Viðskipti innlent

Gengi dollars komið í 61,84 krónur

Gengi dollarans hefur enn lækkað gagnvart íslensku krónunni og var nú skömmu fyrir fréttir 61,84 krónur. Í dag hefur gengið lækkað um 1,11 samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka. Lækkun dollarsins hefur þó enn sem komið er ekki haft verulega mælanlega vöruverðslækkun í för með sér. Einkum hefur þar verið litið til matvöru en samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni voru á síðasta ári 8,8% matvæla flutt inn frá Bandaríkjunum og 7% neysluvarnings.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×