Viðskipti

Fréttamynd

Lántökur heimilanna aukast um 100%

Erlend lán íslenskra heimila hafa aukist um meira en eitt hundrað prósent síðan í byrjun september og eru nú tíundi hluti af lánum heimilanna. KB banki varar við þessari þróun og segir að greiðslubyrði heimilanna geti stóraukist, lækki gengi krónunnar. Gengislækkun sé hins vegar nauðsynleg til að draga úr viðskiptahallanum. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

KB banki seldi rúm 8% í Baugi

KB banki seldi í dag 8,26% af hlutafé sínu í Baugi Group. Fyrir söluna átti KB banki tæplega 20% eignarhlut í Baugi. Innleystur hagnaður vegna sölunnar nemur um einum milljarði króna. Bankinn eignaðist hlutinn í Baugi í tengslum við afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands í maí 2003.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Frjálst fall Bandaríkjadals

Gengi Bandaríkjadals heldur áfram að veikjast á gjaldeyrismörkuðum og íslenska krónan styrkist. Við lokun viðskipta í gær var kaupgengi Bandaríkjadals rúmlega 61 króna og hefur ekki verið lægra frá 1992.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sjávarútveginum blæðir

Styrking íslensku krónunnar hefur veruleg áhrif á afkomu sjávarútvegsfyrirtækja. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, telur að hækkunin í ár muni kosta fyrirtæki sitt um tvö hundruð milljónir í ár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Norðurljós heyra sögunni til

Norðurljós munu heyra sögunni til þegar óuppgerðar skattaskuldbindingar fyrirtækisins hafa verið gerðar upp, segir stjórnarformaður Norðurljósa. Hann segir að séð verði til þess að eftirstandandi eignir muni duga til þess að greiða skuldir sem eftir á að gera upp.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skuldirnar lifa

Skuldarar geta ekki lengur treyst því að kröfurnar á þá fyrnist eftir ákveðinn tíma og það þó að þeir hafi verið lýstir gjaldþrota. Kröfurnar eru nú settar í svokallaða kröfuvakt. Þar geta þær lifað að eilífu og minna sífellt á sig. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Neyðast til að flytja úr landi

Viðvarandi hátt gengi krónunnar getur leitt til þess að útflutningsfyrirtæki neyðist til þess að flytja starfsemi sína úr landi, segir framkvæmdastjóri útflutningsráðs. Blessunarlega hafi frjálst fall dollarans minni áhrif en ella vegna minnkandi útflutnings til Bandaríkjanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

KB banki fundar um gengi krónunnar

KB banki hefur ákveðið að efna til morgunverðarfundar um gengi krónunnar á fimmtudaginn. Erindi flytja Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, Ásgeir Jónsson, hagfræðingur greiningardeildar KB banka, og Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins. Fundurinn verður haldinn á Hótel Nordica og hefst klukkan 8.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengi dollars lækkar enn

Gengi dollarans hefur enn lækkað gagnvart íslensku krónunni og gagnvart evrunni hefur það aldrei verið lægra. Áhrifin hér á landi virðast þó harla lítil.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Skattaóvissa Norðurljósa ástæðan

Og Vodafone hætti við að kaupa allt hlutafé í Norðurljósum en eignast samt Íslenska útvarpsfélagið og Frétt ehf. Forstjóri félagsins segir óvissu varðandi skattamál Norðurljósa valda þessari breytingu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olíuverð á heimsmarkaði lækkar enn

Olíuverð á heimsmarkaði lækkar enn. Í gær hækkaði verðið á olíufatinu um 44 sent á markaði í New York en hefur nú þegar lækkað um 62 sent það sem af er degi. Allar líkur eru taldar á því að olíumálaráðherrar OPEC-ríkjanna ákveði að draga úr olíuframleiðslu á fundi sínum á föstudaginn en framleiðslan var aukin mjög þegar olíuverð náði hámarki í haust.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Gengi dollars komið í 61,84 krónur

Gengi dollarans hefur enn lækkað gagnvart íslensku krónunni og var nú skömmu fyrir fréttir 61,84 krónur. Í dag hefur gengið lækkað um 1,11 samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka. Lækkun dollarsins hefur þó enn sem komið er ekki haft verulega mælanlega vöruverðslækkun í för með sér.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ráðherra ver íslenska bankakerfið

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að skrif í Berlingske Tidende um íslenskt viðskiptalíf sé að nokkru leyti ósanngjörn og að sumar fullyrðingar blaðsins bendi til að ónæg þekking búi að baki.

Innlent
Fréttamynd

Gengið orðið skuggalega hátt

Gengi krónunnar gangvart helstu erlendu gjaldmiðlum hefur hækkað töluvert í dag og segja sérfræðingar íslensku bankanna það orðið skuggalega hátt. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka hefur dollar lækkað um 2,10% gagnvart krónunni, evran um 2,13% og breska pundið um 2,90%.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Og Vodafone kaupir allt hlutaféð

Stjórnir Og Vodafone og Norðurljósa, sem eiga meðal annars Bylgjuna og Stöð 2, hafa komist að samkomulagi um kaup Og Vodafone á öllu hlutafé tveggja dótturfélaga Norðurljósa, Íslenska útvarpsfélagins ehf. og Fréttar ehf. Þetta er breyting frá því fyrirkomulagi sem kynnt var í október sl. þar sem gert var ráð fyrir að Og Vodafone myndi kaupa allt hlutafé í Norðurljósum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengi krónunnar hækkaði um 1,77%

Gengi krónunnar hækkaði um 1,77 prósent í dag. Staða krónunnar gagnvart dollaranum hefur ekki verið hærra síðan í nóvember árið 1992 og segja sérfræðingar greiningardeilda bankanna gengið skuggalega hátt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bakvinnslusvið KB banka hefur starfsemi á Akureyri

KB banki hefur tekið í notkun nýja deild á Akureyri og er hún hluti af bakvinnslusviði bankans. Nú þegar hafa átta nýir starfsmenn tekið til starfa við deildina og munu þeir annast ýmis bakvinnslustörf fyrir höfuðstöðvar bankans og útibú hans. Gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í allt að 15 manns á árinu 2005.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hætta vegna hagstjórnarblöndu

Greiningardeild Íslandsbanka gagnrýnir hagstjórn á Íslandi í Morgunkorni sínu í gær. Þar segir að aðhald í ríkisfjármálum sé langt frá því að vera fullnægjandi. Þetta hefur í för með sér að mikill þungi fellur á Seðlabankann sem þarf að grípa til harðra aðgerða sem haft geta slæm áhrif á samkeppnisatvinnuvegina.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samstarf um íbúðarlán

Sparisjóðirnir eru komnir í samstarf við Íbúðalánasjóð um fjármögnun húsnæðis en jafnframt hafa þeir tekið höndum saman um framkvæmd greiðslumats. Aðrar lánastofnanir eru boðnar velkomnar gangist þær undir skilyrði Íbúðalánasjóðs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Umfjöllun fjölmiðla vitleysa

Stjórnarformaður KB banka segir að gagnrýnin umfjöllun danskra fjölmiðla, um innbyrðis tengsl íslenskra fjárfesta og fjármálafyrirtækja, byggi á sögusögnum og vitleysu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stefna enn hærra með EVE

Stjórnendur CCP, fyrirtækisins sem framleiðir EVE tölvuleikinn, stefna að því að ná til mun fleiri notenda en áður með nýrri viðbót við tölvuleikinn, sem þeir kalla Exodus. Til að ná því markmiði hafa þeir samið við bandarískt fyrirtæki, Savant Says Media, um markaðssetningu á leiknum.

Innlent
Fréttamynd

Mikil viðskipti með krónuna í dag

Krónan hækkaði um 2,73% í miklum viðskiptum í dag og stendur gengisvísitalan nú í 114,3 samkvæmt háffimmfréttum KB banka. Að sögn bankans má hér greina áhrif 1% vaxtahækkunar Seðlabanka sem boðuð var við útgáfu Peningamála í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

BNbank taki tilboði Íslandsbanka

Stjórn BNbank sendi í morgun frá sér yfirlýsingu til kauphallarinnar í Osló um yfirtökutilboð Íslandsbanka þar sem mælt er með því við hluthafa að þeir taki tilboðinu. Í yfirlýsingunni kemur fram að bæði stjórn bankans og fulltrúi starfsmanna telji að vel sé hugsað fyrir hagsmunum starfsmanna með yfirtökunni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olíuverð lækkar enn

Olíuverð heldur áfram að lækka hratt á heimsmarkaði. Það hefur lækkað um 12% á tveimur sólarhringum í Bandaríkjunum og kostar tunnan þar rúma 43 dollara. Þar hefur olíuverð ekki verið lægra síðan í september. Norðursjávarolía lækkaði líka um rúma tvo dollara í gær og er komin niður í rétt rúma 40 dollara.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Krónan hækkað um 2,76%

Gengi krónunnar hefur hækkað um 2,76% í dag og hefur sjaldan eða aldrei hækkað meira á einum degi. Bandaríkjadollar hélt áfram að lækka og er nú kominn niður í 62 krónur og 50 aura. Miklar sveiflur voru á gjaldeyrismarkaði í dag og var gjaldeyrisveltan á millibankamarkaði 17,7 milljarðar króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Með seðlaprentsmiðju í kjallaranum

Íslenskir bankar hafa tekið þyngdaraflið úr sambandi og stefna beint til himins. Þetta hafa danskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sem þekkja vel til íslensks viðskiptalífs og þeir segja ennfremur að miðað við vöxt þeirra mætti halda að bankarnir væru með seðlaprentsmiðju í kjallaranum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skeljungur og Esso lækka

Olíuverð heldur áfram að lækka hratt á heimsmarkaði og náði lækkunin til íslenskra neytenda í morgun. Skeljungur lækkaði bensínverðið um eina krónu í morgun og dísillítrann um 1,50 krónur. Þá tilkynnti Esso um lækkun á tólfta tímanum og gagnstætt venju er lækkunin þar meiri en hjá Skeljungi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankarnir spáðu minni hækkun

Greiningardeildir bankanna höfðu allar gert ráð fyrir vaxtahækkun en hún var meiri en þær spáðu. Greiningardeild Landsbankans sagði í Vegvísi í gær að vaxtahækkunin væri "nauðsynleg leiðrétting á vaxtaferlinum." Greiningardeildin segir að hækkunin í gær hafi verið nauðsynleg til þess að stýrivextir Seðlabankans hafi þau áhrif sem þeim sé ætlað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengi krónunnar styrkist

Gengi krónunnar styrktist um 2,73 prósent í miklum viðskiptum í gær og var gengisvísitalan 114,3 í lok dags. Greiningardeildir banka telja margar hverjar að í styrkingunni megi greina áhrif hækkunar stýrivaxta Seðlabankans á fimmtudag, en hún var umfram væntingar á markaði.

Viðskipti innlent