Telja vitni hafa logið um tilraunir Trumps til að snúa úrslitunum Sérstakur ákærudómstóll sem var kallaður saman til þess að rannsaka tilraunir Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, til þess að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020 í Georgíu telur að sum vitni hafi framið meinsæri. Hann mælir með að saksóknari gefi út ákærur. Erlent 16. febrúar 2023 17:51
Lögmaður Trumps í sigti saksóknara Alríkissaksóknarar sem halda utan um rannsókn Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna á meðhöndlun Donalds Trumps, fyrrverandi forseta á leynilegum skjölum, vilja fá upplýsingar um samskipti Trumps og lögmanns hans. Þessi samskipti eru trúnaðarmál en saksóknararnir hafa leitað til dómara til að fá aðgang að þeim og fá lögmanninn í yfirheyrslu hjá ákærudómstól. Erlent 15. febrúar 2023 10:25
Haley fer fram gegn Trump Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti því yfir í morgun að hún ætli í forsetaframboð. Hún er sú fyrsta sem lýsir yfir framboði eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, lýsti því yfir í nóvember í fyrra að hann ætlaði að gera aðra atlögu að Hvíta húsinu. Erlent 14. febrúar 2023 14:02
Haley sögð munu tilkynna um forsetaframboð 15. febrúar Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, er sögð munu tilkynna um framboð sitt til forseta 15. febrúar næstkomandi. Erlent 2. febrúar 2023 06:58
Neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum saksóknara Donald Trump neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum sem lagðar voru fyrir hann við yfirheyrslur vegna rannsóknar yfirvalda í New York. Þetta sést á myndskeiði af yfirheyrslunni sem CBS News hefur undir höndum. Erlent 1. febrúar 2023 07:44
Sakamálarannsóknin sneri að Trump sjálfum Sérstakur rannsakandi sem William Barr, dómsmálaráðherra Donalds Trumps, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu, rannsakaði Trump sjálfan um tíma. Erlent 27. janúar 2023 12:25
Trump snýr aftur á Facebook og Instagram Samfélagsmiðlafyrirtækið Meta, sem rekur bæði Facebook og Instagram, hefur ákveðið að veita Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, aftur aðgang að samfélagsmiðlunum. Honum var hent af miðlunum í kjölfar árásanna á þinghús Bandaríkjanna þann. 6. janúar 2021. Erlent 25. janúar 2023 23:41
Leynileg skjöl fundust á heimili Pence Tólf leynileg skjöl fundust við leit á heimili Mike Pence, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, í Indiana fylki í Badnaríkjunum. Lögfræðingur Pence fann skjölin og hafa þau nú verið afhent alríkislögreglunni. Erlent 24. janúar 2023 23:14
Enn finnast leynileg skjöl hjá Biden Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) fundu sex skjöl sem merkt eru sem leynileg gögn á heimili Joe Bidens, forseta Bandaríkjanna, í Delaware við húsleit þar á föstudaginn. Hald var einnig lagt á handskrifuð minnisblöð forsetans en óljóst er hvort skjölin séu enn leynileg. Erlent 22. janúar 2023 08:33
Trump og lögmaður hans dæmdir til greiða milljón dala í sektir Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur skipað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og einum lögmanna hans að greiða sameiginlega nærri milljón Bandaríkjadala í sektir fyrir tilhæfulausa málsókn þar sem Hillary Clinton, landsnefnd Demókrataflokksins og aðrir meintir óvinir Trump voru sakaðir um umfangsmikið samsæri gegn honum. Erlent 20. janúar 2023 07:35
Trump vill komast aftur á Facebook Donald Trump vill komast aftur á Facebook eftir að hafa verið bannaður á miðlinum í kjölfar innrásarinnar í bandaríska þinghúsið í janúar árið 2021. Talið er að hann vilji komast þangað til þess að koma kosningaherferð sinni á flug en hann hefur tilkynnt um framboð sitt til forseta Bandaríkjanna árið 2024. Erlent 18. janúar 2023 23:24
Fyrirtæki Trump greiði 1,6 milljón dollara sekt fyrir skattsvik Fyrirtækinu Trump Organization sem er í eigu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur verið gert að greiða rúmlega 1,6 milljón dollara, tæplega 230 milljónir íslenskra króna, í sekt vegna skattsvika. Einn lögfræðinga fyrirtækisins segir Trump ætla að áfrýja dómnum. Erlent 13. janúar 2023 16:25
Sérstakur rannsakandi skoðar leynileg skjöl í vörslu Bidens Merrick B. Garland, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skipað sérstakan rannsakanda til að rannsaka meðhöndlun Joe Biden, forseta, á leynilegum skjölum. Slík skjöl hafa fundist á einkaskrifstofu hans, heimili og bílskúr en um tiltölulega fá skjöl er að ræða. Erlent 12. janúar 2023 20:20
Fjármálastjóri Trumps dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik Allen Howard Weisselberg, sem starfaði lengi sem fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trumps, fyrrum Bandaríkjaforseta, var í dag dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir skattvsvik. Erlent 10. janúar 2023 23:29
Leynileg skjöl fundust á einkaskrifstofu Bidens Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú hvernig skjöl, sem talin eru vera leynileg, enduðu á gamalli skrifstofu Joes Bidens, forseta Bandaríkjanna. Skjölin fundust þann 2. nóvember, skömmu fyrir þingkosningar, en fundurinn varð ekki opinber fyrr en í gær og þá af fjölmiðlum vestanhafs. Erlent 10. janúar 2023 18:09
Ákveða á næstu vikum hvort Trump verði ákærður Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna afskipta hans af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lokið störfum. Ekki er ljóst hvort Trump verði ákærður en ákveða á seinna í mánuðinum hvort opinbera eigi skýrslu ákærudómstólsins eða ekki. Erlent 9. janúar 2023 19:49
McCarthy borubrattur eftir viðræður við andstæðinga Óreiða virðist einkenna störf fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á fyrstu dögum nýs kjörtímabils. Eftir ítrekaðar atkvæðagreiðslur hefur þingmönnum ekki tekist að kjósa þingforseta en til stendur að halda tólftu atkvæðagreiðsluna og mögulega fleiri í dag. Erlent 6. janúar 2023 15:13
Trump kallar eftir stuðningi við McCarthy Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, kallar eftir því að Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fylki liði við bak Kevin McCarthy, leiðtoga þingflokksins. McCarthy vill verða forseti fulltrúadeildarinnar en mistókst það í þremur atkvæðagreiðslum í gær. Erlent 4. janúar 2023 14:23
Trump hafði tekjur í fjölda landa á meðan hann var forseti Skattskýrslur Donalds Trump sýna að hann hafði tekjur í á öðrum tug landa á meðan hann var forseti Bandaríkjanna og að hann átti bankareikning í Kína. Trump greiddi enga alríkisskatta síðasta ár sitt sem forseti. Erlent 2. janúar 2023 12:20
Þungir dómar yfir öfgamönnum sem ætluðu að ræna ríkisstjóra Forsprakki hóps hægriöfgamanna sem ætlaði að ræna ríkisstjóra Michigan í Bandaríkjunum var dæmdur í rúmlega nítján ára fangelsi í gær. Dómurinn er sá þyngsti í málinu en annar leiðtoga hópsins hlaut sextán ára dóm á þriðjudag. Erlent 29. desember 2022 16:03
Skattskýrslur Trump birtar á föstudag Donald Trump var á sínum tíma fyrsti forsetaframbjóðandinn í Bandaríkjunum svo áratugum skiptir sem gerði ekki skattskýrslur sínar opinberar í kosningabaráttu, hvorki 2016 né 2020. Að sögn AP verða skattskýrslurnar hins vegar gerðar opinberar næstkomandi föstudag að sögn talsmanns þingnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Erlent 28. desember 2022 07:48
Trump sagður hafa kveikt uppreisnarbálið Ábyrgðin á árás stuðningsmanna Donalds Trump á bandaríska þinghúsið í fyrra er á herðum eins manns: Trumps sjálfs. Þetta er niðurstaða þingnefndar sem rannsakaði árásina. Hún mælir með því að Trump verði bannað að gegna opinberu embætti aftur. Erlent 23. desember 2022 09:10
Samþykktu að birta skattskýrslur Trumps Bandarísk þingnefnd samþykkti að birta skattskýrslur Donalds Trump, fyrrverandi forseta, sem hann hefur alla tíð barist gegn að verði opinberar. Hún segir að skatturinn hafi aldrei endurskoðað skattskýrslur Trump þrátt fyrir reglur um það. Erlent 21. desember 2022 08:26
Mælast til þess að Trump verði ákærður Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti einróma í kvöld að mælast til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verði ákærður í fjórum ákæruliðum fyrir þátt hans í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar árið 2020. Erlent 19. desember 2022 23:09
Erfið vika í vændum hjá Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir erfiðri viku. Þingnefnd mun mögulega leggja til að hann verði ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra og skattaskýrslur hans verða mögulega opinberaðar. Erlent 19. desember 2022 15:48
Búist við ákæru á hendur Trump vegna árasar á þinghúsið Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að þingnefnd, sem rannsakar árásina á þinghúsið 6. janúar, muni leggja til að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verði ákærður vegna þáttar hans í atlögunni. Erlent 17. desember 2022 10:01
Fyrirtæki Trumps dæmt vegna skattsvika Trump Organization, fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, var í gær dæmt sekt um skattsvik og aðra glæpi. Kviðdómendur í Hæstarétti Manhattan sakfelldu fyrirtækið í öllum sautján ákæruliðum málsins. Erlent 7. desember 2022 13:45
Greindi ekki frá 19,8 milljón dala láni frá Daewoo Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, greindi ekki frá 19,8 milljón dala láni eins og hann átti að gera þegar hann bauð sig fram til forseta árið 2016 og eftir að hann bar sigur úr býtum í kosningunum. Erlent 6. desember 2022 07:03
Setja ofan í við Trump sem vill víkja stjórnarskránni til hliðar Hvíta húsið gefur lítið fyrir yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta og forsetaframbjóðenda, um að fella ætti stjórnarskrá Bandaríkjanna úr gildi og setja hann sjálfan aftur í embætti. Erlent 4. desember 2022 10:25
Dómarar veita Trump enn eitt höggið Áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í dómsmálinu gegn honum vegna leynilegu skjalanna í Mar-a-Lago. Þrír alríkisdómarar sem skipa áfrýjunardómstólinn gagnrýndu einnig dómara sem úrskurðaði áður Trump í vil en sá dómari var skipaður í embætti af Trump. Erlent 2. desember 2022 11:24