Sundlaugar og baðlón
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 16 ›
Óbærilegt margmenni vegna niðurskurðar Fastagestir Vesturbæjarlaugar mótmæla því harðlega að sundlaugar borgarinnar skuli standa meira og minna lokaðar á hátíðisdögum þetta árið. Óbærilegt margmenni hafi verið í lauginni á annan í jólum og heilu vinahóparnir verði svo sviknir um áramótasundið. Innlent 28.12.2023 20:39
Skerða kvöldsundið um helgar í öllum laugum borgarinnar Opnunartími allra sundlauga í Reykjavík verður styttur um klukkutíma um helgar frá og með 1. apríl næstkomandi. Stjórnendum lauganna var tilkynnt um breytinguna í dag. Innlent 28.12.2023 16:37
Dæmdur fyrir að hafa áreitt fjórtán ára stúlku í búningsklefa Maður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að ganga inn á fjórtán ára stúlku í kvennaklefa sundlaugar. Þar hafi hann gert ummæli við líkama hennar, boðið henni að sjá sinn og byrjað að girða niður um sig. Innlent 14.12.2023 18:45
Mál konunnar sem féll á bakkanum fer ekki lengra Hæstiréttur hefur hafnað beiðni um áfrýjunarleyfi vegna dóms Landsréttar í máli konu sem borginni hefur verið gert að greiða skaðabætur fyrir líkamstjón sem hún varð fyrir þegar hún féll á sundlaugarbakk í Sundhöll Reykjavíkur. Innlent 12.12.2023 13:56
Miklar breytingar framundan í Sundhöllinni Nýtt laugarker, endurgerðir pottar, tveir nýir gufuklefar aðstaða fyrir laugarverði eru meðal þeirra breytinga sem gerðar verða í Sundhöll Reykjavíkur á næstunni. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð borgarinnar samþykkti breytingarnar á fundi sínum fyrir helgi. Möguleg gætu stökkbretti innilaugarinnar horfið. Innlent 12.12.2023 11:56
Vilja reisa hótel, baðlón og tólf einbýlishús á eyju við Hellu Eigendur Gaddstaðaeyjar við Hellu hafa óskað eftir breytingu á deiliskipulagi vegna uppbyggingar á eyjunni. Vilja þeir meðal annars reisa þar einbýlishús og baðlón. Innlent 9.12.2023 07:00
Sundlaugin mjög illa farin Sundlaugin á Stokkseyri er mjög illa farin og er ljóst að ráðast þarf í umfangsmiklar viðferðir á kari laugarinnar. Skipta þarf um allar hliðar á lauginni ásamt botni og dúk. Innlent 8.12.2023 08:35
Lokuðu Grafarvogslaug um stund vegna bilunar Loka þurfti Grafarvogslaug um stund í morgun vegna bilunar hjá Veitum. Lokunin varði í rúma klukkustund en laugin er nú opin. Heitavatnslaust er í hluta Hamrahverfis. Innlent 29.11.2023 12:00
Sundlaugin lekur Ljóst er að ráðast þarf í framkvæmdir á laugarkeri sundlaugarinnar á Þingeyri þar sem það lekur. Eftir að grunur kviknaði um leka var ákveðið að stöðva áfyllingu í einn sólarhring og lækkaði vatnsyfirborðið þá um 25 sentimetra. Dúkurinn er talinn ónýtur enda kominn til ára sinna. Innlent 16.11.2023 08:49
Forstjóra Landspítalans gert viðvart um alvarlegt atvik í sundlaug Læknadeild Háskóla Íslands hefur gert formanni Læknafélags Íslands, forstjóra Landspítalans og öðrum stjórnendum sjúkrahússins viðvart um atvik sem á að hafa átt sér stað í sundlaug á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 15.11.2023 07:01
Borgarstjóri vígði nýja rennibraut Borgarstjóri, afmælisbörn úr Dalsskóla og fleiri nemendur vígðu í dag nýjar vatnsrennibrautir við Dalslaug í Úlfarársdal. Lífið 6.11.2023 23:08
28 syngjandi karlar í sama heita pottinum á Selfossi Það var engin ládeyða hjá félögum í Karlakórnum Esju úr Reykjavík um helgina því á sama tíma og þeir fögnuðu útkomu nýrrar plötu brugðu þeir sér í bæjarferð á Flúðir og fengu sér hrossakjöt þar, og enduðu ferðina svo með söng og Mullersæfingum í sundlauginni á Selfossi. Lífið 6.11.2023 20:30
Annar og betri maður eftir slysið óhugnanlega í lauginni Það eru ekki margir sem búa að þeirri lífsreynslu að hafa dáið og verið lífgaðir við. Viktor Aron Bragason er hins vegar einn af þeim. Þann 6. október árið 2013 fannst hann meðvitundarlaus í sundlaug. Þökk sé skjótum viðbrögðum tveggja sundlaugargesta er hann enn á meðal lifandi. Innlent 6.11.2023 06:01
Vel undirbúin fari að gjósa Sérfræðingar Veðurstofunnar telja ekki útilokað að kvika nái að brjóta sér leið upp í jarðskorpuna norðvestur af Þorbirni skammt frá Bláa lóninu. Framkvæmdastjóri lónsins segir starfsmenn þess reiðubúna ef það fer að gjósa. Jarðskjálftahrina á svæðinu í dag þykir skýrt merki um kvikuhlaup. Innlent 31.10.2023 20:00
Ákærður fyrir tilraun til manndráps við Breiðholtslaug Maður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að stinga annan mann með hnífi. Samkvæmt heimildum Vísis átti árásin sér stað við Breiðholtslaug árið 2021. Innlent 24.10.2023 07:00
Annað hvort komist allir í pottinn eða enginn Konur og kvár komast ekki í sund á Selfossi á kvennafrídaginn en karlar munu geta stungið sér ofan í. Í sundlaugum Reykjavíkurborgar verður annað hvort opið fyrir alla eða lokað fyrir alla en gert er ráð fyrir að þjónusta borgarinnar verði afar skert þennan dag. Innlent 21.10.2023 11:15
Breyting í Laugardalslaug sem gleðja muni foreldra Forstöðumaður Laugardalslaugar hlakkar til að taka á móti gestum aftur um helgina eftir nokkura vikna lokun. Búið er að stórbæta laugina, og öryggi og þá geta foreldrar barna glaðst yfir því að barnalaugin verður heitari en hún hefur verið áður. Innlent 20.10.2023 23:16
Taka ekki á móti konum eða kvárum í sund „af öryggisástæðum“ Sundlaug Selfoss mun ekki leyfa konum og kvárum að fara í sund næsta þriðjudag, 24. október, þegar allsherjarverkfall kvenna og kvára stendur yfir. Innlent 20.10.2023 17:34
Laugardalslaug ekki opnuð fyrr en á föstudag Laugardalslaug verður opnuð aftur fyrir almenning föstudaginn 20. október kl. 13:00. Ekki gekk eftir að opna í dag þriðjudaginn 17. október, eins og stefnt var að. Innlent 17.10.2023 10:00
Ákærður fyrir að káfa á konu í sundi Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni sem átti sér stað í sundlaug. Innlent 13.10.2023 23:48
Datt í Sundhöllinni og fær þrjár og hálfa milljón Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var dæmd skaðabótaskyld í máli konu sem lenti í slysi í sundi. Borginni er gert að greiða konunni rúmar þrjár og hálfa milljón í skaðabætur, eða sömu bóta og konan hafði krafist. Innlent 12.10.2023 16:44
Engin typpi í kvennaklefanum þrátt fyrir afleit lög Góðu fréttir síðustu viku: Konan sem börn í skólasundi sáu í Grafarvogslaug var þá ekki með typpi eftir allt saman. Það er ekki Alþingi að þakka, ekki Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar, ekki skólastjóra Rimaskóla og ekki ábyrgðarmönnum Grafarvogssundlaugar. Það er engum að þakka nema þeim limberum (af öllum kynjum) sem hafa kosið að nota aðra aðstöðu til að afklæðast. Skoðun 10.10.2023 11:30
Fresta opnun Laugardalslaugar Reykjarvíkurborg greinir frá því í tilkynningu að ekki verði unnt að opna Laugardalslaug 10. október eins og fyrirhugað var. Innlent 6.10.2023 18:14
Ömurlegt að þurfa að ræða kynfæri sín til að stoppa slúðursögur Trans kona segir ömurlegt að þurfa að stíga fram og ræða kynfæri sín til að stoppa slúðursögur. Rætin saga um að grunnskólastúlkum í skólasundi hafi verið brugðið vegna karlmanns í sturtuklefanum, sé lygasaga byggð á hatri. Innlent 4.10.2023 11:46
Veiga stígur fram vegna orðróms um „karlmanninn í kvennaklefanum“ Trans konan Veiga Grétarsdóttir Sulebust hefur nú stigið fram og greint frá því að sögusagnir um karlmann sem á að hafa nýtt sér kvennaklefa Grafarvogslaugar séu uppspuni byggður á hatri. Innlent 3.10.2023 21:34
„Það er í lagi að vera forvitinn, en komiði samt kurteisislega fram“ David Telusnord, íbúi í Kópavogi, biðlar til fólks að koma fram af virðingu eftir að hafa lent í leiðinlegu atviki í sturtuklefanum í Breiðholtslaug í dag sem lyktaði af kynþáttafordómum. Eiginkona hans og barnsmóðir segir atvikið ekki eitthvað sem hún vilji bjóða börnum þeirra, sem einnig eru dökk á hörund, upp á. Innlent 30.9.2023 23:23
Laugin tóm í tvær vikur Laugardalslaug verður lokuð næstu vikur vegna framkvæmda. Laugin er tóm í fyrsta sinn í sjö ár og framkvæmdastjórinn segir millivegg sem nú verður rifinn niður hafa enst um 25 árum lengur en hann átti að gera. Innlent 28.9.2023 20:26
Loka Laugardalslaug í tvær vikur vegna viðhalds Laugardalslaug í Reykjavík verður lokað fyrir almenning í tvær vikur frá og með 26. september næstkomandi vegna framkvæmda. Kominn er tími á viðhald. Innlent 20.9.2023 13:39
Loka sundlaugum vegna netbilunar Forsvarsmenn Árbæjarlaugar hafa tilkynnt að búið sé að loka sundlauginni þar sem ekki sé hægt að tryggja öryggi gesta vegna netbilunar hjá Reykjavíkurborg. Þá er einnig búið að loka Vesturbæjarlaug. Innlent 13.9.2023 14:51
Skertur opnunartími sundlauga í Árborg tekur gildi Opnunartími Sundhallar Selfoss styttist á föstudaginn þegar aðhaldsaðgerðir sveitarstjórnar Árborgar taka gildi. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð frá nóvember til mars. Formaður bæjarráðs segist skilja vel að íbúar Árborgar hafi misjafnar skoðanir á aðgerðunum. Innlent 30.8.2023 11:08