LeBron og Kobe bestu leikmenn vikunnar í NBA-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2012 09:15 LeBron James og Kobe Bryant. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James hjá Miami Heat og Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers voru valdir bestu leikmenn vikunnar í NBA-deildinni í körfubolta en þar er verið að tala um frammistöðu leikmanna í leikjum frá 2. til 8. janúar. James var bestur í Austurdeildinni en hann var stigahæstur í öllum þremur leikjunum sem hann spilaði í vikunni. James var með 31 stig að meðaltali og hitti úr 60.7 prósent skota sinna. Hann var einnig með 9,3 stoðsendingar og 7,3 fráköst að meðaltali í leik. Besta frammistaða James í vikunni kom á móti Indiana þegar hann var með 33 stig og 13 stoðsendingar. Bryant var bestur í Vesturdeildinni en Lakers vann þá sigra á Houston, Golden State og Memphis. Bryant var með 33,0 stig að meðaltali í leik auk þess að gefa 6.3 stoðsendingar og spila í 38,0 mínútur að meðaltali. Kobe skoraði yfir 30 stig í 3 af 4 leikjum vikunnar en besti leikurinn hans var á móti Golden State Warriors þegar hann skoraði 39 stig og gaf 7 stoðsendingar. Aðrir leikmenn sem komu einnig til greina sem leikmenn vikunnar voru eftirtaldir: Carlos Boozer hjá Chicago Bulls, Roy Hibbert hjá Indiana Pacers, Blake Griffin hjá Los Angeles Clippers, Chris Bosh hjá Miami Heat, Kevin Love hjá Minnesota Timberwolves, Kevin Durant hjá Oklahoma City Thunder, Jrue Holiday hjá Philadelphia 76ers, Steve Nash hjá Phoenix Suns, LaMarcus Aldridge hjá Portland Trailblazers og Richard Jefferson hjá San Antonio Spurs.
NBA Mest lesið Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel Körfubolti Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Íslenski boltinn „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Handbolti „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Fram 3-1 | Verðskuldaður sigur Eyjamanna Íslenski boltinn Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Enski boltinn Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Alfreð kom öllum á óvart með vali sínu Handbolti Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum Íslenski boltinn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn Fleiri fréttir „Mjög auðveld aðlögun fyrir mig“ Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Hvergerðingar í úrslit umspilsins „Þjöppuðum okkur saman og kláruðum þetta“ Jón Axel og félagar upp í spænsku úrvalsdeildina Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 73-76 | Njarðvíkur-sigur í spennutrylli Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Fyrrum nýliði ársins í NBA reynir fyrir sér í hnefaleikum „Þessar stelpur kalla ekki allt ömmu sína“ „Vonandi nær maður að grípa í einn svona bikar“ Hörður undir feldinn Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum „LeBron þarf að fara í P. J. Washington hlutverkið“ Stólarnir afar öflugir þegar glittir í lokaúrslitin Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 Sjá meira