Eyjakonur upp í þriðja sætið eftir stórsigur ÍBV er komið upp í 3. sæti í Pepsi-deild kvenna í fótbolta eftir 6-1 stórsigur á Aftureldingu á Hásteinsvelli í Eyjum í kvöld í lokaleik þrettándu umferðar. ÍBV fór upp fyrir Val og Breiðablik með þessum sigri og er nú aðeins einu stigi á eftir Íslandsmeisturum Stjörnunnar sem sitja í öðru sætinu. Íslenski boltinn 10. ágúst 2012 20:03
Guðlaug búin að taka aftur fram skóna á 41. aldursári Guðlaug Jónsdóttir, snéri aftur í úrvalsdeild kvenna í kvöld, þegar þessi fyrrum landsliðsmaður og margfaldur meistari með KR, kom inn á sem varamaður þegar KR vann 3-2 sigur á Fylki. Guðlaug hafði góð áhrif á Vesturbæjarliðið sem vann sinn fyrsta sigur í sumar. Íslenski boltinn 9. ágúst 2012 22:31
Langþráður sigur á hjá KR-konum | Blikar töpuðu stigum á Selfossi Botnliðin í Pepsi-deild kvenna bitu frá sér í 13. umferðinni í kvöld. KR vann 3-2 heimasigur á Fylki og Selfoss gerði 3-3 jafntefli við Blikakonur sem eru í 3. sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 9. ágúst 2012 21:26
Þór/KA gefur ekkert eftir og vann stórsigur á FH Þór/KA-konur gefa ekkert eftir á toppi Pepsi-deildar kvenna en þær náðu sex stiga forskoti eftir 6-0 sigur á FH í fyrsta leik 13. umferðar á Akureyri í kvöld. Stjörnukonur geta minnkað forskotið aftur niður í þrjú stig seinna í kvöld. Íslenski boltinn 9. ágúst 2012 20:29
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 2-3 | Elín Metta hetja Valskvenna Elín Metta Jensen skoraði sigurmark Valskvenna í viðbótartíma er liðið vann 3-2 útisigur á Stjörnunni í 13. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Stjarnan tapaði dýrmætum sigur í titilbaráttunni en Valur stimplaði sig inn í toppbaráttuna á nýjan leik. Íslenski boltinn 9. ágúst 2012 17:06
Metfjöldi félagaskipta í seinni glugganum - 104 skiptu um lið á lokadeginum Það var nóg að gera á Skrifstofu Knattspyrnusambands Íslands á lokadegi félagsskiptagluggans á þriðjudaginn en ekki er hægt að hafa félagskipti innanlands eða til landsins eftir þann dag. Á heimasíðu KSÍ segir að nýtt met hafi verið sett í fjölda félagaskipta í seinni glugganum. Íslenski boltinn 3. ágúst 2012 22:30
Jóni Páli sagt upp störfum hjá Fylki Jóni Páli Pálmasyni, þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Fylki, hefur verið sagt upp störfum. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ásgrímur Helgi Einarsson og Kjartan Stefánsson stýra liði Fylkis út tímabilið. Íslenski boltinn 2. ágúst 2012 15:03
Bilið á toppnum aðeins þrjú stig | Fallbaráttan harðnar Ashley Bares skoraði tvívegis fyrir Stjörnuna í 3-0 sigri á KR í Vesturbænum í kvöld. Stjarnan er nú aðeins þremur stigum á eftir Þór/KA sem gerði jafntefli gegn Val fyrr í kvöld. Íslenski boltinn 31. júlí 2012 21:20
Sænskur framherji til Þór/KA Topplið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk í titilbaráttunni. Sænski framherjinn Rebecca Johnson hefur gengið til liðs við félagið. Íslenski boltinn 31. júlí 2012 17:17
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór/KA 2-2 | Norðankonur stálu stigi Tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum tryggðu toppliði Þór/KA 2-2 jafntefli gegn Val á Hlíðarenda. Valskonur réðu lögum og lofum á vellinum en ólíkt gestunum nýttu þær ekki færi sín. Íslenski boltinn 31. júlí 2012 15:58
Shaneka hetja Eyjakvenna gegn Blikum Shaneka Gordon skoraði bæði mörk ÍBV í 2-1 útisigri á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Sigurmarkið kom í viðbótartíma en Blikar höfðu ráðið gangi mála lengst af í leiknum. Íslenski boltinn 31. júlí 2012 15:48
Heil umferð í Pepsi-deild kvenna | Breiðablik - ÍBV á Stöð 2 sport Heil umferð fer fram í kvöld í Pepsi-deild kvenna í fótbolta. Leikur Breiðabliks og ÍBV verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og einnig á Vísi. Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar með 23 stig en Þór/KA er í efsta sæti með 28 stig. ÍBV er í fimmta sæti með 19 stig. Íslenski boltinn 31. júlí 2012 13:00
Kate Deines: Getustigið svipað | Myndasyrpa úr Garðabænum Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Þór/KA í framlengdum leik í Garðabænum. Íslenski boltinn 27. júlí 2012 23:05
Jóhann Kristinn: Ég hef ekki verið að hnjóta um peningahrúgur fyrir norðan Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þór/KA í knattspyrnu segir tvo nýja erlenda leikmenn Stjörnunnar gríðarlegan styrk fyrir Garðbæinga. Hann segir erfitt fyrir norðankonur að styrkja sig í félagaskiptaglugganum. Íslenski boltinn 27. júlí 2012 22:57
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór/KA 2-1 | Stjarnan í bikarúrslit Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu með 2-1 sigri gegn Þór/KA í framlengdum leik í Garðabænum. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði sigurmarkið í upphafi síðari hálfleiks framlengingarinnar. Íslenski boltinn 27. júlí 2012 15:34
Umfjöllun og viðtöl: KR - Valur - 0-2 | Valur í úrslit fimmta árið í röð Valsarar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna með sigri á KR, 2-0, í Frostaskjólinu. Johanna Rasmussen gerði fyrra mark Vals í leiknum en það síðara kom í uppbótartíma þegar Rakel Logadóttir skoraði glæsilegt mark. Þetta er fimmta árið í röð sem Valur kemst í úrslit bikarsins. Íslenski boltinn 27. júlí 2012 15:29
Hverjar komast í bikarúrslitaleikinn? Í kvöld ræðst það hvaða tvö lið munu mætast í bikarúrslitaleik kvenna í ár en undanúrslitaleikir Borgunarbikars kvenna fara þá fram og hefjast báðir klukkan 19.15. Íslenski boltinn 27. júlí 2012 09:30
Elín Metta önnur til að skora fernu í Pepsi-deild kvenna í sumar Valskonan Elín Metta Jensen var á skotskónum í 5-2 sigri á Selfossi í gærkvöldi. Fyrstu fréttir af Selfossi voru að hún hefði skorað þrennu en rétt var að þessi 17 ára stórefnilega stelpa skoraði fjögur af fimm mörkum Valsliðsins í leiknum. Íslenski boltinn 25. júlí 2012 15:00
Stjörnukonur ekki búnir að segja sitt síðasta - myndir Stjarnan vann mikilvægan 3-2 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld og náði því að minnka forskot Þór/KA á toppnum í fimm stig. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok og hefur þar með skorað tíu deildarmörk í sumar. Íslenski boltinn 24. júlí 2012 22:07
Blikakonur minnkuðu forskot Þor/KA - Elín Metta með þrennu Breiðablik og Valur unnu bæði góða útisigri í 11. umferð Pepsi-deild kvenna í kvöld. Blikakonur minnkuðu forskot Þór/KA á toppnum í fimm stig og Valskonur komust upp í fjórða sæti deildarinnar en þær nýttu sér þar óvænt tap ÍBV á móti FH í kvöld. Íslenski boltinn 24. júlí 2012 21:11
FH burstaði ÍBV aftur - Guðrún Jóna byrjar vel FH vann óvæntan 3-0 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna. ÍBV var tveimur sætum og átta stigum á undan FH fyrir leikinn en það hentar greinilega FH-stelpum vel að mæta Eyjaliðinu því FH vann fyrri leikinn 4-1. Íslenski boltinn 24. júlí 2012 20:14
Harpa tryggði Stjörnunni mikilvægan sigur Harpa Þorsteinsdóttir tryggði Íslandsmeisturum Stjörnunnar þrjú mikilvæg stig í toppbaráttu Pepsi-deildar kvenna í kvöld þegar hún skoraði sigurmarkið á móti Fylki átta mínútum fyrir leikslok. Stjarnan vann leikinn 3-2 og er því eins og Breiðablik fimm stigum á eftir toppliði Þór/KA. Íslenski boltinn 24. júlí 2012 19:15
Garðar Gunnlaugsson: Gulur og graður Stuðningsmannafélag ÍA hefur vakið athygli fyrir skemmtileg myndbönd þar sem núverandi og fyrrverandi leikmenn liðsins eru teknir tali. Í nýjasta þættinum af Návígi bregður Garðar Gunnlaugsson, framherji Skagamanna, á leik. Íslenski boltinn 19. júlí 2012 23:15
Björn Kristinn: Stressið í síðari hálfleik varð of mikið "Við skoruðum vissulega í blálokin en áttum níu dauðafæri í fyrri hálfleik, fjórum sinnum einn á móti markverði. Þær áttu eina sókn í fyrri hálfleik, komust einu sinni fram yfir miðju," sagði Björn Kristinn Björnsson þjálfari Selfyssinga að loknu 1-1 jafntefli liðsins gegn KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 18. júlí 2012 21:41
Katrín Ýr tryggði Selfyssingum stig KR-ingar voru sekúndum frá því að landa sínum fyrsta sigri í Pepsi-deild kvenna er liðið fékk Selfoss í heimsókn í kvöld. Katrín Ýr Friðgeirsdóttir jafnaði metin fyrir gestina í viðbótartíma. Íslenski boltinn 18. júlí 2012 21:34
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór/KA 1-2 | Myndir úr Garðabænum Þór/KA er komið með fimm stiga forskot á toppi Pepsí deildar kvenna eftir ótrúlegan 2-1 sigur á Stjörnunni á útivelli í kvöld. Stjarnan fékk mun fleiri færi og var mikið sterkari aðilinn í leiknum en það er ekki spurt að því. Þór/KA nýtti sín fáu færi. Íslenski boltinn 18. júlí 2012 15:31
Þrjú mörk á fimm mínútum tryggðu Valskonum sigur á ÍBV | Myndasyrpa Valskonur skoruðu þrjú mörk á fimm mínútna kafla í síðari hálfleik og tryggðu sér 3-0 sigur á ÍBV í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 17. júlí 2012 22:17
Rakel skoraði þrennu gegn Fylki | Jafntefli í Kaplakrika Rakel Hönnudóttir skoraði þrennu í 4-0 stórsigri Breiðabliks á Fylki í tíundu umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Þá skildu FH og Afturelding jöfn 2-2 í fallslag í Kaplakrika. Íslenski boltinn 17. júlí 2012 21:45
Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍBV 3-0 | Pepsi-deild kvenna Valskonur sýndu styrk sinn á fimm mínútna kafla þegar þær gerðu út um leik sinn gegn ÍBV á Vodafone vellinum í Pepsi deild kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 17. júlí 2012 15:34
Árni: Ég harma það að missa Helenu Helena Ólafsdóttir hætti með FH þrátt fyrir ósk FH-inga um að hún héldi áfram starfi sínu hjá félaginu. Þetta staðfesti Árni Guðmundsson, formaður rekstrarstjórnar meistaraflokks kvenna hjá FH, í samtali við Vísi í kvöld. Íslenski boltinn 16. júlí 2012 23:15