Rúmlega þrjú þúsund sóttu um hjá Play Alls sóttu um þrjú þúsund manns um stöður hjá Play þegar flugfélagið auglýsti eftir 150 flugliðum og 55 flugmönnum á dögunum. Viðskipti innlent 7. október 2022 09:58
Úr ytra eftirliti með Kviku banka í innra eftirlit Ásta Leonhardsdóttir hefur verið ráðin í starf innri endurskoðanda Kviku banka hf. og hefur hún nú þegar hafið störf. Viðskipti innlent 7. október 2022 09:43
Áttföldun á fjórum árum Fyrirtæki og stjórnendur hafa mikinn hag af því að gefa sér ráðrúm til að finna sín Tempo verkefni. Ég er sannfærður um að margs konar þekking verður til í fyrirtækjum sem getur nýst langt umfram fyrirtækið sjálft. Tempo varð til í kringum vandamál sem starfsfólk Nýherja stóð frammi fyrir. Umræðan 7. október 2022 08:30
Verðmetur Solid Clouds á tvo milljarða Jakobsson Capital verðmetur tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds á um tvo milljarða króna eða 10,9 krónur á hlut. Það er um þriðjungur yfir markaðsvirði. Gert er ráð fyrir að helmings líkur séu á að nýi leikurinn muni ganga eins og vonast er til. Innherji 6. október 2022 15:09
Taka upp áætlunarflug til Las Palmas Icelandair hefur hafið sölu á flugi til Las Palmas á Gran Canaria sem er nýr áfangastaður í leiðakerfi félagsins. Viðskipti innlent 6. október 2022 11:22
Bætir við sig öðrum áfangastað í Portúgal Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til borgarinnar Porto í Portúgal. Viðskipti innlent 6. október 2022 10:32
Hlutabréfaverð Origo hækkar um 20 prósent eftir söluna á Tempo Gengi hlutabréfa Origo hefur rokið upp í Kauphöllinni í morgun eftir að félagið tilkynnti seint í gærkvöldi um sölu á öllum 40 prósenta eignarhlut sínum í Tempo fyrir um 28 milljarða króna. Áætlaður söluhagnaður Origo vegna viðskiptanna er um 22 milljarðar. Innherji 6. október 2022 09:47
Ekki tíminn núna fyrir arðgreiðslur hjá bönkunum, segir seðlabankastjóri Umrót á erlendum fjármála- og lánamörkuðum þýðir að meiri ástæða en ella er fyrir íslensku viðskiptabankanna að gæta betur að lausafjárstöðu sinni. Eftir mikla útlánaþenslu eru merki um að bankarnir séu farnir að draga úr lánum sínum til fyrirtækja en þrátt fyrir að þeir standi afar sterkt, með betri eiginfjárstöðu en flestir evrópskir bankar, þá verða þeir að „leggja áherslu á gætni“ við þessar aðstæður, að sögn seðlabankastjóra. Innherji 6. október 2022 07:00
Origo selur hlut sinn í Tempo á 28 milljarða Íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur gengið frá skuldbindandi samkomulagi um sölu á öllum 40 prósenta hlut sínum í Tempo fyrir 195 milljónir Bandaríkjadala í reiðufé, jafnvirði um 28 milljarða króna. Kaupandinn er bandaríski tæknifjárfestingarsjóðurinn Diversis Capital en söluandvirði hlutarins er næstum jafn mikið og núverandi markaðsvirði allrar Origo-samstæðunnar í Kauphöllinni. Innherji 5. október 2022 22:11
Íslenskir sjóðir fjárfestu í Alvotech fyrir á fimmta milljarð Fjögur stærstu íslensku sjóðastýringarfélögin fjárfestu í Alvotech fyrir samtals vel yfir fjóra milljarða króna í aðdraganda þess að líftæknilyfjafyrirtækið var skráð á markað hér heima og í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum. Sjóðir opnir almennum fjárfestum í rekstri Íslandssjóða, dótturfélagi Íslandsbanka, voru þar umsvifamestir. Innherji 5. október 2022 08:08
Bættu við sig í Íslandsbanka fyrir á þriðja milljarð króna Helstu lífeyrissjóðir landsins halda áfram að stækka stöðugt hlutabréfastöðu sína í Íslandsbanka og í liðnum mánuði má ætla að þeir hafi bætt við sig bréfum í bankanum fyrir samtals meira en 2,5 milljarða króna. Innherji 4. október 2022 17:30
Tinna orðin sérfræðingur í sjálfbærni hjá Klöppum Klappir grænar lausnir hafa ráðið Tinnu Hallgrímsdóttur til starfa. Hún mun gegna stöðu sérfræðings í sjálfbærni hjá fyrirtækinu. Grænar lausnir Klappa miða meðal annars að því að hjálpa fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum að byggja upp innviði á sviði upplýsingatækni til að takast á við miklar áskoranir sem framundan eru í umhverfismálum, ekki síst vegna alþjóðlegra skuldbindinga um að draga úr mengun. Viðskipti innlent 4. október 2022 13:07
Flýja hlutabréf vegna óvissu og lækkana á erlendum mörkuðum Þótt efnahagshorfurnar hér á landi séu um margt betri en í okkar helstu viðskiptalöndum þá hafa verðlækkanir á íslenska hlutabréfamarkaðinum í mörgum tilfellum verið meiri en þekkist erlendis og er Úrvalsvísitalan niður um 15 prósent frá því um miðjan september. Áframhaldandi sala erlendra sjóða, aukin skortsala og hrina veðkalla gagnvart skuldsettum fjárfestum skýrir meðal annars þróunina að undanförnu, að sögn viðmælenda Innherja. Innherji 4. október 2022 07:00
Líkur á innflæði gjaldeyris vegna vaxtamunarviðskipta hafa aukist Vaxtamunur Íslands við útlönd, einkum til skamms tíma, hefur aukist talsvert á árinu samhliða því að Seðlabanki Íslands hefur hækkað vexti sína nokkru meira en í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu. Innherji 3. október 2022 11:00
Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. Erlent 2. október 2022 11:08
Þjóðarsjóður Kúveit selur meira en helming bréfa sinna í Arion Þjóðarsjóður Kúveit, einn stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu í heiminum, hefur á skömmum tíma minnkað verulega við eignahlut sinn í Arion banka. Sjóðurinn var áður einn stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi bankans með tæplega eins prósenta hlut. Innherji 1. október 2022 14:02
Stjórn Símans vill greiða nær allt söluandvirði Mílu út til hluthafa Á hluthafafundi sem stjórn Símans hefur boðið til verður lögð fram tillaga um lækkun hlutafjár félagsins með greiðslu til hluthafa upp á 31,5 milljarða króna, sem nánast allt reiðuféð sem fjarskiptafélagið fékk fyrir söluna á Mílu. Jafnframt er til skoðunar að selja eða greiða út til hluthafa 17,5 milljarða króna skuldabréf sem var hluti af sölunni. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. Innherji 30. september 2022 12:48
Ógleymanleg ferð til Kúbu með VITA Tónlistin, vindlarnir, rommið og hvítar strendurnar á ævintýraeyjunni Kúbu eru nú loksins aftur innan seilingar því VITA býður nú beint flug með Icelandair. Farið verður þann 19. nóvember í vikuferð undir fararstjórn Kristins R. Ólafssonar og Stefáns Ásgeirs Guðmundssonar og gist bæði í höfuðborginni Havana og strandbænum Varadero. Lífið samstarf 30. september 2022 09:03
Vanguard keypti fyrir tvo milljarða í Arion banka Bandaríska sjóðastýringarfélagið Vanguard fer með tæplega 0,8 prósenta eignarhlut í Arion eftir að hafa fjárfest í bankanum samhliða því að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja í byrjun síðastu viku. Innherji 29. september 2022 18:31
Nýtt björgunarskip styttir viðbragðshraða um helming Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar kom til hafnar í Reykjavík í morgun. Um er að ræða fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg hefur fest kaup á en með komu þeirra styttist viðbragðstími björgunarsveita á sjó um helming. Innlent 29. september 2022 13:07
Margrét fær ekki endurgreitt og ætlar í hart við Icelandair Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsins Frettin.is, fær ekki endurgreitt frá Icelandair eftir að henni var vísað úr flugvél félagsins í lögreglufylgd í síðustu viku. Hún segist munu fara með málið fyrir dómstóla en Icelandair segir starfsfólk ekki átt annarra kost á völ en að fylgja henni frá borði. Innlent 29. september 2022 10:33
Lífeyrissjóðir með helmingi minni hlut í Mílu en þeim stóð til boða að kaupa Takmörkuð aðkoma sumra af stærstu lífeyrissjóðum landsins við kaup á hlutum í Mílu í samfloti með franska sjóðastýringarfélaginu Ardian þýðir að samanlagður eignarhlutur sjóðanna í fjarskiptafyrirtækinu verður talsvert minni en áður var áætlað. Íslensku lífeyrissjóðirnir munu tilnefna fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Símanum sem fulltrúa sinn í stjórn Mílu eftir að viðskiptin klárast. Innherji 29. september 2022 07:01
„Sé hina vélina skuggalega nálægt“ „Þetta var alveg mikill skellur,“ segir Evalilja Bjarnadóttir, ein þeirra farþega sem sátu í flugvél Icelandair sem lenti í árekstri á Heathrow fyrr í kvöld. Innlent 28. september 2022 22:35
Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri við vél frá Koreanair á flugvellinum Heathrow í London í í kringum klukkan átta í kvöld. Enginn slasaðist og engar tafir eru á flugum til og frá flugvellinum. Innlent 28. september 2022 21:11
Rannsóknin sé ítarleg og muni taka af allan vafa Seðlabankastjóri segir að rannsókn Fjármálaeftirlits bankans á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka muni taka af allan vafa hvort innherjaupplýsingar hafi verið nýttar í tengslum við yfirvofandi útboð bankans. Allir þættir málsins verði skoðaðir. Viðskipti innlent 28. september 2022 13:09
Forstjóri Brims kallar eftir nýrri aðferðafræði við útreikninga á kvótaþaki Forsendur fyrir útreikningi á samanlögðum aflheimildum einstakra sjávarútvegsfyrirtækja eru óskilvirkar vegna þess forsendur þorskígildisstuðla eru rangar og hafa verið í langan tíma. Þetta er mat Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims. Innherji 28. september 2022 11:24
Rannsakar hlutabréfaviðskipti dagana fyrir útboð Íslandsbanka Rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka fyrr á árinu beinist meðal annars að mögulega óeðlilegum viðskiptum á hlutabréfamarkaði yfir tveggja daga tímabil áður en útboðið kláraðist. Eftirlitið hefur kallað eftir ítarlegum gögnum frá söluráðgjöfunum um samskipti þeirra við viðskiptavini sína dagana 21. og 22. mars síðastliðinn. Innherji 28. september 2022 07:00
Yngvi ráðinn forstjóri Sýnar Yngvi Halldórsson er nýr forstjóri Sýnar. Hann tekur við starfinu af Heiðari Guðjónssyni sem tilkynnti um starfslok á dögunum. Yngvi hefur undanfarin þrjú ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Sýnar. Viðskipti innlent 27. september 2022 16:00
Hægir á innlausnum fjárfesta úr innlendum hlutabréfasjóðum Fjórða mánuðinn í röð dró lítillega úr innlausnum fjárfesta úr íslenskum hlutabréfasjóðum en stöðugt útflæði hefur verið úr slíkum sjóðum, rétt eins og í öðrum verðbréfasjóðum, samtímis miklum óróa og verðlækkunum á mörkuðum á síðustu mánuðum. Frá því í lok febrúar, þegar innrás Rússa hófst í Úkraínu, nemur nettó útflæði úr verðbréfasjóðum samanlagt um 23 milljörðum. Innherji 27. september 2022 14:59
Guðrún tekur við af Ástu sem framkvæmdastjóri Krónunnar Guðrún Aðalsteinsdóttir rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar og hefur hún störf í dag. Hún tekur við af Ástu Sigríði Fjeldsted sem var ráðin forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, fyrr í mánuðinum. Viðskipti innlent 27. september 2022 12:36