Fótbolti

Sker af sér eistun ef Man. City tapar fyrir Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio "Kun" Aguero tók stórt upp í sig í nýju hlaðvarpi. Hér sést hann taka á móti Lionel Messi í Copa America síðasta sumar.
Sergio "Kun" Aguero tók stórt upp í sig í nýju hlaðvarpi. Hér sést hann taka á móti Lionel Messi í Copa America síðasta sumar. Getty/Alexander Tamargo

Líklegast sagt meira í gríni en alvöru en ummæli Sergio Aguero hafa farið á mikið flug fyrir leik Manchester City og Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld.

Aguero hefur mikla trú á liði Manchester City þrátt fyrir misjafnt gengi liðsins á þessu tímabili.

Aguero er markahæsti leikmaðurinn í sögu City en hann skoraði 260 mörk fyrir félagið frá 2011 til 2021. Hann þekkir vel til hjá félaginu þótt að leikmannahópurinn hafi breyst mikið síðan hann var að spila.

Aguero er svo viss um sigur Manchester City að hann er tilbúinn að skera undan sér það allra heilagasta ef Real Madrid fer áfram.

„Real Madrid má ekki vinna City. Ef þeir vinna City þá mun ég skera af mér eistun,“ sagði Sergio Aguero í hlaðvarpinu Som I Serem FCB.

Liðin stóðu sig það illa í deildarkeppni Meistaradeildarinnar að þeir þurfa að taka þátt í umspili um laust sæti í sextán liða úrslitum. Það yrði mikið áfall fyrir bæði félög að komast ekki þangað.

Leikur Manchester City og Real Madrid er sýndur beint á Vodafone Sport og hefst útsending klukkan 19.50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×