Fjármálafyrirtæki
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 58 ›
Umboðsmaður spyr um hæfi Bjarna vegna Íslandsbankasölunnar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. Innlent 3.3.2023 10:11
Fólk geti grætt umtalsvert með einu símtali til bankans Verðbólga er komin yfir tíu prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár. Markaðsaðilar spá enn einni stýrivaxtahækkuninni í næsta mánuði og útlit er fyrir að verðbólgan verði þrálát. Dósent í fjármálum segir mikilvægt að fólk sem á pening á bankareikningum kanni hvort vextir á þeirra reikningum séu þeir bestu. Einstaklingur með tíu milljónir króna á almennum veltureikningi gæti grætt hálfa milljón á ári við það eitt að færa peninginn yfir á hagstæðari bankareikning. Viðskipti innlent 27.2.2023 20:00
Verðbólguþrýstingurinn meiri og almennari en spár gerðu ráð fyrir Verðbólgan jókst annan mánuðinn í röð og er nú komin yfir tíu prósent, þvert á væntingar greiningaraðila. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þetta áhyggjufulla þróun og að greiningaraðila þurfi að endurskoða forsendur fyrir sínum spám. Hættan á að verðbólgan verði þrálát og vextir hækki sé að aukast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir annarri stýrivaxtahækkun. Viðskipti innlent 27.2.2023 15:32
Agnar kemur inn í stjórn Íslandsbanka sem fulltrúi Bankasýslunnar Agnar Tómas Möller, sem starfaði síðast sem sjóðstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, kemur nýr inn í stjórn Íslandsbankabanka en bankinn á núna í viðræðum um samruna við Kviku. Er hann tilnefndur af Bankasýslunni, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, en stofnunin fer núna með þrjá stjórnarmenn í stað fjögurra áður. Innherji 22.2.2023 19:46
Ný bílalán í methæðum árið 2022 og Arion sópaði til sín hlutdeild Ný bílalán banka til heimila námu ríflega 24 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aldrei verið meiri á einu ári. Ekki eru enn komin fram merki um að vaxtahækkanir síðustu missera hafi haft afgerandi áhrif á eftirspurn eftir bílalánum. Innherji 22.2.2023 14:51
Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18
Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14
Guðjón hættir hjá Arion banka Guðjón Kjartansson, sem hefur verið í fyrirtækjaráðgjöf Arion um nokkurt skeið, hefur sagt upp störfum hjá bankanum. Klinkið 20.2.2023 19:01
Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. Innherji 20.2.2023 11:58
„Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“ Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi. Neytendur 18.2.2023 15:01
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31
Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku. Neytendur 17.2.2023 11:23
Innistæðueigendur leggja minnst 21 milljón af mörkum til ESG Innistæður á grænum innlánsreikningum Arion banka eru í miklum vexti. Samkvæmt nýbirtri sjálfbærniskýrslu bankans hefur safnast rúmlega 21 milljarður á grænu reikningana en til samanburðar stóðu grænu innlánin í 8 milljörðum króna í lok árs 2021. Klinkið 16.2.2023 11:32
Kvika muni sjá til lands í samrunaviðræðum við Íslandsbanka „fyrr en seinna“ Hagnaður Kviku á fjórða ársfjórðungi eftir skatt minnkaði um rúmlega milljarð króna á fjórða ársfjórðungi og nam 1.613 milljónum sem skilaði sér í arðsemi á efnislegt eigið fé upp á 15,3 prósent. Afkoman litaðist af einskiptiskostnaði en forstjóri Kviku segir rekstur fjórðungsins hafa verið þann besta á liðnu ári og hann býst við að niðurstaða muni fást í viðræðum bankans um mögulegan samruna við Íslandsbanka innan ekki of langs tíma. Innherji 16.2.2023 08:20
Björn nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka Björn Björnsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka. Hann mun hefja störf þann 6. mars næstkomandi. Viðskipti innlent 15.2.2023 16:43
Truflanir í netbönkum vegna bilunar Bilun er nú í kerfum Reiknistofu bankanna sem veldur því að truflanir eru í greiðsluaðgerðum í netbönkum. Viðskipti innlent 13.2.2023 08:30
Hækkandi álag á bankabréfin „gróf verulega“ undan gjaldeyrismarkaðinum Seðlabankastjóri segjast hafa væntingar um að gengi krónunnar hafi náð lágmarki og það muni styrkjast þegar líður á árið. Mikil hækkun vaxtaálags á skuldabréf bankanna í erlendri mynt hafði talsverð neikvæð áhrif á gjaldeyrismarkaðinn á síðustu mánuðum ársins 2022 en nú er útlit fyrir að sú staða sé að breytast til hins betra. Innherji 11.2.2023 13:59
Ljóst að bankinn hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“ Finnur Árnason, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir ljóst að bankinn, sem ráðgjafi í sölunni á 22,5 prósenta hlut ríkisins í mars 2022, hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“. Innherji 10.2.2023 13:38
Samruni bankanna hefði „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“ Bankastjóri Íslandsbanka segir að samruni við Kviku sé „áhugavert tækifæri“ og myndi meðal annars hafa „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“. Verði af sameiningu bankanna er gert ráð fyrir því að viðskiptin færu fram að öllu leyti með skiptum á hlutabréfum, fremur en að hluta með greiðslu reiðufjár. Innherji 10.2.2023 10:48
Siggeir og Albert frá Landsbankanum til Arion Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Viðskipti innlent 10.2.2023 09:10
Arion hagnaðist um fimm milljarða Arion banki hagnaðist um rúma fimm milljarða króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Á sama tímabili árið 2021 var hagnaðurinn rúmir 6,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 8.2.2023 23:47
Endurreikna lán og hafa samband staðfesti æðri dómstólar dóminn Landsbankinn reiknar líkt og Neytendasamtökin með að áfrýja dómi þess efnis að bankinn skuli greiða hjónum tvö hundruð þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Komist æðri dómstólar að sömu niðurstöðu ætlar bankinn að eiga frumkvæði að því að endurreikna öll lán sem falli undir fordæmið. Neytendur 8.2.2023 14:41
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður enn eina stýrivaxtahækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,5 prósentustig. Viðskipti innlent 8.2.2023 09:00
Stóru samlegðartækifærin á bankamarkaði liggja í gegnum Kviku Útlit er fyrir frekari samruna á fjármálamarkaði þar sem stjórnendur keppast við að leita leiða til hagræðingar á tímum hækkandi launakostnaðar og erfiðari markaðsaðstæðna. Sum af stærri fjármálafyrirtækjum landsins hafa að undanförnu mátað sig við hvort annað sem hefur nú leitt til þess stjórn að Íslandsbanka, sem fundar á morgun, mun væntanlega samþykkja ósk Kviku banka um að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Óformlegt samtal um að sameina Kviku og Arion banka, sem margir höfðu spáð fyrir um, skiluðu ekki árangri en blessun frá Samkeppniseftirlitinu við slíkum bankasamruna gæti reynst þrautin þyngri. Innherji 8.2.2023 06:00
Landsbankinn tapaði máli sem gæti varðað um 70 þúsund lán Landsbankanum hefur verið gert að greiða hjónum um 200 þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Málið var rekið fyrir héraðsdómi með stuðningi Neytendasamtaka sem telja að um 70 þúsund sambærileg lán hafi verið tekin á undanförnum árum. Komist var að öndverðri niðurstöðu í sambærilegu máli gegn Arion banka. Viðskipti innlent 7.2.2023 18:54
Samruni myndi styrkja lánshæfi bæði Kviku og Íslandsbanka, segir Moody´s Verði af samruna Kviku og Íslandsbanka þá mun það hafa jákvæð áhrif á lánshæfi beggja bankanna. Kvika myndi verða hluti af mun stærri bankaeiningu, sem ætti að draga meðal annars úr rekstraráhættu, og fyrir Íslandsbanka yrði það til þess fallið að breikka enn frekar tekjustrauma bankans, að mati alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækisins Moody´s. Innherji 4.2.2023 15:54
Sturlaðar staðreyndir um græðgi! Yfirdráttarvextir eru 13,75% hjá öllum þremur bönkunum. Vextir greiddir út mánaðarlega þannig að raunverulega eru vextirnir 14,65%. Dráttarvextir hjá SÍ eru 13,75%. Dráttarvextir greiddir á tólf mánaða fresti. 1 m.kr. í yfirdrátt á ári þá eru vextir bankanna 146.505 kr. ef þeir væru á dráttarvöxtum þá væru vaxtagjöldin 137.500 eða 11.500 kr. lægri á ári. Skoðun 3.2.2023 13:01
Bréf bankanna hækka um fimm prósent fyrir áformaðar samrunaviðræður Umtalsverð utanþingsviðskipti voru með hlutabréf allra bankanna í Kauphöllinni eftir lokun markaða í gær í kjölfar þess að Kvika sagðist hafa óskað eftir því að hefja samrunaviðræður við Íslandsbanka. Hlutabréfaverð Kviku og Íslandsbanka í þeim viðskiptum var allt að um fimm prósentum hærra en það stóð í gær. Innherji 3.2.2023 09:30
Yrði stærsti samruni sögunnar en óvissan er um Samkeppniseftirlitið Ritstjóri Innherja áætlar að samruni Íslandsbanka og Kviku yrði sá stærsti í Íslandssögunni, ef af honum yrði. Hann segir ljóst að Samkeppniseftirlitið muni taka langan tíma í meðferð málsins. Það muni gera athugasemdir við ákveðna samrunans. Viðskipti innlent 2.2.2023 20:37