Katrín og Þórdís Kolbrún virða fyrir sér eyðilegginguna í Bucha Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru þessa stundina í bænum Bucha í Úkraínu til að kynna sér aðstæður. Rússneskar hersveitir frömdu fjöldamorð á óbreyttum borgurum í upphafi innrásarinnar í febrúar og mars í fyrra. Innlent 14. mars 2023 09:20
Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Bucha Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru komnar til Úkraínu eftir um sólarhrings ferðalag frá Íslandi. Þær og fylgdarlið þeirra komu með næturlest til ótilgreinda staðar snemma í morgun. Innlent 14. mars 2023 07:55
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. Erlent 13. mars 2023 15:23
Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Úkraínu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru á leið til Kænugarðs í Úkraína til fundar við Volodymyr Zelensky forseta landsins og aðra ráðamenn. Meðal annars verður rætt um þátttöku Úkraínu á leiðtogafundi Evrópuráðsríkja sem fram fer í Reykjavík í maí. Innlent 13. mars 2023 11:32
Segja Rússa viljandi láta Wagner blæða í Bakhmut Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War telur ósættið milli stjórnvalda í Rússlandi og Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner málaliðahópsins, hafa náð hámarki. Erlent 13. mars 2023 07:13
Rússar halda uppi öflugum hryðjuverkaárásum á borgir í Úkraínu Forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir ekki hægt að líða stöðugar sprengjuárásir Rússa á Kjarnorkuverðið í Zaporizhhia sem varð án rafmagns í sjötta sinn í nótt. Að minnsta kosti fimm óbreyttir borgarar féllu í stórfelldum eldflaugaárásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Erlent 9. mars 2023 19:41
Umfangsmiklar loftárásir víðsvegar um Úkraínu Allt að 40 prósent af íbúum Kænugarðs eru án hita eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa á skotmörk víðsvegar í landinu. Árásirnar virðast meðal annars hafa beinst gegn orkuinnviðum og hafa valdið rafmagnsleysi í Kharkív, Odessa og víðar. Erlent 9. mars 2023 06:22
Segja rússneska björninn búinn á því Avril D. Haines, æðsti yfirmaður leyniþjónustusamfélags Bandaríkjanna, sagði bandarískum öldungadeildarþingmönnum í dag að rússneski herinn hefði líklega ekki burði til að leggja undir sig mikið meira landsvæði í Úkraínu á þessu ári. Þess í stað séu þeir líklegir til að byggja upp varnir og reyna að halda þeim svæðum sem þeir hafa náð. Erlent 8. mars 2023 19:44
Í „vægu áfalli“ vegna gleðifrétta um ríkisborgararétt Andrei Menshenin, rússneskur blaðamaður sem staðið hefur fyrir mótmælum fyrir utan rússneska sendiráðið í þágu Úkraínumanna, er á meðal þeirra 17 einstaklinga sem eru á lista frumvarps til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Hann kveðst vera í vægu áfalli vegna gleðitíðindanna og enn að reyna að melta þá staðreynd að hann verði ekki sendur aftur til Rússlands líkt og hann óttaðist. Innlent 8. mars 2023 17:51
Síðasta orrusta Wagner? Serhiy Cherevaty, yfirmaður hersveita Úkraínu í austurhluta landsins, segir orrustuna um Bakhmut þá síðustu sem sveitir Wagner málaliðahópsins munu há. Hann segir þúsundir liðsmanna Wagner hafa fallið í átökunum. Erlent 8. mars 2023 10:29
Mynduðu aftöku óvopnaðs stríðsfanga Yfirvöld í Úkraínu rannsaka nú myndband sem birt var á samfélagsmiðlum í gær sem sýnir rússneska hermenn skjóta úkraínskan stríðsfanga til bana. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heitir því að hermennirnir muni finnast. Erlent 7. mars 2023 23:02
Gruna hóp tengdan Úkraínu um Nord Stream árásina Yfirvöld í Bandaríkjunum og Þýskalandi telja hóp manna sem tengjast Úkraínu bera ábyrgð á skemmdarverkum sem unnin voru á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasaltshafi. Leiðslurnar sem lágu frá Rússlandi til Þýskalandi eyðilögðust í sprengingu í fyrra. Erlent 7. mars 2023 20:01
Tuttugu ára tenniskona vann táknrænan sigur á Rússa í úrslitaleik Úkraínska tenniskonan Marta Kostjuk vann um helgina sitt fyrsta mót á WTA mótaröðinni þegar hún fagnaði sigri í Austin í Texas. Sport 7. mars 2023 11:01
Bakhjarlar Úkraínu leggja til undanhald frá Bakhmut Úkraínumenn segjast ætla að halda Bakhmut í Dónetskhéraði, þrátt fyrir erfitt ástand þar og að Rússum hafi vaxið ásmegin. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði með herforingjaráði Úkraínu þar sem talað var um að senda meiri liðsauka á svæðið. Erlent 6. mars 2023 23:35
„Verðum að sýna fólki að Úkraína lifir“ Hástökkvarinn Yaroslava Mahuchikh færði Úkraínu einu gullverðlaun þjóðarinnar á Evrópumótinu innanhúss í frjálsum íþróttum, í Istanbúl um helgina. Hún tjáði sig um stríðið heima fyrir og mögulega þátttöku Rússa á Ólympíuleikum í viðtali eftir keppni. Sport 6. mars 2023 15:30
Prigozhin segir menn sína óttast að verða gerðir að blórabögglum Stofnandi Wagner málaliðahópsins segir bardagamenn hópsins í Úkraínu ekki hafa fengið umsamin skotfæri frá Rússlandi og segir annað hvort um að ræða afleiðngar skrifræðis eða hrein og klár svik. Erlent 6. mars 2023 12:50
Segja Rússa dusta rykið af 60 ára gömlum skriðdrekum Breska varnarmálaráðuneytið segir hermálayfirvöld í Rússlandi hafa dregið fram um það bil 800 T-62 skriðdreka úr geymslum sínum, sem eiga að koma í stað þeirra sem tapast hafa í Úkraínu. Erlent 6. mars 2023 08:04
„Þetta er algjörlega breyttur heimur“ Doktor í fjármálum segir heiminn algjörlega breyttan eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Hann segir að stríðið muni hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir hagstjórn í ríkjum heimsins. Innlent 5. mars 2023 23:27
Rússnesk stjórnvöld nema úkraínsk börn á brott og flytja þau til Rússlands Rússnesk stjórnvöld hafa numið hundruð úkraínskra barna á brott frá heimilum sínum á hernumdum svæðum í Úkraínu. Þeim er veittur rússneskur ríkisborgararéttur og rússneskar fjölskyldur ættleiða börnin, sem er ranglega sagt að foreldrar þeirra séu látnir. Erlent 5. mars 2023 14:31
„Við þurfum að stofna íslenskan her“ Sérfræðingur í varnarmálum telur að stofna eigi íslenskan her, sem teldi um þúsund manns, til að bregðast við breyttum aðstæðum í varnarmálum Íslands. Utanríkisráðherra telur ekki þörf á því; ef auka ætti fjárframlög til varnarmála væri þeim betur varið í annað en íslenskan her. Innlent 4. mars 2023 19:56
Leiðtogi Wagner segir Bakhmut fallna Yfirmaður rússnesku Wagner málaliðanna segir þá hafa umkringt borgina Bakhmut þar sem aðeins væru eftir börn og gamalmenni til að berjast gegn innrás þeirra. Yfirvöld í nágrannahéraðinu Kharkiv hafa síðan fyrirskipað fjölskyldum með börn og öðrum viðkvæmum hópum að yfirgefa borgina Kupiansk vegna látlausra loftárása Rússa. Erlent 3. mars 2023 20:01
Segjast enn verja Bakhmut Embættismenn í Úkraínu segja úkraínska hermenn enn verja bæinn Bakhmut í Dónetskhéraði. Yfirmaður herafla Úkraínu í austri er sagður hafa heimsótt hermennina þar í dag. Hersveitir Rússa eru þó nærri því að umkringja bæinn og eru sagðar beina fallbyssum sínum að einu birgðaleið Úkraínumanna inn og út úr bænum. Erlent 3. mars 2023 16:43
Sprengdu brýr við Bakhmut og virðast ætla hörfa Útlit er fyrir að úkraínskir hermenn ætli sér að hörfa eða séu þegar byrjaðir að hörfa frá Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á bæinn um mánaða skeið og hafa nú nærri því umkringt hann. Erlent 3. mars 2023 11:06
Skilaboð Blinkens til Lavrovs voru einföld og skýr Skuggi innrásar Rússa í Úkraínu skyggði á öll önnur málefni á fundi utanríkisráðherra 20 helstu iðnríkja heims á Indlandi í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Rússa að láta af hernaði sínum og utanríkisráðherra Rússlands sagði aldrei hafa staðið á Rússum að semja við Bandaríkin um örlög Úkraínu. Erlent 2. mars 2023 18:57
Rússneskir öfgamenn réðust á þorp í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi segja hóp skemmdarverkamanna frá Úkraínu hafa gert árásir á þorp í Bryanskhéraði í Rússlandi. Hópur fjar-hægri Rússa sem er andvígur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur lýst yfir ábyrgð á atvikinu, sem Pútín hefur lýst sem hryðjuverki. Erlent 2. mars 2023 14:47
Óvæntur hliðarfundur á hitafundi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands hittust stuttlega á óvæntum hliðarfundi á samkomu G20-ríkjanna á Indlandi í dag. Erlent 2. mars 2023 14:05
Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka. Erlent 1. mars 2023 15:00
Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar. Erlent 1. mars 2023 10:14
Skiljum við hvað er í húfi? Árið er 2023 og getum við ekki öll verið sammála um að þrátt fyrir að ýmislegt megi bæta í íslensku samfélagi þá standa okkar grunngildi og þjóðfélagsskipan traustum fótum? Frelsi einstaklinga, sjálfsákvörðunarréttur okkar sem þjóðar og virðing fyrir landhelgi. Er þetta ekki allt komið til að vera? Skoðun 28. febrúar 2023 10:00
Xi sagður efast um getu Kínverja til að taka Taívan Xi Jinping, forseti Kína, efast um getu kínverska hersins til að hertaka Taívan en þær efasemdir eiga rætur í slæmu gengi Rússa í Úkraínu. Þetta sagði William Burns, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), í viðtali í gær. Erlent 27. febrúar 2023 12:17