Innlent

Datt í Sund­höllinni og fær þrjár og hálfa milljón

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikið átti sér stað við útilaug í Sundhöll Reykjavíkur. Myndin er af heitum potti í Sundhöllinni.
Atvikið átti sér stað við útilaug í Sundhöll Reykjavíkur. Myndin er af heitum potti í Sundhöllinni. Vísir/Arnar

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var dæmd skaðabótaskyld í máli konu sem lenti í slysi í sundi. Borginni er gert að greiða konunni rúmar þrjár og hálfa milljón í skaðabætur, eða sömu bóta og konan hafði krafist.

Samkvæmt heimildum fréttastofu varð slysið í Sundhöll Reykjavíkur. Atvikið átti sér stað í desember 2018, en í dómnum er því lýst að konan hafi fallið á mottu við bakka sundlaugar.

Konan varð fyrir líkamstjóni vegna þessa. Samkvæmt mati bæklunarlæknis varð hún óvinnufær tímabundið. Hún hafi fengið slitgigt í úlnlið vinstri handar sem gæti háð henni í vinnu og almennt.

Ágreiningur málsins varðaði það hvort Reykjavíkurborg væri skaðabótaskyld. Deilt var um hvort aðbúnaður við sundlaugina hafi verið ábótavant. Konan taldi svo vera, en Reykjavíkurborg vildi meina að það væri ósannað.

Í skýrslu starfsmanns sem var skrifuð strax í kjölfar atviksins segir að konan hafi fallið í „sleipu“ við við laug. Héraðsdómur byggði dóm sinn á því að mottan hafi verið verulega sleip og þar af leiðandi skapað hættu á slysi. Fyrir dómi lágu fyrir skýrslur um nokkru tilvik þar sem sundlaugargestir féllu eða hrösuðu við bakka laugarinnar. Í þeim var gjarnan talað um sleipu sem ástæðu slyss.

Í dómi Landsréttar er bent á að rekstraraðilar sund- og baðstaða beri að tryggja að orsakir slysa séu rannsakaðar. Sé það ekki tryggt getur rekstraraðilinn þurft að bera hallan af sönnunarskorti um þessi atriði. Gögn málsins bendi til þess að mottan sem málið varðar hafi ekki verið sérstaklega skoðuð í kjölfar slyssins og Reykjavíkurborg gert að bera hallan af því.

Þar að auki lá ekkert fyrir um að konan hafi ekki sýnt fulla aðgæslu þegar hún gekk frá kvennaklefanum að vaðlauginni, en það var þá sem slysið átti sér stað. Þar af leiðandi dæmdi Landsréttur Reykjavíkurborg skaðabótaskylda í málinu, en ekki var mikill ágreiningur um bótakörfu konunnar sem var rúm þrjár og hálf milljón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×