Björgunarsveitir
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 45 ›
Fótbrotin kona sótt að gosstöðvum við Fagrafell Síðdegis í dag var björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík kölluð út vegna konu sem hafði dottið og fótbrotnað á gönguleiðinni að gosstöðvunum við Fagrafell. Vegna langs biðtíma eftir þyrlu var konan ferjuð niður af fjallinu á óvenjulegan máta. Innlent 16.6.2023 21:19
Notuðu þyrlu, dróna og sporhund við leit að sofandi dreng Lögregla og björgunarsveitarfólk kom að umfangsmikilli leit að níu ára dreng í Vatnaskógi í nótt. Sá hafði horfið frá sínum stað í sumarbúðunum KFUM og KFUK í Vatnaskógi en fannst svo nokkrum klukkustundum síðar undir sæng hjá vini sínum. Innlent 15.6.2023 15:14
Björgunarsveitarmenn lánuðu konum jakkana sína Björgunarsveitarfólk frá Stefáni í Mývatnssveit kom hópi ferðamanna til aðstoðar á Hlíðarfjalli í gærkvöldi. Fólkið hafði villst út af hefðbundinni gönguleið og komið sér í sjálfheldu undir klettabelti. Nokkurn tíma tók að koma fólkinu niður fjallið og björgunarsveitarmenn voru svo almennilegir að lána tveimur konum úr hópnum jakkana sína, enda var þeim farið að kólna talsvert. Innlent 14.6.2023 22:31
Björguðu ferðamanni í sjálfheldu í Þakgili Björgunarsveitir frá Vík í Mýrdal og Álftaveri voru kallaðar út á níunda tímanum í kvöld vegna ferðamanns, sem hafði villst út af gönguleið í Þakgili undir Mýrdalsjökli og var kominn í sjálfheldu. Innlent 6.6.2023 23:46
Smábátur strandaði við Arnarstapa Smábátur strandaði skammt innan við Arnarstapa á tíunda tímanum í kvöld. Einn var um borð í bátnum og hann komst í land af sjálfsdáðum og var fluttur á sjúkrastofnun á Ólafsvík. Innlent 5.6.2023 23:53
Björgunarsveit kölluð út vegna fótbrots á Snæfellsnesi Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var kölluð út skömmu eftir klukkan fimm í dag vegna tilkynningar um fótbrot manns sem var á ferð um Rauðfeldsgjá á Snæfellsnesi. Innlent 3.6.2023 17:39
Björgunarsveitarmenn festu sig við björgunartilraun Um miðjan dag í dag barst Landsbjörgu hjálparbeiðni frá fólki sem hafi fest jeppa sinn í Leirvogsá í Mosfellsbæ. Ekki fór betur en svo að bíll á vegum björgunarsveitar festist einnig í ánni. Innlent 29.5.2023 17:14
Bílar fuku af veginum í Öræfum Nokkur vandræði sköpuðust á Öræfu í morgun þar sem bílar fuku út af veginum vegna mikils hvassviðris. Sérstaklega var hvasst við Fjallsárlón en í tilkynningu frá Landsbjörg segir að ferðafólk hafi almennt verið í vandræðum. Innlent 24.5.2023 15:48
Björgunarsveitirnar lausar við útköll í hvassviðrinu Engar tilkynningar hafa komið inn á borð björgarsveitanna vegna hvassviðrisins sem gekk á landið í gær. Innlent 24.5.2023 10:12
Sóttu fótbrotinn sjómann út af Snæfellsnesi Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í morgun beiðni um aðstoð á sjó. Þá hafði maður í áhöfn togskips út af Snæfellsnesi fótbrotnað þegar skipið fékk á sig brotsjó. Innlent 21.5.2023 08:41
Ekki hægt að bjarga bátnum og hann látinn brenna „Hann var látinn brenna, það var lítið annað hægt að gera.“ Innlent 19.5.2023 14:07
Lést þegar hann féll í fjöruna við Arnarstapa Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri lést þegar hann féll fram af björgum við Arnarstapa á Snæfellsnesi í gær. Ekki tókst að komast að manninum fyrr en tæpri klukkustund eftir að tilkynning barst vegna erfiðra aðstæðna á slysstað. Innlent 19.5.2023 10:44
Alvarlegt slys á Arnarstapa Björgunarsveitarfólk frá Hellissandi tók þátt í miklum aðgerðum á Arnarstapa vegna alvarlegs slyss sem varð þar í gær. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um slysið. Innlent 19.5.2023 10:16
Ferðalangar í ógöngum og alelda bátur við Stykkishólm Nokkrar björgunarsveitir voru kallaðar út í gær vegna tveggja tilvika þar sem ferðalangar lentu í vandræðum á göngu. Þá barst útkall vegna báts sem varð alelda rétt utan við Stykkishólm. Innlent 19.5.2023 10:11
Vanmátu aðstæður þegar þrír féllu útbyrðis í prufusiglingu slöngubáts Vanmat á aðstæðum er talin ástæða þess að tveir björgunarsveitarmenn og sölumaður slöngubáts féllu útbyrðis þegar verið var prufukeyra slöngubát af gerðinni SeaRanger í Víkurfjöru í nóvember síðastliðinn. Mennirnir komust allir í land af sjálfsdáðum. Innlent 16.5.2023 09:06
Árekstur og húsbíll sem þveraði veginn Að minnsta kosti einn árekstur varð á Fjarðarheiði í kvöld sökum vetrarfærðar. Þá hafa þó nokkrir bílar verið skildir eftir á heiðinni og fólk flutt niður af heiðinni til Seyðisfjarðar. Innlent 14.5.2023 23:17
Voru sextán klukkustundir að ná konunni af jöklinum Um klukkan þrjú í gær óskaði hópur gönguskíðafólks á Vatnajökli eftir aðstoð viðbragðsaðila eftir að kona úr hópnum hafði fengið sleða sem hún dró á eftir sér í höfuðið. Björgunarsveitir héldu af stað úr tveimur áttum, en þegar komið var á staðinn þar sem talið var að fólkið væri, bólaði ekkert á hópnum. Innlent 14.5.2023 13:57
Skíðagöngufólkið er fundið Hópur skíðagöngufólks, sem leitað hafði verið frá því um klukkan 15 í dag, er fundinn. Í kvöld náðist samband við fólkið en langan tíma tók að fá staðsetningu þeirra staðfesta. Ástand fólksins er gott miðað við aðstæður, það var komið í tjöld og enginn kennir sér meins nema konan sem fékk sleða í höfuðið í dag. Innlent 13.5.2023 23:24
Skíðafólkið á Vatnajökli finnst ekki Síðdegis í dag óskaði hópur gönguskíðafólks á Vatnajökli eftir aðstoð viðbragðsaðila eftir að kona úr hópnum datt og fékk sleða, sem hún var með í eftirdragi, í höfuðið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang ásamt björgunarsveitarfólki frá Höfn í Hornarfirði. Þegar björgunarsveitin kom að þeim stað þar sem talið var að hópurinn væri bólaði ekkert á honum. Nú er víðtæk leit hafin að fólkinu. Innlent 13.5.2023 19:54
Þyrlusveitin reynir að sækja slasaða skíðakonu Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar nú síðdegis vegna skíðaslyss á Grímsfjalli í Vatnajökli. Þyrlusveit gæslunnar er á leið á vettvang en óvíst er hvort hún komist að slysstað vegna veðurs. Innlent 13.5.2023 17:37
Samkomulag um aðkomu ríkis í fjármögnun fimm nýrra skipa Samkomulag um aðkomu ríkisins í fjármögnun á fimm nýjum björgunarskipum var undirritað á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þegar hafði verið samið um smíði þriggja nýrra skipa, tvö þeirra hafa verið afhent og von er á þriðja í haust. Innlent 13.5.2023 16:15
Slasaðist þegar hann féll niður bratta við Hvítserk Ferðamaður slasaðist nokkuð þegar hann féll niður bratta brekku niður í fjöru við Hvítserk í dag. Maðurinn var með meðvitund þegar björgunarfólk kom á staðinn. Til stóð að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík. Innlent 10.5.2023 20:06
Einsamall maður á vélarvana smábát fékk aðstoð Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Þór í Vestmannaeyjum, kom smábát til aðstoðar um hádegi í dag. Smábáturinn hafði misst vélarafl undan Kötlutanga, í grennd við Vík í Mýrdal. Beiðni um aðstoð kom á ellefta tímanum og lagði áhöfn Þórs af stað fljótlega eftir það. Innlent 9.5.2023 15:30
Leituðu að hring en fundu bíl Hringur sem maður á þrítugsaldri týndi á dögunum í Reykjavíkurtjörn fannst ekki við nánari leit í dag. Hins vegar fannst fullt annað, þar á meðal annar hringur. Ákveðið hefur verið að ljúka leitinni í bili. Innlent 9.5.2023 14:49
Komu lekum strandveiðibát til bjargar Áhöfn björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Bjargar á Rifi, kom í dag strandveiðibát til bjargar sem leki hafði komið að. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Innlent 8.5.2023 17:33
Leituðu að hring látinnar frænku í Reykjavíkurtjörn Maður á þrítugsaldri tapaði hring sínum er hann var að gefa öndunum í Reykjavíkurtjörn brauð. Kallað var eftir aðstoð björgunarsveitar til að leita að hringnum. Kafarar sem áttu lausa stund mættu á vettvang en leitin bar ekki árangur. Innlent 8.5.2023 15:20
Kölluð út eftir að ekki náðist samband við strandveiðibát á Faxaflóa Sjóbjörgunarsveit og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út klukkan 12:45 eftir að strandveiðibátur í Faxaflóa datt úr sjálfvirkri tilkynningaskyldu Landhelgisgæslunnar og ekki náist samband við bátinn í gegnum síma. Innlent 8.5.2023 13:32
Hundrað manns tóku þátt í æfingu Landhelgisgæslunnar Umfangsmikil æfing Landhelgisgæslunnar, slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins og annarra helstu björgunaraðila fór fram á Faxaflóa í dag. Að sögn æfingastjóra eru æfingar sem þessar mikilvægur liður í að samhæfa verklag allra sem koma að björgunaraðgerðum á sjó. Innlent 6.5.2023 18:30
Komu hlaupara til aðstoðar í Vestmannaeyjum Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út í dag til að hjálpa hlaupara sem virðist hafa dottið á hlaupum. Hlauparinn var að taka þátt í Puffin Run sem fram fór í Vestmannaeyjum í dag. Hlauparinn var fluttur til aðhlynningar. Innlent 6.5.2023 17:55
Drógu tvo strandveiðibáta til hafnar Sjóbjörgunarsveitir aðstoðuðu tvo vélarvana strandveiðibáta, annan fyrir utan Vestmannaeyjar en hinn í Faxaflóa, í morgunsárið. Bátarnir voru báðir dregnir til næstu hafnar. Innlent 2.5.2023 09:00