Phil Jackson í heiðurshöllina Körfuboltaþjálfarinn Phil Jackson var um helgina vígður inn í bandarísku heiðurshöllina í körfubolta og hlaut hann þennan heiður strax við fyrstu tilnefningu. Jackson hefur unnið níu meistaratitla sem þjálfari og einn sem leikmaður. Hann vann titil með New York sem leikmaður og sex með Chicago og þrjá með Lakers sem leikmaður. Körfubolti 10. september 2007 09:05
Allan Houston 90% viss um að snúa aftur Skotbakvörðurinn Allan Houston segist nú vera 90-95% viss um að taka skóna fram á ný í NBA deildinni í vetur. Houston er bókaður á lokaðar æfingar hjá nokkrum óuppgefnum liðum á næstu dögum og segist vera búinn að ná sér að fullu af hnémeiðslum sem neyddu hann til að hætta að spila fyrir tveimur árum. Hann er 36 ára gamall og hefur verið orðaður hvað sterkast við Dallas og Cleveland. Körfubolti 6. september 2007 14:41
Shaquille O´Neal skilur við konu sína Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat í NBA deildinni hefur sótt um skilnað við konu sína Shaunie, en þau hafa verið gift í tæp fimm ár. Saman eiga þau fimm börn og hætt er við að lögmenn þeirra hafi nóg að gera á næstunni því O´Neal rakar inn um 1,3 milljörðum króna í árslaun og þá eru aðeins talin laun hans hjá Heat. Hús þeirra hjóna hefur verið sett á sölu í Miami og kostar það litla tvo milljarða króna. Körfubolti 5. september 2007 12:25
NBA dómari gæti átt yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm Tim Donaghy, fyrrverandi dómari í NBA deildinni hefur játað sig sekan um að hjálpa tveimur félögum sínum að veðja á leiki sem hann dæmdi sjálfur. Donaghy veitti þeim trúnaðarupplýsingar eins og um líkamlegt ástand sérstakra leikmanna og hvaða dómarar myndu dæma hvaða leiki. Donaghy getur átt allt að 25 ára fangelsi yfir höfði sér, en búist er við vægari dómi vegna samstarfs hans við saksóknara í málinu. Donaghy hefur verið leystur úr haldi gegn tæplega 17 milljóna króna tryggingargjaldi. Körfubolti 15. ágúst 2007 16:45
FBI rannsakar dómara í NBA deildinni NBA deildin titrar nú eftir að New York Post greindi frá því fyrir helgina að FBI væri að rannsaka meint tengsl dómara í deildinni við mafíuna. Dómarinn heitir Tim Donaghy og hefur hann þegar sagt starfi sínu lausu, en hann á að hafa beitt sér fyrir að hagræða úrslitum í leikjum á síðustu tveimur árum.. Hann hefur enn ekki verið fundinn sekur, en verði svo, yrði það gríðarlegur álitshnekkur fyrir deildina. Körfubolti 21. júlí 2007 13:06
Oberto framlengir við meistarana Argentínski miðherjinn Fabricio Oberto hefur framlengt samning sinn við NBA meistara San Antonio Spurs. Ekki hefur verið gefið upp hve langur samningurinn er, en Oberto var í byrjunarliði Spurs í 12 af 20 leikjum liðsins í úrslitakeppninni í vor. Hann setti félagsmet í nóvember á síðasta ári þegar hann hitti úr öllum 11 skotum sínum utan af velli í leik gegn Phoenix Suns og skoraði 22 stig. Körfubolti 18. júlí 2007 19:30
Marbury ætlar að feta í fótspor David Beckham Leikstjórnandinn Stephon Marbury hjá New York Knicks í NBA deildinni segist ætla að feta í fótspor David Beckham þegar samningur hans við New York rennur út eftir tvö ár. Hann segist vera búinn að ákveða að reyna þá fyrir sér á Ítalíu þar sem hann ætlar að setjast að með fjölskyldu sinni. Körfubolti 18. júlí 2007 16:39
Durant neitaði fjögurra milljarða tilboði Adidas Framherjinn Kevin Durant hjá Seattle Supersonics neitaði á dögunum rúmlega fjögurra milljarða samningstilboði frá íþróttavöruframleiðandanum Adidas og ákvað að halda sig við Nike. Þar fær hann "aðeins" 3,6 milljarða samning fyrir að leika í skóm frá fyrirtækinu næstu sjö árin og þar af fær hann rúmar 600 milljónir beint í vasann við undirritun. Durant var valinn númer tvö í nýliðavalinu í NBA á dögunum. Körfubolti 18. júlí 2007 16:15
Yao Ming gagnrýndur harðlega í Kína Íþróttaráðið í Kína gagnrýnir miðherjann Yao Ming harðlega í nýjustu útgáfu China Sports Daily sem er málgagn ráðsins í landinu. Ming er gagnrýndur fyrir að koma seint til æfinga með landsliðinu og þar setja menn stórt spurningamerki við það hve miklum tíma hann eyðir í að sinna einkalífinu. Þetta þykir ekki bera vott um hollustu við þjóðina. Körfubolti 18. júlí 2007 14:14
Yi fær ekki að spila með Milwaukee Kínverski framherjinn Yi Jianlian mun ekki fá að spila með liði Milwaukee Bucks í NBA deildinni ef maka má nýjustu fréttir frá Kína. Jianlian var valinn númer sex af Milwaukee í nýliðavalinu á dögunum en hefur enn ekki skrifað undir samning við félagið vegna þrýstings frá heimalandi sínu. Málið er að verða hið vandræðalegasta og stefnir í að David Stern forseti NBA deildarinnar þurfi nú að skerast í leikinn. Körfubolti 17. júlí 2007 13:54
Jackson og Artest fá sjö leikja bann Fyrrum samherjarnir Stephen Jackson hjá Golden State og Ron Artest hjá Sacramento í NBA deildinni, voru á dögunum dæmdir í sjö leikja bann af deildinni fyrir að komast í kast við lögin utan vallar. Leikmannasamtökin íhuga nú að áfrýja þessum dómi, en Ron Artest er mjög upptekinn við að laga ímynd sína þessa dagana. Körfubolti 17. júlí 2007 13:42
Mourning ætlar að spila eitt ár í viðbót Miðherjinn Alonzo Mourning hjá Miami Heat í NBA deildinni hefur tilkynnt að hann ætli að spila eitt ár til viðbótar með liðinu. Mourning hafð legið undir feldi í allt sumar en sagði ljótt tap liðsins gegn Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í vor vera helstu ástæðu þess að hann hafi ekki geta lagt skóna á hilluna. Körfubolti 17. júlí 2007 13:35
Orlando fjárfestir fyrir 12 milljarða Forráðamenn NBA liðsins Orlando Magic hafa ekki setið auðum höndum undanfarna daga og fjárfesta nú grimmt. Í dag skrifaði miðherjinn Dwight Howard undir nýjan samning við félagið sem sagður er vera til fimm ára og upp á um 85 milljónir dollara. Körfubolti 12. júlí 2007 19:33
Oden spilar ekki meira í sumardeildinni Miðherjinn Greg Oden getur ekki spilað meira í sumardeildinni í NBA því hann þarf að fara í aðgerð til að láta taka úr sér hálskirtlana. Oden var valinn númer eitt af Portland í nýliðavalinu á dögunum og þykir mikið efni. Hann hefur alls ekki náð sér á strik í sumardeildinni til þessa og kennir veikindum sínum um úthaldsleysi sitt. Körfubolti 11. júlí 2007 17:06
Francis keyptur út hjá Portland Fjölmiðlar í Bandaríkjunum greina frá því í morgun að bakvörðurinn Steve Francis muni verða keyptur út úr samningi sínum hjá Portland Trailblazers fyrir um 30 milljónir dollara. Francis var skipt til Portland frá New York á dögunum, en félagið hefur ekki í hyggju að nota leikstjórnandann. Körfubolti 11. júlí 2007 15:15
Vopnaðir menn rændu Antoine Walker Framherjinn Antoine Walker hjá Miami Heat í NBA deildinni lenti í óskemmtilegri reynslu í gærkvöldi þegar vopnaðir ræningjar stálu öllu steini léttara í íbúð hans í Chicago. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Walker er rændur á ferli sínum í NBA. Körfubolti 10. júlí 2007 16:45
Nýliðarnir ryðgaðir í byrjun Nýliðarnir Greg Oden hjá Portland og Kevin Durant hjá Seattle voru boðnir velkomnir í NBA deildina á dögunum þegar þeir spiluðu sína fyrstu leiki í sumardeildinni. Oden og Durant voru valdir númer 1 og 2 í nýliðavalinu um daginn og eru miklar vonir bundnar við þá á næstu árum. Körfubolti 7. júlí 2007 13:30
Nocioni gerir fimm ára samning við Bulls Argentínumaðurinn Andres Nocioni hjá Chicago Bulls hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið upp á um 38 milljónir dollara, en samningurinn verður ekki tilkynntur formlega fyrr en 11. júlí. Nocioni skoraði 14 stig og hirti 5,7 fráköst fyrir Chicago í vetur. Hann er 27 ára gamall framherji og spilar með landsliði Argentínu. Körfubolti 7. júlí 2007 13:18
Billups nær samningum við Detroit ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í nótt að leikstjórnandinn Chauncey Billups hafi náð samkomulagi við Detroit Pistons um að framlengja samning sinn við félagið um 5-6 ár og fái fyrir það 60 milljónir dollara. Umboðsmaður Billups hafði áður vísað svipuðum fréttum á bug. Körfubolti 7. júlí 2007 13:13
Kobe Bryant baðst afsökunar Stórstjarnan Kobe Bryant hjá LA Lakers segist hafa beðið framkvæmdastjóra félagsins afsökunar á ummælum sínum fyrir fimm vikum þegar hann heimtaði að fara frá félaginu. Bryant hefur ekki dregið ósk sína til baka, en segist hafa hlaupið aðeins á sig vegna óþolinmæði í garð forráðamanna félagsins. Körfubolti 7. júlí 2007 12:57
Grant Hill semur við Phoenix Framherjinn Grant Hill sem leikið hefur með Orlando Magic í NBA deildinni síðustu ár skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Phoenix Suns. Hill var með lausa samninga hjá Orlando en gengur nú til liðs við Steve Nash og félaga þar sem hann mun spila fyrir algjör lágmarkslaun næstu tvö árin. Körfubolti 5. júlí 2007 20:30
Stórskyttan Navarro á leið til Washington Spænska stórskyttan Juan Carlos Navarro hjá körfuboltaliði Barcelona hefur fengið sig lausan undan samningi við félagið og hefur ákveðið að ganga í raðir Washington Wizards í NBA deildinni. Washington átti réttinn á hinum 27 ára gamla Navarro sem segir það draum fyrir sig að fá að reyna sig meðal þeirra bestu. Körfubolti 4. júlí 2007 20:48
Carlesimo tekur við Seattle Supersonics Seattle Supersonics í NBA deildinni virðist nú loksins hafa tekist að ráða sér þjálfara ef marka má fréttir frá Bandaríkjunum. Félagið hefur enn á ný leitað í raðir NBA meistara San Antonio til að ná sér í mannskap því í nótt gengur það frá ráðningu PJ Carlesimo, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Spurs síðustu fimm ár. Körfubolti 4. júlí 2007 20:07
Grant Hill tekur ákvörðun í vikunni Framherjinn Grant Hill ætlar að taka ákvörðun um framtíð sína í NBA deildinni fyrir helgi, en hann er með lausa samninga eftir að hafa leikið með Orlando undanfarin ár. Phoenix þykir líklegasta félagið til að landa Hill en Detroit, San Antonio, Miami og Dallas hafa einnig borið víurnar í þennan reynda kappa. Körfubolti 4. júlí 2007 20:01
Darko úti í kuldanum Umboðsmaður Darko Milicic hjá Orlando Magic er ekki sáttur við forráðamenn NBA-liðsins eftir að þeir drógu til baka fyrirhugað tilboð um framlengingu á samningi hans. Orlando hefur boðið Rashard Lewis svo háan samning að óvíst er hvort félagið nær að halda Milicic í kjölfarið. Körfubolti 4. júlí 2007 19:54
Rashard Lewis samþykkir að fara til Orlando Magic Framherjinn Rashard Lewis hjá Seattle Supersonics hefur tjáð forráðamönnum Orlando Magic að hann vilji skrifa undir samning við félagið. Lewis er með lausa samninga hjá Seattle í sumar eftir að hafa skorað yfir 22 stig að meðaltali fyrir Seattle síðasta vetur. Körfubolti 3. júlí 2007 12:44
Carter leysir sig undan samningi við Nets Rod Thorn, forseti New Jersey Nets, tilkynnti í gær að körfuboltakappinn Vince Carter hafi nýtt sér ákvæði í samning sínum og sé búinn að leysa sig undan samningi við liðið. Körfubolti 1. júlí 2007 14:48
Portland valdi Oden í nýliðavali NBA Nýliðavalið í NBA körfuboltanum fór fram í gærkvöldi sem er það sterkasta í mörg ár. Portland Trail Blazers, sem höfðu fyrsta valrétt, veðjuðu á miðherjann Greg Oden sem var valinn besti varnarleikmaðurinn í háskólakörfuboltanum í vetur. Hann er sagður besti stóri maðurinn til að koma inn í NBA deildina síðan Tim Duncan árið 1997. Körfubolti 29. júní 2007 12:36
Portland ætlar að velja Greg Oden ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að hún hafi heimildir fyrir því að Portland Trailblazers ætli að nota fyrsta valrétt sinn í nýliðavali NBA í nótt til að velja miðherjann Greg Oden frá Ohio State háskólanum. Fastlega er reiknað með því að Seattle Supersonics muni þá taka Kevin Durant frá Texas með öðrum valrétti sínum. Körfubolti 28. júní 2007 11:28
Wallace með lausa samninga Framherjinn Gerald Wallace hjá Charlotte Bobcats verður með lausa samninga hjá liðinu á sunnudaginn eftir að hann ákvað í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við félagið. Wallace verður væntanlega eftirsóttur á næstu dögum eftir frábært tímabil í fyrra. Körfubolti 26. júní 2007 22:00