Írak

Fréttamynd

Hermönnum fjölgað um tólf þúsund

Að minnsta kosti sextán létust og tugir manna slösuðust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Bandarísk hernaðaryfirvöld stefna nú að því fjölga í hersetuliði sínu um tólf þúsund til að tryggja ástandið. Þá verða 150 þúsund bandarískir hermenn við störf í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Nýtt Abu Grahib hneyksli?

Bandarísk hernaðaryfirvöld kanna nú myndir sem virðast sýna sérsveitarmenn flotans beita írakska fanga pyntingum. Þær þykja minna um margt á hinar óhugnanlegu myndir frá Abu Grahib fangelsinu í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Ellefu lögreglumenn drepnir

Vopnaðir uppreisnarmenn réðust inn á lögreglustöð í vesturhluta Bagdad í Írak í morgun. Þeir kveiktu í fimm lögreglubílum og að sögn sjónvarvotta létust ellefu lögreglumenn í árásinni. Lögreglustöðin er við þjóðveg í útjaðri Bagdad en fara þarf um hann þegar farið er á alþjóðaflugvöllinn í Bagdad.

Erlent
Fréttamynd

25 Írakar hafa fallið í morgun

Tuttugu og fimm Írakar féllu í árásum hryðjuverkamanna í morgun, þar af ellefu lögreglumenn. Sjálfmorðsárás var gerð á mosku sjíta í Bagdad við föstudagsbæn. Fyrr í morgun gerði hópur hryðjuverkamanna árás á lögreglustöð í suðvesturhluta borgarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Blóðugur dagur í Bagdad

Hryðjuverkamenn myrtu nær þrjátíu manns þegar þeir létu til skarar skríða með tveimur árásum í Bagdad. Abu Musab al-Zarqawi, sem Bandaríkjamenn og Írakar freistuðu að ná með árásinni á Falluja, lýsti árásunum á hendur sér.

Erlent
Fréttamynd

Fjölga hermönnum um tólf þúsund

Bandaríkjastjórn ætlar að fjölga hermönnum í Írak um tólf þúsund fyrir kosningarnar sem áætlaðar eru 30. janúar. Hermennirnir eru 138 þúsund í dag en verða 150 þúsund þegar kosningarnar fara fram og hafa ekki verið fleiri síðan George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að meiriháttar átökum væri lokið.

Erlent
Fréttamynd

Vissu af misþyrmingum fyrir ári

Háttsettir herforingjar í Bandaríkjaher voru varaðir við því fyrir ári síðan að sérsveitarmenn og leyniþjónustumenn misþyrmdu föngum í Írak. Viðvaranirnar birtust í leynilegri skýrslu en þrátt fyrir hana hefur yfirstjórn Bandaríkjahers haldið því fram að henni hafi fyrst orðið kunnugt um misþyrmingarnar í byrjun þessa árs.

Erlent
Fréttamynd

Starfa fyrir breskt fyrirtæki

Íslendingarnir tveir sem fóru til starfa í Írak fyrir mánuði voru í þjálfun í Bretlandi í sumar. Þeir sinna öryggisgæslu á vegum bresks fyrirtækis en slík störf geta verið mjög hættuleg.

Innlent
Fréttamynd

Danskur herforingi fær dóm

Fyrrverandi foringi í leyniþjónustu danska hersins hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að leka innihaldi leyniskýrslu um gereyðingarvopn í Írak. Foringinn, Frank Grevil, sakaði einnig Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra um að hafa logið til þess að afla stuðningi við innrásina í Írak.

Erlent
Fréttamynd

40 manns drukkna í Írak

Að minnsta kosti fjörutíu manns drukknuðu í Írak í morgun þegar þeir reyndu að komast yfir beljandi á nyrst í landinu á pramma. Skyndilegur vatnselgur skolaði þeim af prammanum á andartaki. Aðeins fjórir komust lífs af að sögn sjónarvotta.

Erlent
Fréttamynd

Ísland ekki af listanum

Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki vita til þess að ríkisstjórnin ætli að endurskoða stuðning sinn við innrásina í Írak. Hún segir ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins í Silfri Egils í gær hafa komið sér á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í 20 þúsund borgarar látnir

1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Erlent
Fréttamynd

12 látnir eftir sjálfsmorðsárás

Að minnsta kosti tólf létust og tíu eru særðir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan írakska lögreglustöð í útjaðri Ramadí-borgar í Írak í morgun. Að sögn talsmanns sjúkahússins þangað sem hinir særðu voru fluttir eru um 90% fórnarlambanna lögreglumenn.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjudrunur í Bagdad

Sprengjudrunur heyrast víða í Bagdadborg nú um stundir en engar fréttir hafa borist af særðum eða látnum. Öflug sprenging kvað við í miðborginni fyrir stuttu og fréttamaður Reuters í borginni segist sjá reyk stíga upp til himins norðan við Græna svæðið svokallaða þar sem meðal annars er aðsetur hernámsliðsins og bráðabirgðastjórnar Íraks.

Erlent
Fréttamynd

80 uppreisnarmenn handsamaðir

Hundruð breskra hermanna réðust á bækisstöðvar meintra stuðningsmanna Saddams Hússeins nærri Bagdad í Írak í morgun en hersveitir hafa undanfarna daga reynt að knésetja uppreisnarmenn suður af höfuðborginni. Áttatíu Írakar voru handsamaðir og hald lagt á tæki sem talin eru vera til sprengjugerðar.

Erlent
Fréttamynd

Tilraunastofa til efnavopnagerðar

Tilraunastofa til efnavopnagerðar hefur fundist í Fallujah-borg í Írak að sögn utanríkisráðherra landsins, Kassims Daouds. Hernámsliðið náði borginni á sitt vald, eða svo gott sem, á dögunum með því að ráðast gegn skæruliðum sem höfðu borgina í herkví og í kjölfarið uppgötvaðist þessi tilraunastofa.

Erlent
Fréttamynd

Aukið hungur kemur ekki á óvart

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir skýrslu um aukna vannæringu íraskra barna ekki koma á óvart. Hann telur ástand í landinu þó betra en áður en ráðist var inn. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir niðurstöðurnar skelfilegar

Erlent
Fréttamynd

80% skuldanna felld niður

Rússar hafa samþykkt að fella niður 80 prósent skulda Íraka sem hljóða upp á um það bil 125 milljarða dollara. Þetta er haft eftir bandarískum embættismanni en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að skuldirnar verði felldar niður.

Erlent
Fréttamynd

Ghazi Allawi sleppt úr gíslingu

Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember.

Erlent
Fréttamynd

Frænda Allawis sleppt?

Mannræningjarnir sem rændu frænda Iyads Allawis, forsætisráðherra Íraks, létu hann lausan í dag að sögn arabískrar sjónvarpsstöðvar. Talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki geta staðfest fréttirnar í samtali við Reuters-fréttastofuna. Frænda forsætisráðherrans var rænt fyrr í mánuðinum.

Erlent
Fréttamynd

Fleiri lík finnast

Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið.

Erlent
Fréttamynd

Kosningar í Írak 30. janúar

Kosninganefnd Íraks ákvað í morgun dagsetningu á fyrirhugaðar kosningar í landinu og var ákveðið að Írakar gangi að kjörborðinu þann 30. janúar næstkomandi. Mikil óöld ríkir í landinu og margir fréttaskýrendur hafa talið óvarlegt að boða til kosninga að svo komnu máli á meðan ekki hefur tekist að ná tökum á uppreisnarhópum víðs vegar um landið.

Erlent
Fréttamynd

Boðað til kosninga í Írak

Boðað hefur verið til þingkosninga í Írak þrítugasta janúar á næsta ári þrátt fyrir það upplausnarástand sem ríkir í landinu. Dagsetningin fyrir kosningarnar var kunngerð í dag en fyrirfram höfðu margir haft uppi varnaðarorð og efast um að kosningar geti verið óhlutdrægar við núverandi kringumstæður.

Erlent
Fréttamynd

Aftökurnar halda áfram

Írakskir hryðjuverkamenn myrtu í dag enn tvo gísla sína og settu aftöku þeirra á Netið. Að þessu sinni voru fórnarlömbin tveir Kúrdar sem morðingjarnir segja að hafi tilheyrt lýðræðisflokki þjóðflokksins. Sá flokkur er annar af tveimur stjórnmálahreyfingum Kúrda sem á aðild að bráðabirgðastjórninni í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Deilt um skuldir Íraka

Ríkustu þjóðum heims gengur erfiðlega að ná samkomulagi um hvort og hversu mikið af skuldum Íraka þær felli niður. Erlendar skuldir Íraka eru um 122 milljarðar króna og hafa þeir beðið um niðurfellingu á þeim þar sem byrðin sé að sliga landið og hindra eðlilega uppbyggingu.

Erlent
Fréttamynd

Endurbætur í Fallujah

Bandarískir hermenn vinna nú að því að koma aftur á vatni, rafmagni og öðrum nauðsynlegum þjónustuþáttum í lag í borginni Fallujah í Írak. Það gæti tekið tímann sinn því Fallujah er nánast í rúst eftir bardagana undanfarnar vikur. Bandaríkjamenn treysta sér ekki til þess að segja til um hvenær íbúarnir, sem flúðu bardagana, geti snúið aftur. </font />

Erlent
Fréttamynd

Tugur fallinn í morgun

Skæruliðar vopnaðir sjálfvirkum rifflum og sprengjuvörpum börðust við bandarískar og írakskar hersveitir í hverfum súnní-múslima í Bagdad í morgun. Að minnsta kosti sjö skæruliðar féllu og þrír lögreglumenn.

Erlent
Fréttamynd

Kosningarnar í uppnámi?

Herskár íslamskur hópur ógnar væntanlegum frambjóðendum og kjósendum í fyrirhuguðum kosningum í Írak í janúar. Hópurinn hótar því að hver sá múslimi sem bjóði sig fram í kosningum verði refsað í nafni guðs.

Erlent
Fréttamynd

Andspyrnan brotin á bak aftur

Talsmenn Bandaríkjahers segja að andspyrna í borginni Fallujah í Írak hafi nú verið brotin á bak aftur. Uppreisnarmenn láta þó enn til sín taka og hóta þeim ofbeldi sem taka þátt í boðuðum kosningum í janúar.

Erlent
Fréttamynd

Ágreiningur um Íraksstríðið

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að vissulega sé ágreiningur milli Breta og Frakka um réttmæti Íraksstríðsins en það sé bara ágreiningur.

Erlent