máli Jack Abramoffs, fulltrúa þrýsihóps sem hefur verið sakfelldur fyrir að bera fé á þingmenn. Bob Ney er fulltrúadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins frá Ohio. Hann dró framboð sitt til þingkosninganna í næsta mánuði til baka í ágúst þegar ljóst var að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði hafið rannsókn á tengslum hans við Abramoff. Ney mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum. Erlent 13.10.2006 18:04 Verðlaunaféð fer í sjúkrahús og matvælaverksmiðju Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði og veitir fátækum lán, deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Verðlaunaféð, um 100 milljónir króna, mun Yunus nota til að koma á fót verksmiðju sem framleiðir ódýr matvæli með miklu næringargildi auk þess að koma á fót í heimalandi sínu sjúkrahúsi sem sérhæfir sig í augnaðgerðum. Erlent 13.10.2006 17:45 Dæmdur fyrir að styðja Hamas Bandaríkjamaðurinn Mohamed Shorbagi hefur játað á sig fyrir dómi í Bandaríkjunum að hafa veitt Hamas-samtökunum fjárstuðning. Shorbagi, sem er 42 ára, er imam í mosku í Georgíu-ríki. Í lok sumars var hann ákærður fyrir að styðja erlend hryðjuverkasamtök og gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Bandarísk stjórnvöld skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. Erlent 13.10.2006 17:32 Sprengja N-Kóreumenn vetnissprengju næst? Erlent 13.10.2006 17:06 Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japan tilkynnti í dag að stýrivextir þar í landi yrðu óbreyttir. Stýrivextirnir í Japan hafa verið 0,25 prósent síðan í júlí þegar bankinn ákvað að láta af núllvaxtastefnu sinni og hækka vexti í fyrsta sinn í sex ár. Viðskipti erlent 13.10.2006 17:06 Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. Erlent 13.10.2006 16:46 BAE selur í Airbus Breski hergagnaframleiðandinn BAE Systems hefur lokið við sölu á 20 prósenta hlut sínum í flugvélaframleiðandanum Airbus til EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans. Viðskipti erlent 13.10.2006 16:45 Dýrasti veitingastaður heimsins Erlent 13.10.2006 15:54 Bandaríkin styðja andstæðinga Hamas Erlent 13.10.2006 15:36 Sprengdi Norður-Kórea bara dínamít ? Erlent 13.10.2006 15:13 Bandaríkjamenn útiloka hernað gegn Norður-Kóreu Erlent 13.10.2006 14:34 Bráðnandi jökulhettur ógna lífi í Afríku Erlent 13.10.2006 14:13 Danskir múslimaklerkar vilja frið Erlent 13.10.2006 13:42 Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Erlent 13.10.2006 13:32 Verðbólga minnkaði fyrir utan Noreg Verðbólga í Svíþjóð, sem er stærsta hagkerfi Norðurlandanna, minnkaði í september og mælist nú 1 prósent. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem dregur úr verðbólgu þar í landi. Verðbólgan minnkaði sömuleiðis í Danmörku en jókst í Noregi. Viðskipti erlent 13.10.2006 11:45 Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. Erlent 13.10.2006 11:28 « ‹ 255 256 257 258 259 260 261 262 263 … 334 ›
Noboa hefur fengið flest atkvæði Alvaro Noboa hafði hlotið flest atkvæði í forsetakosningunum í Ekvador þegar búið var að telja um fjórðung atkvæða. Erlent 16.10.2006 08:01
Ætlar ekki að vera viðstaddur þingsetningu Moshe Katsav, forseti Ísraels, ætlar ekki að vera viðstaddur þingsetningu ísraelska þingsins í dag. Fjöldi þingmanna hafði hótað því að ganga út ef Katsav mætti. Lögreglan í Ísrael hefur krafist þess að Katsav verði ákærður fyrir nauðganir. Erlent 16.10.2006 08:38
Neyðarástandi lýst yfir eftir jarðskjálfta Neyðarástandi var lýst yfir á Hawaii í gær eftir að jarðskjálfti upp á 6,6 á Ricther reið þar yfir. Skjálftinn eyðilagði byggingar og vegi víða um eyjarnar. Erlent 16.10.2006 07:20
Öryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn N-Kóreu Bandaríkin, Bretland og Frakkland komust hjá ágreiningi við Rússland og Kína um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreu og samþykktu öll 15 aðildarríki öryggisráðsins nýja ályktun. Hún felur í sér að Norður Kórea eyðileggi öll kjarnorkuvopn, gjöreyðingarvopn og langdrægar flaugar, en útilokar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Erlent 14.10.2006 18:38
Skjóta Tíbeta á flótta Rúmenskir kvikmyndatökumenn náðu því á mynd þegar kínverskir landamæraverðir skutu á hóp Tíbeta sem var fótgangandi á leið yfir til Nepals. Tveir létu lífið. Kínversk stjórnvöld viðurkenna að átök hafi átt sér stað, en halda því fram að fólkið hafi ráðist á landamæraverðina. Erlent 14.10.2006 17:29
Wal-Mart braut á starfsfólki Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart, sem er ein sú stærsta í heimi, hefur verið dæmd til að greiða fyrrum starfsfólki sínu að minnsta kosti 78 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 5,3 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur. Starfsfólkið var þvingað til að vinna í frítíma sínum, svo sem í kaffi- og matarhléum, án þess að fá greitt fyrir það. Viðskipti erlent 14.10.2006 13:19
Geislavirk efni nærri tilraunastað Frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga sýna að geislavirk efni hafi fundist nærri þeim stað þar sem Norður-kóreumenn segjast hafa sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á mánudaginn. Heimildarmaður í bandaríska stjórnkerfinu hefur staðfest þetta bæði við Reuters-fréttastofuna og CNN í kvöld. Erlent 13.10.2006 23:49
365 þúsund Írakar á vergangi Mörg þúsund Írakar flýja nú heimaland sitt á degi hverjum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segir þetta stöðuga og lágværa brottflutninga. Þeim Írökum sem leita hælis á Vesturlöndum fjölgi dag frá degi. Auk alls þessa séu 365 þúsund Írakar á vergangi og þeir verði aðeins fleiri eftir því sem á líði. Erlent 13.10.2006 23:01
Nýr megrunardrykkur reynist umdeildur Sérfræðingar í heilbrigðisgeiranum gera lítið úr fullyrðingum Coca-Cola og Nestle um að nýr drykkur frá þeim hjálpi fólki við að létta sig drekkið það þrjár 30 millilítra dósir á dag. Erlent 13.10.2006 22:17
Sýknaður af ákæru um að rjúfa friðhelgi einkalífs Díönu og Dodis Franskur dómstóll hefur sýknað breskan ljósmyndara af ákæru um að hafa skert friðhelgi einkalífs Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayeds. Jason Fraser tók myndir af parinu þar sem þau kysstust á snekkju við ítölsku Rívíeruna í ágúst árið 1997, nokkrum dögum áður en þau týndu lífi í bílslysi í París. Það var faðir Dodis, auðjöfurinn Mohamed Al Fayed, sem kærði Fraser. Dómsorð í málinu hefur enn ekki verið birt opinberlega. Erlent 13.10.2006 21:35
Meðferð á föngunum í Guantanamo rannsökuð Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á meintri illri meðferð á föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu eftir að fréttir bárust af því að fangaverðir stærðu sig af því að hafa barið og misþyrmt föngum þar. Erlent 13.10.2006 21:04
Vilja aftur að samningaborðinu Norður-kóreumenn eru tilbúnir til að snúa aftur að samningaborðinu og ræða næstu skref í kjarnorkudeilu sinni við vesturveldin. Alexander Alexeyev, vara-utanríkisráðherra Rússlands, sagði þetta í viðtali við Itar-Tass fréttastofuna síðdegis í dag. Ekki kemur fram í fréttinni að stjórnvöld í Pyongyang setji nokkur skilyrði fyrir því að hefja viðræður á ný eftir tæplega eins árs hlé. Erlent 13.10.2006 20:21
Ban Ki-Moon næsti framkvæmdastjóri SÞ Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna skipaði í kvöld Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, í embætti framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur við af Kofi Annan um næstu áramót. Erlent 13.10.2006 19:18
Enn eitt hneykslið hjá Repúblíkönum Fyrsti bandaríski þingmaðurinn hefur nú játað á sig mútuþægni í máli Jack Abramoffs, fulltrúa þrýsihóps sem hefur verið sakfelldur fyrir að bera fé á þingmenn. Bob Ney er fulltrúadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins frá Ohio. Hann dró framboð sitt til þingkosninganna í næsta mánuði til baka í ágúst þegar ljóst var að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði hafið rannsókn á tengslum hans við Abramoff. Ney mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum. Erlent 13.10.2006 18:04
Verðlaunaféð fer í sjúkrahús og matvælaverksmiðju Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði og veitir fátækum lán, deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Verðlaunaféð, um 100 milljónir króna, mun Yunus nota til að koma á fót verksmiðju sem framleiðir ódýr matvæli með miklu næringargildi auk þess að koma á fót í heimalandi sínu sjúkrahúsi sem sérhæfir sig í augnaðgerðum. Erlent 13.10.2006 17:45
Dæmdur fyrir að styðja Hamas Bandaríkjamaðurinn Mohamed Shorbagi hefur játað á sig fyrir dómi í Bandaríkjunum að hafa veitt Hamas-samtökunum fjárstuðning. Shorbagi, sem er 42 ára, er imam í mosku í Georgíu-ríki. Í lok sumars var hann ákærður fyrir að styðja erlend hryðjuverkasamtök og gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Bandarísk stjórnvöld skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. Erlent 13.10.2006 17:32
Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japan tilkynnti í dag að stýrivextir þar í landi yrðu óbreyttir. Stýrivextirnir í Japan hafa verið 0,25 prósent síðan í júlí þegar bankinn ákvað að láta af núllvaxtastefnu sinni og hækka vexti í fyrsta sinn í sex ár. Viðskipti erlent 13.10.2006 17:06
Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. Erlent 13.10.2006 16:46
BAE selur í Airbus Breski hergagnaframleiðandinn BAE Systems hefur lokið við sölu á 20 prósenta hlut sínum í flugvélaframleiðandanum Airbus til EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans. Viðskipti erlent 13.10.2006 16:45
Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Erlent 13.10.2006 13:32
Verðbólga minnkaði fyrir utan Noreg Verðbólga í Svíþjóð, sem er stærsta hagkerfi Norðurlandanna, minnkaði í september og mælist nú 1 prósent. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem dregur úr verðbólgu þar í landi. Verðbólgan minnkaði sömuleiðis í Danmörku en jókst í Noregi. Viðskipti erlent 13.10.2006 11:45
Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. Erlent 13.10.2006 11:28