Erlent

Wagner-liðar fá sakar­upp­gjöf og Prigoz­hin fer til Bela­rús

Samúel Karl Ólason og Hólmfríður Gísladóttir skrifa
Málaliðar Wagner hafa verið að undirbúa varnir í Rostov-borg.
Málaliðar Wagner hafa verið að undirbúa varnir í Rostov-borg. EPA

Yevgeny Prigozhin, leiðtogi Wagner málaliðahópsins, hefur lýst því yfir að uppreisninni sé lokið. Þetta kemur fram í ávarpi sem hann sendi frá sér nú síðdegis. Hann segist hafa náð samkomulagi við Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta Rússlands, um að binda enda á uppreisnina.

Þetta kom fram í upptöku sem Prigozhin birti síðdegis. Þar segist hann hafa gert samkomulagið til þess að komast hjá blóðsúthellingum. Wagner málaliðahópurinn var áður á leið til Moskvu.

Sagðist Prigozhin ætla að koma nýjum forseta til valda áður en samkomulag náðist við forseta Hvíta-Rússlands. Málaliðarnir tóku borgina Rostov í suðurhluta Rússlands í nótt og sögðust stefna í átt að Moskvu, höfuðborg Rússlands. 

Nú hefur verið greint frá því að Prigozhin hafi samþykkt að yfirgefa Rússland og ferðast til Belarús og að liðsmenn hans fái sakaruppgjöf. Aðrir Wagner-liðar, sem tóku ekki þátt í aðgerðunum síðasta sólahring, ganga hernum á hönd.

Ekkert hefur heyrst af mögulegum breytingum innan varnarmálaráðuneytisins.

Nýjustu vendingar má lesa í Vaktinni neðst í fréttinni. Áður höfðu borist fréttir af því að rússneskir hermenn væru að byggja upp varnir suður af Moskvu og að borgarstjóri hefði beðið íbúa um að halda sig innandyra.

Sjá einnig: Hver er pylsu­salinn í land­ráðaham?

Í fréttinni hér að neðan má lesa um aðdraganda uppreisnar Wagner og hvað gerðist í gær.

Sjá einnig: Wagner í hart gegn rússneska hernum og Prigozhin eftirlýstur

Hér að neðan má svo lesa helstu vendingar dagsins og fylgjast með framvindu mála í vaktinni.

Helstu vendingar næturinnar og dagsins og aðrir punktar:

  • Wagner lýsti í raun yfir stríði við varnarmálaráðuneytið og svo í kjölfarið við Pútín, eftir að hann fordæmdi aðgerðir Wagner í ávarpi til þjóðarinnar í morgun.
  • Málaliðar Wagner tóku stjórn á borginni Rostov í suðurhluta Rússlands en hún er mjög mikilvæg fyrir birgðaflutninga rússneska hersins inn í austurhluta Úkraínu.
  • Þá er bílalest málaliða, með skriðdreka og loftvarnarkerfi, á leiðinni norður frá Rostov í átt að Moskvu.
  • Helstu ráðamenn í Rússlandi hafa lýst yfir stuðningi við Pútín. Þeirra á meðal er Ramzan Kadyrov, sem stjórnar Téténíu.
  • Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að allir þeir sem gangi veg illsku muni á endanum granda sjálfum sér. Hann sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem hann sagði uppreisnina opinbera veikleika Rússlands og kallaði eftir því að rússneskir hermenn yfirgæfu Úkraínu.
  • Rússneskar hersveitir voru að nálgast Rostov úr vestri, frá Úkraínu. Þar á meðal eru Akhmat-sveitir Téténíu og var útlit fyrir átök þar, eins og í Moskvu.
  • Alexender Lúkasjenka, einræðisherra Belarús, lýsti því svo yfir að hann hefði gert samkomulag við Prigozhin um að binda enda á uppreisnina. Prigozhin staðfesti svo skömmu síðar að hann hefði skipað málaliðum sínum að snúa aftur í bækistöðvar Wagner.

Ef vaktin birtist ekki gæti þurft að hlaða síðuna upp á nýtt.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×