Innlent

Súða­víkur­nefnd skipuð og hefur ár til að skila niður­stöðum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hægra megin við borðið eru, frá vinstri, Dóra Hjálmarsdóttir rafmagnsverkfræðingur, Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur og Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Gegnt þeim sitja Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, og Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis.
Hægra megin við borðið eru, frá vinstri, Dóra Hjálmarsdóttir rafmagnsverkfræðingur, Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur og Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Gegnt þeim sitja Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, og Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis. Alþingi

Skipað hefur verið í rannsóknarnefnd vegna snjóflóðsins í Súðavík í janúar árið 1995. Nefndinni er meðal annars ætlað að varpa ljósi á hvernig snjóflóðavörnum var háttað, almannavarnaaðgerðir í aðdraganda og kjölfar flóðsins og eftirfylgni stjórnvalda.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Alþingis. Þar segir að Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, hafi í gær fundað með rannsóknarnefndinni og afhent þeim skipunarbréf. 

Nefndina skipa þau Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Dóra Hjálmarsdóttir rafmagnsverkfræðingur, og Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur.

Rannsaka marga fleti málsins

Samkvæmt þingsályktun frá því í apríl á þessu ári var ákveðið að skipa nefndina til þess að rannsaka málsatvik í tengslum við flóðið, sem féll 16. janúar 1995. Fjórtán létust í flóðinu og tíu slösuðust. 

Nefndinni er ætlað að draga saman og útbúa til birtingar upplýsingar um málsatvik með það að markmiðið að varpa ljósi á ákvarðanir og verklag stjórnvalda í tengslum við flóðið. Þar verður gerð grein fyrir:

  1. Hvernig staðið var að ákvörðunum um snjóflóðavarnir, hvernig skipulagi byggðar var háttað með tilliti til snjóflóðahættu, gerð hættumats og hvernig staðið var að upplýsingagjöf um snjóflóðahættu til íbúa Súðavíkur,
  2. Fyrirkomulagi og framkvæmd almannavarnaaðgerða í aðdraganda snjóflóðsins, í kjölfar þess og þar til hættuástandi var aflétt,
  3. Eftirfylgni stjórnvalda í kjölfar snjóflóðsins.

Nefndin tekur til starfa 1. janúar næstkomandi og skal ljúka rannsókn sinni svo fljótt sem verða má, og eigi síðar en einu ári eftir skipun hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×