Fótbolti

Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Galdur gekk í raðir Horsens fyrr ekki svo löngu og er nú kominn með nýjan þjálfara.
Galdur gekk í raðir Horsens fyrr ekki svo löngu og er nú kominn með nýjan þjálfara. Horsens/NTB

David Nielsen er nýr þjálfari Horsens í dönsku B-deild karla í knattspyrnu. Galdur Guðmundsson gekk nýverið til liðs við félagið eftir að hafa verið á mála hjá FC Kaupmannahöfn undanfarin ár.

Nielsen hefur flakkað mikið á milli liða undanfarin. Fyrst þjálfaði hann Kifisia á Grikklandi en entist aðeins í sex vikur. Þaðan fór hann til Lyngby og hjálpaði til við að halda liðinu uppi. Fagnaði hann eftirminnilega þegar ljóst var að Lyngby hefði haldið sæti sínu.

Nielsen ákvað að vera ekki áfram hjá Lyngby og tók því við Lilleström í Noregi. Þar entist hann aðeins í 35 daga og var uppsögn hans tilkynnt þegar hann var hluti af teymi dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 sem fjallaði um leik í efstu deild Danmerkur.

Nielsen er hins vegar kominn með nýtt starf. Hann á að hjálpa Horsens upp úr dönsku B-deildinni. Þar hittir hann fyrir hinn 18 ára gamla Galdur sem skipti FCK út fyrir Horsens fyrr á þessu ári.

Galdur hefur komið við sögu í einum leik hjá Horsens en var allan tímann á varamannabekknum þegar liðið vann góðan 4-3 útisigur á Vendsyssel á föstudagskvöld. Eftir sigurinn er Horsens með 34 stig í 4. sæti, þremur minna en Fredericia, þegar tvær umferðir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni.

Að henni lokinni vara efstu sex liðin í umspil um sæti í efstu deild á meðan sex neðstu fara í umspil sem sker úr um hvaða lið falla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×