Fótbolti

Þjálfararáðning bíði lík­lega nýs árs

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ.
Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. vísir/Arnar

Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, gerir ráð fyrir að nýr landsliðsþjálfari verði ekki ráðinn fyrr en eftir áramót. Enn eigi eftir að boða kandídata í viðtöl.

„Við erum kom­in á góðan stað í dag en mér finnst ólík­legt að við fáum nýj­an þjálf­ara í jóla­gjöf. Þetta er ákveðið ferli, sem við erum að klára inn­an­húss, um það hvernig við sjá­um þetta fyr­ir okk­ur og hvernig mann­eskju við erum að leita að,“ hefur mbl.is eftir Þorvaldi.

Þorvaldur býst við að tíðinda verði að vænta af þjálfaramálum eftir tvær til þrjár vikur. Ummæli hans ríma við það sem hann sagði við Vísi fyrir rúmri viku þegar hann bjóst síður við að ráða þjálfara fyrir jól.

Gera má ráð fyrir að umsækjendur og mögulegir kostir verði teknir í viðtal milli jóla og nýárs eða snemma á nýju ári. Þrír til fjórir aðilar verða að líkindum fengnir í viðtal.

Þorvaldur sagði við Vísi eftir uppsögn Åge Hareide að hann hygðist heldur ráða íslenskan þjálfara en erlendan. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, og Freyr Alexandersson, fráfarandi þjálfari Kortrijk, hafa helst verið nefndir til sögunnar.

Gera má ráð fyrir að Arnar verði tekinn í viðtal eftir Evrópuleik Víkings við LASK ytra í kvöld, að KSÍ hafi af virðingu við hann og Víkingsliðið, ákveðið að bíða þar til deildarkeppni Sambandsdeildarinnar væri afstaðin.

Staða Freys breyttist óvænt í vikunni þegar honum var sagt upp störfum hjá Kortrijk. Hann er því skyndilega laus allra mála.

Norðmaðurinn Per Matthias Högmo og Svíinn Janne Anderson hafa einnig verið nefndir til sögunnar sem kostir sem KSÍ séu með til skoðunar.

Fyrsta verkefni nýs þjálfara, hvers svo sem hann verður, er umspil Þjóðadeildarinnar í mars þar sem Ísland mætir Kósóvó heima (heimaleikurinn verður að vísu leikinn erlendis vegna framkvæmda við Laugardalsvöll) og heiman. Sigurliðið keppir í B-deild en tapliðið í C-deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×