Viðskipti innlent

Íslandshótel taka að ó­breyttu yfir rekstur Nordica og Natura

Árni Sæberg skrifar
Hilton Reykjavík Nordica stendur við Suðurlandsbraut.
Hilton Reykjavík Nordica stendur við Suðurlandsbraut. Vísir/Hanna

Reitir og Íslandshótel undirrituðu í gær leigusamninga til sautján ára um fasteignirnar að Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsvegi 52, sem hýsa hótelin Hilton Reykjavik Nordica og Reykjavík Natura. Núverandi leigutaki Berjaya hotels Iceland nýtur þó forleiguréttar og getur gengið inn í samningana.

Í tilkynningu Reita til Kauphallar segir að um sé að ræða sögufræg hótel, sem séu samtals um 26.500 fermetrar að stærð, með um 470 hótelherbergi.

Þriggja milljarða endurbætur

Reitir, í samvinnu við Íslandshótel, muni ráðast í endurbætur á hótelunum yfir næstu tvö og hálft ár sem muni auka gæði þeirra og aðdráttarafl. Helstu endurbætur felist meðal annars í því að stór hluti af hótelherbergjum verði endurnýjaður. Framkvæmdakostnaður Reita sé áætlaður um þrír milljarðar króna.

„Við erum virkilega ánægð að fá Íslandshótel sem samstarfsaðila vegna tveggja lykilhótela á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmörg tækifæri felast í markvissum endurbótum sem munu skila ávinningi til beggja aðila auk þess að bæta upplifun framtíðargesta hótelanna,“ er haft eftir Guðna Aðalsteinssyni, forstjóra Reita.

Tan með ás í ermi

Íslandshótel taki við rekstrinum þann 1. október næstkomandi, nýti núverandi leigutaki, Berjaya hotels Iceland, sér ekki forleigurétt sinn. Berjaya er tiltölulega ný hótelkeðja hér á landi en byggir á grunni hótelkeðju Icelandair. Berjaya, sem er í eigu malasíska auðkýfingsins Vincent Tan, keypti Icelandair Hotels árið 2020 fyrir tíu milljarða króna og breytti nafni keðjunnar tveimur árum síðar.

Í tilkynningu segir Íslandshótel sé stærsta hótelkeðja landsins, sem reki sautján hótel um allt land undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Tekjur Íslandshótela árið 2024 hafi numið 16,4 milljörðum króna og eigið fé félagsins um síðustu áramót hafi numið 26 milljörðum króna.

Reitir áætli að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna verði um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfa ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×