Viðskipti innlent

Árni Oddur tekur við for­mennsku

Árni Sæberg skrifar
Árni Oddur Þórðarson er stjórnarformaður og annar eigandi Eyris invest.
Árni Oddur Þórðarson er stjórnarformaður og annar eigandi Eyris invest.

Á hluthafafundi Eyris Invest hf. í gær var ný stjórn félagsins kjörin. Stjórnina skipa Atli Björn Þorbjörnsson, Árni Oddur Þórðarson og Þórður Magnússon. Stjórnin hefur komið saman og skipt með sér verkum og Árni Oddur fer nú með stjórnarformennsku.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að á aðalfundi félagins þann 27. mars 2025 hafi hluthafar samþykkt samhljóða að greiða út hlutabréf í JBT Marel annars vegar og í Fræ Capital hins vegar, sem endurgjald við lækkun hlutafjár.

Stofnendur félagsins, þeir Þórður Magnússon og Árni Oddur, séu nú eigendur félagsins til helminga – Þórður í eigin nafni og Árni Oddur í gegnum eignarhaldsfélög sín, Sex álnir og 12 Fet. Þriðji maðurinn í stjórn, Atli Björn Þorbjörnsson, er lögmaður og eigandi hjá Ax lögmannsþjónustu.

Þakka fráfarandi stjórn

„Sérstakar þakkir fær fráfarandi stjórn undir forystu Friðriks Jóhannssonar, sem leyst hefur verkefni síðustu ára af kostgæfni. Þar ber hæst stuðningur við sameiningu JBT og Marel, stofnun Fræ Capital til að halda utan um sprotastarfssemi félagsins, og uppgjör allra skuldbindinga við lánadrottna sem var forsenda fyrir valfrjálsu tilboði til hluthafa Eyris Invest. Stjórnendur Eyris hafa staðið faglega að verkefni síðustu tveggja ára sem lauk með útgreiðslu hlutafjár, þar sem ráðgjafar félagsins voru Arctica Finance, Logos og KPMG,“ segir í tilkynningunni.

Stendur á tímamótum

Fráfarandi hluthöfum, sem séu fjársterkir einkafjárfestar og stofnanafjárfestar, sé þakkað fyrir ánægjulegt samstarf en sumir hverjir hafi fylgt félaginu í tvo áratugi og verið með í þeirri vegferð að styðja framúrskarandi fyrirtæki á borð við Marel og Össur til vaxtar og verðmætasköpunar.

„Eyrir Invest stendur á tímamótum. Félagið fagnar 25 ára afmæli á árinu og mun stjórn félagsins á næstu mánuðum einbeita sér að því verkefni að móta endurnýjaða stefnu félagsins til framtíðar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×