Innlent

Lítur málið mjög al­var­legum augum

Árni Sæberg skrifar
Halla Bergþóra Björnsdóttir er lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
Halla Bergþóra Björnsdóttir er lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Bjarni

Þegar lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu varð kunnugt um efni umfjöllunar Kveiks í gær var málið sent þá þegar, að frumkvæði embættisins, til meðferðar hjá embætti ríkissaksóknara. Í beinu framhaldi var viðkomandi lögreglumaður sendur í leyfi á meðan rannsókn þess fer fram.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá embættinu vegna umfjöllunar Kveiks um meintar njósnir manna á vegum Björgólfs Thors Björgólfssonar um fólk sem stóð í málaferlum gegn honum. Umferðarlögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er viðriðinn málið.

Í tilkynningunni segir að í tilefni þessa máls hafi embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu jafnframt sett af stað athugun á aukastörfum starfandi lögreglumanna. Í gildi séu reglur um slíkt þar sem gert er ráð fyrir að sækja þurfi um sérstaka heimild til þess að sinna öðrum störfum samhliða.

Embættið líti málið mjög alvarlegum augum. Afar mikilvægt sé að lögreglan njóti trausts meðal borgaranna til þess að hún geti rækt hlutverk sitt. Skýrar kröfur séu gerðar til þess að störf lögreglu séu unnin af fagmennsku og innan þeirra heimilda og reglna sem hún starfar eftir. Verði misbrestur þar á sé tekið á þeim málum af festu.

Að öðru leyti muni embættið ekki tjá sig um mál það sem nú er til meðferðar hjá ríkissaksóknara.


Tengdar fréttir

Málið áfall fyrir embættið

Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari og fyrrverandi sérstakur saksóknari, segir að njósnamálið sem Kveikur fjallaði um í gærkvöldi sé áfall fyrir saksóknaraembættið. Það sem lýst sé í þættinum gangi gegn öllum gildum og siðferði innan lögreglunnar.

„Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“

Vilhjálmur Bjarnason segir að njósnir um hann hafi verið miklu svakalegri en hann gerði sér grein fyrir þegar hann frétti fyrst af málinu fyrir hálfum mánuði. Björgólfur Thor Björgólfsson stóð fyrir umfangsmiklum njósnum um Vilhjálm árið 2012 með aðstoð lögreglumanna.

Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins

Meintar njósnaðgerðir, sem hafa meðal annars orðið til þess að varðstjóri hjá lögreglunni hefur verið leystur undan vinnuskyldu, eru sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins, Björgólfi Thor Björgólfssyni og Róberti Wessman, sem og máli fyrrverandi hluthafa Landsbankans gegn Björgólfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×