Innlent

Segir ÍR að slökkva á skiltinu

Árni Sæberg skrifar
Auglýsingaskiltiið hefur staðið lengi á sínum stað og aflað ÍR mikilvægra tekna.
Auglýsingaskiltiið hefur staðið lengi á sínum stað og aflað ÍR mikilvægra tekna. Vísir/Anton Brink

Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur krafist þess að Íþróttafélags Reykjavíkur slökkvi á ljósaskilti á horni Breiðholtsbrautar og Seljaskóga í Breiðholti. Í kæru sinni til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir ÍR að skiltið sé mikilvæg tekjulind fyrir barna- og unglingastarf félagsins.

Í kæru ÍR segir að félagið fari fram á að ákvörðun byggingarfulltrúa um að félagið skuli slökkva á LED-skilti á horni Breiðholtsbrautar og Seljaskóga verði felld úr gildi. Skiltið hafi staðið þarna árum saman, hafi fyrst verið flettiskilti en síðar uppfært í nútímatækni, það er gert stafrænt og félagið telji að það sé heimild fyrir því í samþykktum Reykjavíkurborgar um skilti frá maí 2020. 

Borgin hefði nefnt heimildarskort fyrr væri hann til staðar

„Ef væri ekki heimild fyrir skiltinu væri borgin búin að nefna það í fyrri samskiptum. Í framhaldi af samkomulagi ÍR og borgarinnar frá maí 2016 ætlar borgin að finna skiltinu nýjan stað þar sem trjágróður á núverandi stað er að skerða sýnleika skiltisins og þar með virðið, en auglýsingatekjur af skiltinu er mikilvæg tekjulind fyrir barna- og unglingastarf félagsins.“ 

Skiltið stendur við gatnamót Breiðholtsbrautar og Seljaskóga.Vísir/Anton Brink

Síðla árs 2023 hafi félagið fylgt þessu samkomulagi eftir og óskað eftir að skoðaðar yrðu leiðir til að auka sýnileika skiltisins og í bréfi dagsettu 18. janúar 2024 frá skipulagsfulltrúa komi fram að þegar sé heimild fyrir þessu skilti í deiliskipulagi og hvergi nefnt að neitt leyfi vantaði fyrir skiltinu á núverandi stað.

Skipti mjög miklu máli

Niðurstaðan hafi verið að ekki væru gerðar skipulagslegar athugasemdir við að ÍR léti vinna að breytingu á deiliskipulagi til að heimila færslu á því innan lóðar. Hvergi hafi komið fram athugasemdir við skiltið og núverandi staðsetningu. Í ljósi ofangreindra upplýsinga óski ÍR eftir að byggingarfulltrúi endurskoði þá ákvörðun sína að slökkva þurfi á skiltinu.

Loks segir í kafla kærunnar um hagsmuni kæranda að ákvörðun byggingarfulltrúa hafi mjög mikil áhrif á hagsmuni félagsins. Ef slökkt yrði á skiltinu töpuðust leikutekjur, sem skipti félagið miklu máli fyrir barna- og unglingastarf félagsins.


Tengdar fréttir

Eigendum gert að fjarlægja skilti við Hvalfjarðargöng

Eigendum auglýsingaskiltis, sem hefur staðið í aldarfjórðung við norðurenda Hvalfjarðarganga, hefur verið gert að fjarlægja það. Skiltið hefur verið þrætuepli í Hvalfjarðarsveit um árabil.

Skilti Skúbbs þarf að fjúka í nágrannadeilum sem líkt er við stríð

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Skúbb ísgerðar um að fella úr gildi ákvörðun þess efnis að ísbúð Skúbbs, við Laugarásveg í Reykjavík, sé skylt að fjarlægja ljósaskilti við verslunina. Eigendur ísbúðarinnar segja nágranna heyja stríð gegn sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×