Hættir Alonso hjá Renault? Fernando Alonso segir að sér sé frjálst að hætta hjá liði Renault eftir yfirstandandi keppnistímabil í Formúlu 1. Formúla 1 25. mars 2008 15:46
Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki. Formúla 1 24. mars 2008 17:33
Raikkönen: Nokkuð auðvelt Kimi Raikkönen segir að kappaksturinn í Malasíu í morgun hafi verið sér nokkuð auðveldur eftir fyrsta viðgerðarhléið. Formúla 1 23. mars 2008 12:46
Raikkonen vann í Malasíu Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni. Formúla 1 23. mars 2008 08:41
Dómarar refsa ökumönnum McLaren Dómarar Formúlu 1 mótsins í Malasíu ákváðu í hádeginu að refsta Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton fyrir að hafa truflað Nick Heidfeld á BMW og Fernando Alonso á Renault í lokahring þeirra í tímatökunni. Formúla 1 22. mars 2008 11:55
Ökumenn McLaren kallaðir fyrir dómara Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru kallaðir fyrir dómara mótsins á Sepang brautinni í dag, eftir athugasemd frá Nick Heidfeld og Fernando Alonso. Þeir töldu að McLaren hefðu sýnt vítavert gáleysi þegar þeir hægðu á bílnum sínum eftir að hafa lokið sínum hraðasta hring. Formúla 1 22. mars 2008 11:21
Massa fremstur á ráslínu í Malasíu Félagarnir Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða frremstir á ráslínu í malasíska kappakstrinum á aðfaranótt sunnudags. Massa náði besta tíma í tímatökum í nótt og Raikkönen kom honum næstur. Formúla 1 22. mars 2008 07:49
24,1 % áhorf á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport Ljóst er að Formúlu 1 útsendingar á Stöð 2 Sport hafa fallið vel í kramið og íþróttin heldur sinni stöðu sem vinsælt sjónvarpsefni, þrátt fyrir að hafa skipt um umhverfi, horfið af RÚV yfir á Stöð 2 Sport. Formúla 1 21. mars 2008 14:29
Verður Red Bull bíllinn bannaður? Alþjóðabílasambandið kannar hvort banna eigi þátttöku Red Bull Formúlu 1 liðsins í keppni í Malasíu eftir æfingar í nótt Formúla 1 21. mars 2008 10:13
Lítill munur á Ferrari og McLaren Ökumenn Ferrari og McLaren kepptust hvað mest um að ná bestum tíma á Sepang brautinni í nótt. Tvær æfingar fóru fram. Felipe Massa á Ferrari var langfljótastur á fyrri æfingunni, en Lewis Hamilton á Ferrari á þeirri síðari. Formúla 1 21. mars 2008 07:59
Massa fyrstur í Malasíu Brasilíumaðurinn Felipe Massa á Ferrari náði langbesta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Malasíu í nótt. Hann varð sekúndu fljótari en KImi Raikkönen á samskonar bíl. Bíll Raikkönen bilaði á æfingunni og David Coulthard á Red Bull fékk nokkuð harkalegan skell. Formúla 1 21. mars 2008 03:37
Keppt í hitasvækju í Malasíu um páskana Formúlu 1 mót verður í Malasíu um helgina og búist er við 40 stiga hita og miklum raka. Þetta mun reyna mikið á þolgæði bíla og ökumanna sem kepptu í Ástralíu um síðustu helgi. Formúla 1 20. mars 2008 19:19
Felisa tekur við starfi Todt hjá Ferrari Stjórn Ferrari samþykkti í dag að Jean Todt hyrfi frá starfi sínu sem forstjóri Ferrari. Í hans stað kemur Amadeo Felisa, en Todt hefur gengt starfi forstjóra Ferrari síðan 2006. Formúla 1 18. mars 2008 18:30
Rakst á takka sem takmarkaði hraða Heikki Kovalainen lenti í því í kappakstrinum í Melbourne um helgina að hann rakst óvart á takka sem takmarkaði hraða hans á beina kaflanum. Hann hafði nýlega farið framúr Fernando Alonso þegar það gerðist. Formúla 1 17. mars 2008 22:58
Lewis Hamilton: Minn besti sigur Bretinn Lewis Hamilton telur að sigurinn í Melbourne sé sá besti í upphafi. Hann leiddi mótið frá upphafi til enda. Formúla 1 16. mars 2008 13:19
Hamilton vann í viðburðarríkri keppni Bretinn Lewis Hamtilon byrjaði titilsóknina eins og best verður á kosið í fyrsta Formúlu 1 móti ársins. Hann kom fyrstur í mark eftir viðburðaríka keppni þar sem aðeins 7 bílar af 22 komust á leiðarenda. Nick Heidfeld á BMW varð annar og Nico Rosberg þriðji á Williams Toyota. Formúla 1 16. mars 2008 09:13
Hamilton ánægður með nýja útfærslu Formúlu 1 Bretinn Lewis Hamilton er ánægður gang mála hjá sér fyrir kappaksturinn í Ástralíu á morgun. Hann er fremstur á ráslinu og mjög sáttur við nýjar reglur um útbúnað bílanna. Hamilton keppir í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu í nótt. Formúla 1 15. mars 2008 17:08
Hamilton fremstur á ráslínu í Melbourne Bretinn Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma í fyrstu tímatöku ársins í Formúlu 1. Hún fór fram á götum Melborune í Ástralíu, en Finninn Kimi Raikkönen, heimsmeistarinn hjá Ferrari varð sextándi eftir að bíll hans bilaði í tímatökunni. Fernando Alonso á Renault er þrettándi á ráslínu. Formúla 1 15. mars 2008 05:31
Tímamótasamningur undirritaður Í gær var undirritaður tímamótasamningur vegna kostunar á sýningum frá Formúlu 1 kappaksturinn á sjónvarpstöðinni Stöð 2 Sport. Formúla 1 14. mars 2008 21:45
Hönnuður McLaren rekinn McLaren liðið í Formúlu 1 hefur rekið bílahönnuðinn sem var í hringiðu njósnamálsins á síðasta tímabili. Hann heitir Mike Coughlan og það var á heimili hans sem 780 blaðsíðna skýrsla um starfsemi Ferrari fannst á sínum tíma. Formúla 1 14. mars 2008 10:19
Hamilton svaraði spretthörku Ferrari Bretinn Lewis Hamilton á McLaren reyndist fljótastur á seinni æfingu keppnisliða í Melbourne í nótt. Mark Webber var lengst af með besta tíma, en Hamilton stal þeim heiðri af honum í lokin. Margir ökumenn misstu bíla sína í útaf. Formúla 1 14. mars 2008 05:18
Barichello nálgast met Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello hjá Honda í Formúlu 1 ekur í sinni 250. keppni á ferlinum í Ástralíu á sunnudaginn. Hann vantar aðeins sjö keppnir í viðbót til að verða reyndasti ökuþór í sögu Formúlu 1. Formúla 1 13. mars 2008 14:43
Hamilton: Það var heiður að vinna með Alonso Svo virðist sem Lewis Hamilton hjá McLaren sé búinn að rétta fyrrum félaga sínum Fernando Alonso hjá Renault sáttarhönd eftir harðar deilur þeirra á síðasta tímabili. Formúla 1 13. mars 2008 10:59
Ecclestone í deilum við Ástrali Formúlueinvaldurinn Bernie Ecclestone stendur nú í deilum við mótshaldara í Ástralíukappakstrinum vegna tímasetningar keppninar. Vegna tímamismunar fer keppnin fram um nótt að evrópskum tíma og það þykir Ecclestone skemma fyrir í sjónvarpsmálunum í álfunni. Formúla 1 12. mars 2008 15:18
Einvígi Hamilton og Alonso verður harðara í ár Ástralinn Mark Webber sem ekur hjá Red Bull í Formúlu 1, segir að einvígi þeirra Lewis Hamilton hjá McLaren og Fernando Alonso hjá Renault verði harðara en nokkru sinni fyrr á komandi tímabili nú þegar þeir eru ekki lengur í sama liði. Formúla 1 12. mars 2008 13:21
Ron Dennis verður áfram hjá McLaren Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, ætlar að vera áfram í herbúðum liðsins á komandi tímabili. Dennis hefur verið nokkuð umdeildur í kjölfar njósnamálsins ljóta, en hefur tilkynnt starfsfólki liðsins að hann verði áfram. Formúla 1 11. mars 2008 14:29
Raikkönen er ekki saddur Heimsmeistarinn Kimi Raikkönen segist hvergi nærri saddur og stefnir harður á að verja titil sinn á komandi tímabili í Formúlu 1 sem hefst í Ástralíu á sunnudaginn. Formúla 1 10. mars 2008 13:42
Hamilton ætlar sér sigur í Ástralíu Það er aðeins vika í fyrsta Formúlu 1 mót ársins. Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren stefnir á sigur á götum Melbourne í Ástralíu. Hamilton, Felipe Massa, Kimi Raikkönen og Heikki Kovalainen eru líklegastir til að standa fremstir í fyrsta móti, ef marka má æfingar síðustu vikur. Formúla 1 9. mars 2008 11:56
Aguri liðið mætir þrátt fyrir peningaleysi Japanska keppnisliðið er mætt til Ástralíu, þrátt fyrir þær fréttir að eigandi liðsins hafi leitað logandi ljósi að fjármagni til að greiða rekstrarkostnað. Auguri Suzuki var alla síðustu viku í leit að fjármagni, eftir að hafa lent í fjárhagsörðugleikum. Formúla 1 9. mars 2008 11:52