NBA

Fréttamynd

NBA: Clippers vann Lakers þrátt fyrir 42 stig frá Kobe

Los Angeles Clippers vann slaginn um Los Angeles á móti Lakers í nótt þrátt fyrir að Kobe Bryant færi yfir 40 stiga múrinn í fjórða leiknum í röð. NBA-meistararnir í Dallas Mavericks unnu sinn fimmta sigur í röð en lítið gengur hjá Boston Celtics sem hefur tapað fjórum síðustu leikjum sínum. Chicago Bulls, Oklahoma City Thunder og Philadelphia 76ers sína líka lítil veikleikamerki þessa dagana.

Körfubolti
Fréttamynd

LeBron James: Ég held með Tim Tebow

nbaLeBron James er mikill áhugamaður um amerískan fótbolta og hann er mikill stuðningsmaður Dallas Cowboys. Þar sem að hans menn komust ekki í úrslitakeppnina þá ætlar James að halda með Tim Tebow og félögum hans í Denver Broncos í úrslitakeppni NFL-deildarinnar í ár.

Sport
Fréttamynd

NBA: Kobe yfir 40 stigin þriðja leikinn í röð - þrjú töp í röð hjá Miami

Kobe Bryant er óstöðvandi þessa dagana í NBA-deildinni í körfubolta en hann braut 40 stiga múrinn í þriðja leiknum í röð í nótt. Miami Heat er aftur á móti í vandræðum eftir þriðja tapið í röð. Chicago Bulls vann Boston Celtics og San Antonio Spurs er áfram ósigrað á heimavelli. Dirk Nowitzki skoraði sitt 23 þúsundasta stig í NBA-deildinni í fjórða sigri Dallas í röð.

Körfubolti
Fréttamynd

NBA: Dwight Howard sló met Wilt Chamberlain í nótt

Dwight Howard, miðherji Orlando Magic, sló 50 ára met Wilt Chamberlain í nótt yfir flest víti tekin í einum leik þegar Orlando vann Golden State Warriors. Memphis endaði sigurgöngu New York, Phoenix lá fyrir Cleveland og Atlanta Hawks vann sannfærandi án aðalmiðherja síns.

Körfubolti
Fréttamynd

Kobe búinn að rjúfa 40 stiga múrinn 108 sinnum á ferlinum

"Þetta var ekki slæmt fyrir sjöunda besta leikmanninn í deildinni," sagði Kobe Bryant eftir sigurinn á Phoenix Suns í nótt en hann varð þá fyrsti leikmaðurinn á tímabilinu til að brjóta 40 stiga múrinn. Bryant tók því greinilega persónulega að hann var settur í sjöunda sætið á netlista yfir 500 bestu leikmenn NBA-deildarinnar.

Körfubolti
Fréttamynd

NBA: Kobe Bryant með 48 stig í sigri Lakers - Miami tapaði

Kobe Bryant skoraði 48 stig í sigri Los Angeles Lakers á Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og hefur þar með skorað 25 stig eða meira í síðustu fimm leikjum liðsins. Miami Heat tapaði í framlengingu á móti Golden State Warriors og sigurganga Philadelphia 76ers heldur áfram en liðið vann sjötta leikinn í röð í nótt.

Körfubolti
Fréttamynd

Obama forseti í miklu stuði þegar hann tók á móti Dallas í gær

Það var mikið gaman í Hvíta húsinu í gær þegar Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, tók á móti NBA-meistaraliði Dallas Mavericks í árlegri heimsókn NBA-meistara síðasta árs til forsetans. Obama er mikill körfuboltaáhugamaður og var í miklu stuði þegar hann tók á móti Dirk Nowitzki og félögum.

Körfubolti
Fréttamynd

Hjartaaðgerð Boston Celtics mannsins heppnaðist vel

Jeff Green mun ekkert spila með Boston Celtics í NBA-deildinni í vetur vegna veikinda en hann gekk undir hjartaaðgerð í fyrrinótt. Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics, sagði að aðgerðin hafi heppnast vel og að hann vonast eftir því að sjá leikmanninn sem fyrst inn á vellinum.

Körfubolti
Fréttamynd

NBA: Philadelphia 76ers búið að vinna fimm leiki í röð

Philadelphia 76ers liðið er að byrja tímabilið frábærlega í NBA-deildinni og vann sinn fimmta sigur í röð í nótt. Chicago Bulls og Atlanta Hawks unnu líka sína leiki og Carmelo Anthony og félagar í New York Knicks rétt sluppu með sigur á móti Charlotte Bobcats á heimavelli.

Körfubolti
Fréttamynd

Atlanta stöðvar öll stórliðin

Atlanta Hawks heldur áfram að koma skemmtilega á óvart í NBA-deildinni. Í nótt batt liðið enda á sex leikja sigurgöngu Chicago en Atlanta var einnig fyrsta liðið til þess að vinna Miami í vetur.

Körfubolti
Fréttamynd

Kobe fór á kostum í sigri Lakers

Kobe Bryant fór á kostum í liði LA Lakers í nótt er það vann sjö stiga sigur, 97-90, á Golden State. Bryant skoraði 39 stig og gaf 7 stoðsendingar í leiknum.

Körfubolti
Fréttamynd

Bosh kláraði Atlanta í þríframlengdum leik

Fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og er óhætt að segja að viðureign Atlanta Hawks og Miami Heat hafi staðið upp úr. Stjörnurnar úr Miami náðu að knýja fram sigur eftir þrjár framlengingar, 109:116. Chris Bosh fór fyrir Miami liðinu, en þeir LeBron James og Dwayne Wade, voru ekki með vegna meiðsla. Bosh setti niður 33 stig og tók 14 fráköst. Stigahæstur fyrir Atlanta var Joe Johnson með 20 stig.

Körfubolti
Fréttamynd

NBA: Miami og Dallas á sigurbraut

Indiana Pacers réð ekkert við LeBron James í nótt er Miami Heat vann öruggan sigur á Pacers. James skoraði 33 stig og tók 13 fráköst fyrir Miami sem hefur aðeins tapað einum leik það sem af er vetri. Chris Bosh skoraði 22 stig fyrir Heat.

Körfubolti
Fréttamynd

Kobe sjóðheitur | Bulls marði Atlanta

Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, minnti heldur betur á sig í nótt þegar hann skoraði 37 stig í sigurleik gegn Houston í NBA-deildinni í nótt. Andrew Bynum einnig með stórleik en hann skoraði 21 stig og tók 22 fráköst.

Körfubolti
Fréttamynd

Cuban ætlaði ekki að missa af heimsókninni í Hvíta húsið

NBA-deildin í körfubolta er komin á fullt eftir verkbann en þar sem að liðin spila aðeins 66 leiki mun liðin ekki ná að spila í öllum borgum þetta tímabilið. Þetta þýðir meðal annars að NBA-meistarar Dallas Mavericks fá ekki tækifæri til að koma til Washington til að spila við Wizards.

Körfubolti
Fréttamynd

Fyrstu ósigrar Miami og Oklahoma | Ginobili meiddur

Miami Heat og Oklahoma Thunder urðu loks að sætta sig við tap í NBA-deildinni í nótt eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Meistarar Dallas lögðu Oklahoma en Atlanta, með Tracy McGrady af öllum mönnum í broddi fylkingar, sá um að leggja Miami af velli.

Körfubolti
Fréttamynd

Kevin Garnett búinn að kaupa hlut í Roma

Það fer fljótlega að komast í tísku í NBA-deildinni í körfubolta að eignast hlut í evrópskum fótboltaliðum ef marka má síðustu fréttir því Kevin Garnett hefur nú fetað í fótspor LeBron James.

Körfubolti
Fréttamynd

Nýtt Kobe-Shaq mál að gerjast í Oklahoma City

Það ætlaði allt að sjóða upp úr á milli tveggja stjörnuleikmanna Oklahoma City Thunder í leik liðanna í nótt og NBA-spekingar eru farnir að velta því fyrir sér hvort framtíð þeirra Russell Westbrook og Kevin Durant saman sé í uppnámi. Deilur liðsfélaganna fara fljótlega að minna á stirt samband milli Kobe Bryant og Shaquille O´Neal hjá Los Angeles Lakers fyrir nokkrum árum.

Körfubolti
Fréttamynd

NBA-deildin: Mikil aukning á sjónvarpsáhorfi

NBA-deildin í körfubolta fór vel af stað í Bandaríkjunum um jólin og sjónvarpsáhorf á opnunarleikina á jóladag var mun meira en á sama tíma fyrir ári síðan. Alls voru fimm leikir sýndir á jóladag á bandarískjum sjónvarpsstöðvum.

Körfubolti