Samgönguslys
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 43 ›
Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna. Viðskipti erlent 25.3.2024 13:09
Flutningabifreið á hliðinni undir Ingólfsfjalli og lokar veginum austur Flutningabifreið fór á hliðina undir Ingólfsfjalli nú fyrir stundu og þverar algjörlega leiðina austur. Lögregla er á vettvangi og bíður þess að bílinn verðir fluttur af veginum. Hjáleið er um gamla Suðurlandsveginn fyrir neðan hringveginn. Innlent 22.3.2024 08:57
Bílvelta á Kjalarnesi Bílvelta varð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi um klukkan 13 í dag. Innlent 19.3.2024 13:23
Árekstur við Kaplakrika Árekstur tveggja bíla var á gatnamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika í Hafnarfirði á níunda tímanum í kvöld. Engin alvarleg slys urðu á fólki. Innlent 18.3.2024 20:54
Fjöldi málsókna vegna hurðarloksins sem fauk í miðju flugi Sjö farþegar sem urðu fyrir meiðslum þegar hurðarlok losnaði í miðju flugi Alaska Airlines í janúar síðastliðnum hafa höfðað mál gegn flugfélaginu og flugvélaframleiðandanum Boeing. Erlent 15.3.2024 07:25
Fluttu slasaðan mann eftir bílslys nærri Gullfossi Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar flutti í dag mann á sjúkrahús eftir bílveltu á Kjalvegi, norður af Gullfossi. Áhöfnin var við hefðbundnar æfingar og á svæðinu þegar útkallið barst. Innlent 13.3.2024 16:51
Nafn mannsins sem lést í Heiðmörk Maðurinn sem lést í mótorhjólaslysi á Heiðmerkurvegi í síðustu viku hét Hrafn Breiðfjörð Ellertsson. Innlent 13.3.2024 16:14
Fimmtíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum. Erlent 11.3.2024 08:45
Var í símanum undir stýri og fær kaskótryggingar ekki endurgreiddar Vátryggingafélag Íslands þarf ekki að endurgreiða manni kaskótryggingar, sem félagið hafði endurkrafið manninn um í kjölfar umferðarslyss sem hann olli. Maðurinn hafði ekið aftan á röð bifreiða á Reykjanesbraut á meðan hann var í símanum undir stýri og urðu fjórir bílar fyrir skemmdum. Innlent 8.3.2024 16:20
Maður um tvítugt lést í mótorhjólaslysinu í Heiðmörk Karlmaður um tvítugt lést í mótorhjólaslysinu sem varð í Heiðmörk um kvöldmatarleytið í gær. Maðurinn ók mótorhjólinu vestur Heiðmerkurveg en virðist hafa misst stjórn á hjólinu og hafnaði utan vegar. Innlent 8.3.2024 09:36
Mótorhjólaslys í Heiðmörk Mótorhjólaslys varð í Heiðmörk í kvöld. Þetta staðfestir Guðmundur Guðjónsson varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 7.3.2024 19:50
Ökumaðurinn alvarlega slasaður en ekki í lífshættu Maðurinn sem lenti í alvarlegu umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í nótt er alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalands, en er ekki talinn í lífshættu. Jepplingur sem hann keyrði fór út af veginum og lenti á girðingu. Innlent 7.3.2024 10:16
Alvarlegt bílslys á Hafnarfjarðarvegi í nótt Alvarlegt umferðarslys varð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ um þrjúleytið í nótt. Innlent 7.3.2024 07:13
Ók bíl inn í verslun í Vestmannaeyjum „Þetta var smá sjokk. Því hann kom ágætlega inn hjá mér, húddið kom allt inn,“ segir Svava Tara Ólafsdóttir, eigandi verslunarinnar Sölku í Vestmannaeyjum, í samtali við fréttastofu. Í morgun var bíl ekið inn í verslunina og brotnaði gluggi hennar fyrir vikið. Innlent 27.2.2024 15:42
Ekki hugað að öryggi almennings í Gleðivík Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna banaslyss, sem varð á Djúpavogi sumarið 2022, segir að pottur hafi víða verið brotinn í skipulagsmálum við Eggin í Gleðivík. Samhliða því hafi ekki verið hugað að öryggi almennings. Þá segir að meginorsök slyssins hafi verið sú að ökumaður skotbómulyftara veitti gangandi vegfaranda ekki athygli. Innlent 22.2.2024 12:34
Lá við slysi æfingavélar og farþegavélar sem stefndu á sömu flugbraut Litlu munaði að flugslys yrði við Keflavíkurflugvöll þann 22. ágúst 2020 þegar æfingaflugvél og farþegaflugvél voru í lokalegg aðflugs að sömu flugbraut á sama tíma. Innlent 21.2.2024 12:11
Nafn mannsins sem lést í slysi á Suðurlandsvegi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi skammt við Pétursey þann 29. janúar síðastliðinn hét Einar Guðni Þorsteinsson. Innlent 16.2.2024 13:23
Rannsókn á árekstri flugvélanna á frumstigi Rannsókn á árekstri tveggja flugvéla við Vestmannaeyjar á sunnudag er á frumstigi. Ekki er ljóst hvenær skýrsla um málið verður gefin út af Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 15.2.2024 15:45
Tvær flugvélar rákust saman í háloftunum Tvær einkaflugvélar rákust saman á flugi við Vestmannaeyjar í gær. Flugmaður og farþegi voru í annarri vélinni en aðeins flugmaður í hinni. Innlent 12.2.2024 20:40
Látinn eftir umferðarslys á Reykjanesbraut Karlmaður er látinn eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á móts við álverið í Straumsvík, þriðjudaginn 30. janúar. Innlent 9.2.2024 12:48
Tveggja bíla árekstur í Ártúnsbrekku Árekstur varð í Ártúnsbrekkunni um klukkan þrjú í dag. Tveir bílar skullu þar saman neðst í brekkunni en samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru þrír sjúkrabílar og dælubíll sendir á vettvang. Innlent 5.2.2024 15:17
Leita vitna vegna ágreinings um ljósastöðu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að hörðum árekstri sem varð á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar í Reykjavík í gær. Innlent 5.2.2024 14:28
Fjórði áreksturinn í dag Fjórir árekstrar hafa orðið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Þeir hafa flestir verið smávægilegir og aðeins einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku. Innlent 5.2.2024 10:39
Árekstur á Háaleitisbraut Betur fór en á horfðist þegar árekstur tveggja fólksbíla varð við gatnamót Háaleitisbrautar og Miklubrautar í Reykjavík í morgun. Þegar slökkvilið bar að garði höfðu allir farþegar bílanna komið sér út úr bílunum og enginn þeirra var slasaður. Innlent 5.2.2024 09:11
Ökumaður snjóruðningstækis fluttur á bráðamóttöku Umferðarslys varð á Reykjanesbraut nálægt Smáralind í Kópavogi snemma í morgun, þegar fólksbíll og snjóruðningstæki skullu saman. Ökumaður snjóruðningstækisins var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. Innlent 5.2.2024 08:24
Skoða þurfi ástæðu fjölgunar banaslysa strax Innviðaráðherra segir að skoða verði ástæðu fjölda banaslysa í umferðinni í byrjun árs sem fyrst. Hann segir stöðuna algjörlega óviðunandi. Innlent 4.2.2024 19:05
Bílvelta á gatnamótum Holtavegs og Sæbrautar Umferðarslys varð seinnipartinn í dag á gatnamótum Holtavegs og Sæbrautar. Mikill viðbúnaður var á vettvangi en engan þurfti að flytja á slysadeild. Innlent 4.2.2024 15:30
Líðan ökumannsins sögð stöðug Líðan mannsins, sem lenti í árekstri við flutningabíl skammt frá álverinu í Straumsvík í gærkvöldi, er sögð stöðug. Beita þurfti klippum til þess að ná honum út úr fólksbíl sínum og hann var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús. Innlent 31.1.2024 11:40
Gámabíll og fólksbíll lentu saman á Reykjanesbraut Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut um klukkan sjö í kvöld, skammt frá Álverinu í Straumsvík. Lokað var fyrir umferð um Reykjanesbrautina um tíma. Innlent 30.1.2024 19:24
Bænastund í Vík vegna ökumannsins sem lést Erlendir ferðamenn voru um borð í jeppa sem skall saman við dráttarvél austan Sólheimasands á Suðurlandsvegi í gær. Ökumaður dráttarvélarinnar lést í árekstrinum. Erfiðar aðstæður voru í suðaustanáttinni á vettvangi þegar slysið varð. Boðað hefur verið til bænastundar í Víkurkirkju í Mýrdalshreppi í kvöld. Innlent 30.1.2024 15:15