Innlent

Skýrsla starfs­hóps um lagaum­gjörð hval­veiða til­búin

Lovísa Arnardóttir skrifar
Starfshópnum var falið að rýna í lagaumgjörð hvalveiða á Íslandi.
Starfshópnum var falið að rýna í lagaumgjörð hvalveiða á Íslandi. Vísir/Egill

Starfshópur um lagaumgjörð hvalveiða hefur lokið vinnu sinni við skýrslu sína og afhent ráðherra hana. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verða niðurstöður skýrslunnar kynntar á komandi vikum.

Starfshópurinn var skipaður af þáverandi starfandi matvælaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, í febrúar í fyrra.

Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, var skipaður formaður starfshópsins en honum var falið að rýna lagaumgjörð hvalveiða, þar með talið alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins, valdheimildir og skyldur stjórnvalda á þeim grundvelli.

Í tilkynningu um starfshópinn í febrúar í fyrra kom fram að starfshópurinn ætti að skila skýrslu þar sem fram kæmi valkostagreining um mögulegar leiðir til úrbóta og stefnumótunar.

„Valkostir skulu bæði taka mið af áframhaldandi veiðum sem og takmörkun eða banni við veiðum til framtíðar. Skýrslunni er ætlað að vera grundvöllur fyrir framtíðarstefnumótun um hvalveiðar,“ segir í tilkynningunni.

Starfshópinn skipa, auk Þorgeirs, Dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindarétti við Háskóla Íslands, Árni Kolbeinsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, Dr. Snjólaug Árnadóttir, forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík og dósent og Trausti Fannar Valsson, forseti lagadeildar Háskóla Íslands og dósent í stjórnsýslurétti.

Ekki fleiri sótt um leyfi

Í desember voru gefin í tvö leyfi til hvalveiða. Hvalur hf. fékk leyfi til hvalveiða og Tjaldtangi hf. fékk leyfi til að veiða hrefnu. Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann myndi ekki veiða langreyði í sumar en Gunnar Torfason, framkvæmdastjóri Tjaldanga hf., sagði í viðtali við Vísi fyrr í vikunni að hann myndi hefja hrefnuveiðar í sumar. Hann stefnir á að selja kjötið á Íslandi.

Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu hafa ekki fleiri sótt um leyfi. Fjórir sóttu um leyfi fyrir áramót en tveir umsækjenda uppfylltu ekki skilyrði fyrir leyfisveitingu til hrefnuveiða.


Tengdar fréttir

Engar hvalveiðar Hvals í sumar

Hvalur hf. stefnir ekki á hvalveiðar í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu en RÚV greindi fyrst frá.

Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð

Fyrsta langreyðurin sem Hvalur hf. skaut eftir að veiðar hófust á ný, eftir tímabundna stöðvun, háði 35 mínútna dauðastríð. Fréttastofa hefur undir höndum myndbandsupptökur af atvikinu. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir þetta sýna að ekki sé hægt að veiða stórhveli með mannúðlegum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×