Kvenleiðtogar Flokks fólksins sagðir sæta niðrandi og fyrirlitlegri framkomu Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins, telur sig knúinn til að óska eftir stjórnarfundi þar sem hann vill að teknar verði fyrir ásakanir um andlegt ofbeldi og kynferðislegt áreiti sem kvenleiðtogar Flokks fólksins á Akureyri hafa mátt þola. Innlent 13. september 2022 09:55
Afar ólík viðbrögð við fyrirspurn um aðfarargerðir á heilbrigðisstofnunum Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, virðist ekki vilja svara því beint hvort hann telji forsvaranlegt að aðfarargerðir til að koma á umgengni, lögheimili og/eða forsjá séu framkvæmdar á heilbrigðisstofnunum. Innlent 13. september 2022 07:57
„Gamaldags skattahækkun“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, gagnrýnir áform stjórnvalda um að hækka vörugjöld á bifreiðum. Hann segir að reikna megi að verð á rafbílum hækki um 600.000 krónur til milljónar á bifreið á næsta ári. Innlent 12. september 2022 22:30
Boðar breytingar á löggjöf um sjávarútveg á næstunni Matvælaráðherra boðar breytingar á sjávarútvegslöggjöfinni og það muni koma fram í málaskrá Alþingis á næstu vikum. Þá sé verið að vinna að heildarstefnumörkun í fiskeldi sem sé því miður ekki til í stjórnkerfinu. Innlent 12. september 2022 19:30
Þau sömu og finni mest fyrir verðbólgunni séu látin taka skellinn í baráttunni gegn henni Ríkisstjórnin ákveður með nýju fjárlagafrumvarpi að láta þau sömu og finna mest fyrir verðbólgunni taka skellinn í baráttunni gegn verðbólgunni að mati Jóhanns Páls Jóhannssonar, þingmanni Samfylkingarinnar. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, telur að ríkisstjórnin skjóti sig í báðar fætur með frumvarpinu. Innlent 12. september 2022 19:26
Gagnrýna hækkun hæstu áfengisskatta í Evrópu „Ríkisstjórnin hjálpar ekki til í baráttunni við verðbólguna þegar hún bætir í gjöld sem hækka almennt verðlag,“ segir framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um hækkun áfengisgjalda í nýjum fjárlögum. Viðskipti innlent 12. september 2022 18:04
Ráðuneytið spyrst fyrir um aðkomu Jóns Björns að ráðningu á sjálfum sér Innviðaráðuneytið sendi sveitarstjórn Fjarðabyggðar erindi í upphafi mánaðar þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna ráðningar Jóns Björn Hákonarsonar í embætti sveitarstjóra í sumar. Ráðuneytið segir það vera álitamál hvort að kjörnum fulltrúum, í þessu tilviki Jóni Birni, sé heimilt að taka til máls á bæjarstjórnarfundi og greiða atkvæði með ráðningarsamningi sem viðkomandi á sjálfur aðild að. Innlent 12. september 2022 15:06
Óhófsfólk á brennivín látið stoppa í götin Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segist greina dauðastríð ríkisstjórnarinnar í nýju fjárlagafrumvarpi. Innlent 12. september 2022 14:57
Staðfesta stjórnunar-og verndaráætlun fyrir „þjóðargersemi“ Í nýstaðfestri stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins eru leiðir kynntar til að tryggja að markmið friðlýsingarinnar frá 2020 nái fram að ganga. Áhersla erlögð á verndun, ferðamennsku og vísindarannsóknir. Umhverfisráðherra segir áætlunina mikilvægan áfanga. Geysissvæðið hafi sérstaka þýðingu fyrir alla landsmenn og reyndar gjörvalla heimsbyggðina. Innlent 12. september 2022 13:08
Kristrún segir ekkert sótt í feita sjóði fyrir heimilin Þrátt fyrir neyðaróp fær heilbrigðiskerfið enga sérsaka athygli í fjárlögum að mati þingmanns Samfylkingar. Hún kallar eftir breytingum á fjármagnstekjuskatti sem gætu fjármagnað aðgerðir fyrir heimilin í mikilli verðbólgu. Innlent 12. september 2022 11:57
Inn-, útvistun eða blanda af hvoru tveggja Útvistanir til einkaaðila hafa gengið misvel auk þess sem útvistanir geta leitt til lægri launa, verra starfsumhverfis og verri þjónustu. Flestir eru sammála um að einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er t.d. engin töfralausn. Skoðun 12. september 2022 11:31
Útgjaldaaukning mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála Útgjaldaaukning til velferðarmála er mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála að sögn fjármálaráðherra sem kynnti fjárlög ársins 2023 í dag. Ráðherra kom það að sögn á óvart hve góðar og langt umfram spár efnahagshorfurnar eru á þessari stundu. Innlent 12. september 2022 11:09
Ábyrgðin á Sælukoti liggur hjá Reykjavíkurborg Í viðtali á Bylgjunni við Elínu Halldórsdóttur leikskólastjóra á Sælukoti, þann 9. september síðastliðinn, kemur fram að rekstrarstjóri Sælukots sé nunna í Ananda Marga samtökunum sem vinnur mikla sjálfboðavinnu og óeigingjarnt starf. Skoðun 12. september 2022 11:00
Ráðherrar kasta á milli sín heitri (franskri) kartöflu Félag atvinnurekenda sendi Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra erindi 24. ágúst síðastliðinn og hvatti þau til að beita sér fyrir niðurfellingu 76% tolls, sem lagður er á innfluttar franskar kartöflur. Skoðun 12. september 2022 10:31
Hækka lágmark bifreiða- og vörugjalda Breytingar verða gerðar á vörugjaldi við innflutning ökutækja samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var fjölmiðlum í dag. Þá verða einnig gerðar breytingar á bifreiðagjaldi en tekjur ríkissjóðs vegna þessara flokka hefur dregist saman síðustu ár. Bílar 12. september 2022 10:22
Hækka gjald á áfengi og tóbak Gert er ráð fyrir að hækka gjald á áfengi og á tóbak sem selt er í tollfrjálsum verslunum, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í morgun. Gert er ráð fyrir að hækkunin skili sér í tekjum fyrir ríkissjóð upp á 700 milljónir króna. Neytendur 12. september 2022 10:15
Verðbólgan ein sú lægsta í Evrópu Verðbólgan á Íslandi er ein sú lægsta meðal Evrópuríkja samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag. Þó er mikilvægt að standa vörð um hana. Viðskipti innlent 12. september 2022 09:58
Gert ráð fyrir 89 milljarða króna halla Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 89 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætluð um 1.296,5 milljarðar á árinu 2023, sem er hækkun um 78,5 milljarða frá fjárlögum fyrra árs. Innlent 12. september 2022 09:21
Bjarni kynnir fjárlagafrumvarp fyrir árið 2023 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023 á blaðamannafundi í ráðuneyti sínu við Arnarhvol. Innlent 12. september 2022 08:01
Laufey hættir hjá Sjálfstæðisflokknum Laufey Rún Ketilsdóttir hefur sagt upp sem starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur gegnt starfinu undanfarin þrjú ár en hún segir tímann leiða í ljós hver næstu skref verða. Innlent 12. september 2022 07:23
Ragnhildur Alda og Einar eignuðust dóttur Dóttir Ragnhildar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Einars Friðrikssonar læknakandídats kom í heiminn síðastliðinn mánudag. Fæðingin tók 26 klukkustundir en móður og barni heilsast mjög vel. Lífið 11. september 2022 19:15
True Detective verður stærsta kvikmyndaverkefni Íslandssögunnar Gert er ráð fyrir að tökur á fjórðu þáttaröð bandarísku sjónvarpsþáttanna True Detective muni taka níu mánuði og framleiðslukostnaður verði um níu milljarðar króna. Viðskipti innlent 11. september 2022 18:41
Á sandi byggði heimskur maður hús Það sem einkennir gjarnan okkar ágæta samfélag er að málin eru oft leyst með skammtalækningum í stað þess að hugsa til framtíðar. Núna, sem fyrr koma foreldrar og mótmæla stöðunni í leikskólamálum hjá borginni vegna þess að börn þeirra komast ekki inn í skólana. Skoðun 11. september 2022 18:02
Bjarni ekki stressaður fyrir skýrslunni um Íslandsbanka Fjármálaráðherra kveðst enn þeirrar skoðunar að íslenska ríkið eigi að selja þann 100 milljarða króna hlut sem það á eftir í Íslandsbanka. Hann segir að færð hafi verið ágæt rök fyrir því að rannsókn Ríkisendurskoðunar hafi tekið sinn tíma og vonast eftir uppbyggilegum ábendingum úr væntanlegri skýrslu. Innlent 11. september 2022 16:01
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. Innlent 10. september 2022 21:28
Sjálfstæðismenn gagnrýna biðraðir í mötuneytinu Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði til að ráðist verði í stafræna umbreytingu við skráningu á máltíðum starfsmanna Reykjavíkurborgar í ráðhúsinu og á Höfðatorgi á fundi borgarráðs á fimmtudag. Starfsmenn borgarinnar þurfa að handskrá kennitölur sínar, eða jafnvel skrifa þær niður, til þess að fá hádegismat. Innlent 10. september 2022 20:54
Boðar til aðhaldsaðgerða í fjárlagafrumvarpi næsta árs Fjármálaráðherra hefur ákveðið að draga úr stuðningi við stjórnmálaflokka um fimm prósent á næsta ári og grípa til annarra viðlíka aðhaldsaðgerða til að vinna bug á verðbólgunni. Ráðherrann mun kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á mánudaginn. Innlent 10. september 2022 13:55
Aðalatriðið að „flýta sér hægt“ þegar kemur að eignarhaldi Ljósleiðarans Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og formaður borgarráðs, segir að hún sé „í prinsippinu“ fylgjandi því að skoða breytingar á eignarhaldi opinberra fyrirtækja í samkeppnisrekstri. Slíkar breytingar taki þó tíma og hugmyndir um breytt eignarhald á Ljósleiðaranum hafi ekki enn komið formlega á borð Reykjavíkurborgar. Innherji 9. september 2022 15:41
Horfa þurfi á tækifærin og möguleikana sem felist í því að taka á móti erlendu vinnuafli Til skoðunar er að einfalda fólki utan evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað að vinna að sögn félagsmálaráðherra. Vonandi sé hægt að stíga mikilvæg skref í þá áttina á næstu misserum en of snemmt sé að segja til um mögulegt frumvarp. Mikilvægt sé að innflytjendur geti aðlagast íslensku samfélagi með farsælum hætti og vinna þurfi gegn því að hér verði tvær þjóðir. Innlent 9. september 2022 15:00
Eðlilegra að hafa embættið þar sem mannfjöldinn er mestur Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það koma á óvart að ákveðið hafi verið að sameinað embætti sýslumanns Íslands verði á Húsvík. Eðlilegra sé að hafa embættið þar sem mesti mannfjöldinn er. Innlent 9. september 2022 13:07