Noregur
46 47 48 49 ›
Í það minnsta 91 fallinn í Noregi Norska lögreglan hefur staðfest að a.m.k. 91 hafi fallið í hryðjuverkaárásunum í Noregi í gær. Þar af féllu 84 í skotárásinni í Útey. Þetta staðfesti lögreglustjórinn Øystein Mæland á blaðamannafundi um klukkan hálffjögur í nótt. Hann segir þó tölu látinna að öllum líkindum eiga eftir að hækka. Erlent 23.7.2011 02:29
Meintur byssumaður nafngreindur Norska sjónvarpsstöðin TV 2 fullyrðir að Norðmaðurinn sem var handtekinn í dag fyrir skotárásina í Útey í Noregi heiti Anders Behring Breivik. Hann er sagður tilheyra hægriöfgahreyfingu á austurhluta Noregs. Hann er sagður vera skráður fyrir tveimur skotvopnum. Sjálfvirkri byssu og skammbyssu af gerðinni Glock. Maðurinn er grunaður um að hafa banað minnst 10 manns í Útey Erlent 22.7.2011 23:59
Sendiherrann í Noregi: Það setur að okkur óhug við tíðindin "Það setur að okkur óhug við þessi miklu tíðindi. Þetta er í fyrsta skipti sem svo alvarlegt tilræði á sér stað í Noregi frá seinni heimsstyrjöldinni. Efst í huga okkar á þessari stundu er að ganga úr skugga um að engir Íslendingar hafi komið við sögu. Við munum hafa opið fram eftir svo lengi sem við teljum gagn að því,“ sagði Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Ósló, skömmu eftir hryðjuverkaárásina í gær. Innlent 22.7.2011 22:51
Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. Erlent 22.7.2011 23:20
Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. Erlent 22.7.2011 22:54
Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. Erlent 22.7.2011 22:07
Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. Innlent 22.7.2011 21:41
Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. Erlent 22.7.2011 20:53
Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. Innlent 22.7.2011 20:33
Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. Erlent 22.7.2011 20:14
Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. Erlent 22.7.2011 19:47
Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. Erlent 22.7.2011 19:06
Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. Erlent 22.7.2011 18:17
Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. Erlent 22.7.2011 18:04
Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Erlent 22.7.2011 17:51
Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. Erlent 22.7.2011 17:22
Óttast að fjórir hafi farist í skotárásinni Óttast er að hið minnsta kosti fjórir fórust í skotárás í sumarbúðum í Utøya í Noregi nú um klukkan fjögur að íslenskum tíma. Minnst fimm manns eru særðir eftir árásina, segir norska ríkisútvarpið. Lögreglan hefur ekki staðfest tölu látinna. Erlent 22.7.2011 16:48
Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. Erlent 22.7.2011 16:32
Fimm skotnir í sumarbúðum í Noregi Fimm voru skotnir í skotárás í sumarbúðum í Noregi fyrir stundu. Ekki er vitað hvort þeir sem skotnir voru séu lífs eða liðnir. Erlent 22.7.2011 16:22
Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. Innlent 22.7.2011 15:56
Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. Erlent 22.7.2011 15:50
Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. Erlent 22.7.2011 15:30
Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. Innlent 22.7.2011 15:19
Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. Innlent 22.7.2011 14:38
Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. Erlent 22.7.2011 14:04
Játar að hafa myrt mömmu Leifs Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem grunaður er um að myrða mömmu hins íslenska Leifs Magnúsar Grétarssonar í bænum Mandal Noregi, hefur játað að bera ábyrgð á andláti hennar. Aftenposten segir að hann hafi játað við yfirheyrslur í morgun. Hann gengst hins vegar ekki við því að hafa framið morðið að yfirlögðu ráði. Innlent 6.4.2011 14:20
Kynlíf með dýrum algengt í Noregi Landbúnaðarráðherra Noregs vill banna með lögum að fólk stundi kynlíf með dýrum. Það er leyfilegt í Noregi eins og sakir standa. Erlent 16.11.2007 10:14