Súðavíkurhreppur
1 2 3 4 … 4 ›
Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Sigríður Hrönn Elíasdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Súðavík, er látin, 65 ára að aldri. Sigríður Hrönn var ráðin sveitarstjóri árið 1990 og gegndi starfinu þegar snjóflóðin féllu á bæinn í janúar 1995 og fjórtán fórust. Innlent 9.10.2024 08:35
Ákærður fyrir að stinga mann í heimahúsi í Súðavík Ungur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann í heimahúsi í Súðavík þann 11. júní síðastliðinn. Innlent 17.7.2024 11:47
Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. Innlent 28.6.2024 14:36
Lengja gæsluvarðhald vegna stunguárásar í Súðavík Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Vestfjörðum að framlengja gæsluvarðhald yfir manninum sem er grunaður um að hafa stungið mann í Súðavík í síðustu viku. Innlent 19.6.2024 13:19
Vikulangt gæsluvarðhald vegna stunguárásar í Súðavík Héraðsdómur Vesturlands hefur samþykkt vikulangt gæsluvarðhald yfir manninum sem er grunaður um að hafa stungið mann í Súðavík í gærkvöldi. Maðurinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsókn málsins er á frumstigi. Innlent 12.6.2024 17:28
Stunginn í heimahúsi í Súðavík Ungur karlmaður var handtekinn í heimahúsi í Súðavík seint í gærkvöldi, grunaður um að hafa stungið mann. Maðurinn hlaut lífshættuleg stungusár og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hann er nú kominn úr lífshættu. Innlent 12.6.2024 10:20
Fálkaorðuhafinn á Olís: „Lengi afneitaði ég því að Ragnar væri dáinn“ „Lengi afneitaði ég því að Ragnar væri dáinn. Ef fólk fór að tala um hann í þátíð, gekk ég í burtu. Því með því að tala ekki um að hann væri dáinn, náði ég að sannfæra mig um að kannski væri hann á lífi, segir Sesselja Vilborg Arnardóttir stöðvarstjóri Olís á Akureyri, fálkaorðuhafi og stofnandi Raggagarðs í Súðavík. Áskorun 31.3.2024 08:00
Biðin eftir jarðgöngum óásættanleg Bæjarstjóri Ísafjarðar segir óásættanlegt að biðin eftir jarðgöngum á milli Súðavíkur og bæjarins verði líklega um tuttugu ár eins og staðan er nú. Ítrekað hafi þurft að loka veginum um Súðavíkurhlíð í vetur vegna snjóflóða og ótrúlegt sé að ekki hafi orðið stórslys. Innlent 4.3.2024 22:17
Tveir handteknir fyrir að virða ekki lokanir vegna snjóflóðahættu Lögreglan á Vestfjörðum handtók í nótt ökumann og farþega bifreiðar sem virtu ekki lokunarpóst á veginum frá Súðavíkur til Ísafjarðar. Veginum hafði verið lokað vegna mikillar snjóflóðahættu. Innlent 1.2.2024 13:24
Loka aftur Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu Veginum um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð, milli Ísafjarðar og Súðavíkur, verður aftur lokað í kvöld. Honum var lokað í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Innlent 30.1.2024 19:00
Kalla eftir jarðgöngum: Flestir íbúar hafa fests í snjóflóði eða rétt sloppið Súðavíkurhlíð var lokað fyrirvaralaust í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Sveitarstjóri segir bíla hafa verið báðu megin við flóðið og kallar eftir jarðgöngum til að auka öryggi íbúa. Innlent 30.1.2024 13:41
Vegurinn milli Súðavíkur og Ísafjarðar opinn á ný Vegurinn á milli Ísafjarðar og Súðavíkur á Vestfjörðum hefur verið opnaður fyrir umferð á nýjan leik. Veginum var lokað í gærkvöldi eftir að snjóflóð féll úr hlíðinni og yfir veginn. Innlent 30.1.2024 10:40
Lokað milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðs Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur hefur verið lokað eftir að stórt snjófljóð féll úr Súðavíkurhlíð. Vegurinn verður ekki opnaður fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið. Innlent 29.1.2024 21:16
Bráðum kemur slydda og snjór... Nú fer í hönd sá tími þar sem skrýtnar tilfinningar bæra á sér fyrir vegfarendur fyrir vestan, ekki síst á norðanverðum Vestfjörðum. Það er komið haust á dagatalinu þó enn sé sumarblíða víðsvegar um land. Skoðun 17.9.2023 18:00
Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári. Innlent 18.7.2023 23:33
Óvissa um næstu jarðgöng og hvernig þau verða fjármögnuð Innviðaráðherra vill ekkert segja um það hvenær hægt verður að bjóða út næstu jarðgöng á Íslandi né hvort hann leggi til í nýrri samgönguáætlun að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni. Óvissa ríkir um fjármögnun. Innlent 6.5.2023 06:12
„Sárin eru mjög djúp og þau gróa mjög hægt“ Forsætisráðherra mun funda með lögmanni aðstandenda fórnarlamba snjóflóðanna á Súðavík í næstu viku. Lögmaður segir sárin mjög djúp og þau grói hægt vegna þess að málið fékk ekki viðeigandi skoðun á sínum tíma. Innlent 29.4.2023 16:01
Einfaldað regluverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga Sumt dregur bara það versta fram í fólki. Skortur á peningum er eitt af því sem sálarlífið ræður illa við með auknum kröfum samfélagsins um fjárútlát. Skoðun 14.3.2023 12:30
Pósthúsið í Mjóddinni kveður og póstafgreiðsla víða úti á landi Pósturinn hyggst loka pósthúsum á næstunni og meðal þeirra sem hverfa á braut er pósthús Breiðhyltinga í Mjódd og Ólsara í Ólafsvík. Forstjóri Póstsins segir breytingarnar í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. Neytendur 27.2.2023 16:27
Skýrslan leiði til úrbóta í veitingu leyfa til fiskeldis Ítrekaðar frestanir á leyfisveitingum fyrir fiskeldi í Ísafjarðardjúpi valda því að örlög laxaseiða fyrir á þriðja hundrað milljóna króna eru í uppnámi hjá Arctic Fish. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að viðkomandi stofnanir taki mið af ábendingum Ríkisendurskoðunar, fari að lögum og gefi út leyfin. Viðskipti innlent 18.2.2023 22:44
Varðskipið Þór viðbragðsaðilum til halds og trausts vegna veðurs Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka veginum sem liggur um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð klukkan 20:00 í kvöld vegna veðurs. Þá er varðskipið Þór komið vestur og verður viðbragðsaðilum til halds og trausts. Innlent 8.1.2023 15:56
Vill bora öll jarðgöng sem þörf er á hérlendis á næstu þrjátíu árum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vill að á næstu þrjátíu árum verði reynt að bora öll þau jarðgöng sem þörf er á hérlendis en fjármagna þau í allt að fimmtíu ár eftir það. Innlent 1.12.2022 22:20
Talsmenn Súðavíkur- og Fljótaganga segja ekki boðlegt að bíða í áratugi Talsmenn sveitarfélaga sem þrýsta á Súðavíkurgöng fyrir vestan og Fljótagöng fyrir norðan segja þessi verkefni það brýn að ekki sé hægt að bíða eftir því að jarðgangagerð klárist á Mið-Austurlandi. Áformað er að samgönguáætlun verði endurskoðuð á Alþingi eftir áramót. Innlent 8.11.2022 22:01
Ungmennaþing á Vestfjörðum í fyrsta sinn um helgina Um fjörutíu ungmenni af öllum Vestfjörðum eru nú saman komin á Laugarhóli í Bjarnarfirði þar sem fyrsta ungmennaþing Vestfjarða fer fram. Mörg málefni eru á dagskrá, eins og um skólamál, einelti, umhverfismál og alþjóðamál. Innlent 5.11.2022 15:04
Ný bortækni gæti valdið byltingu í jarðgangagerð Ný aðferð í jarðgangagerð sem felst í að nota plasma-ljósboga til að mölva sér leið í gegnum berg vekur vonir um að jafnvel villtustu draumar margra á Íslandi um veggöng gætu ræst. Fullyrt er að með þessari tækni megi grafa göng margfalt hraðar og margfalt ódýrar en með núverandi tækni og með mun minni umhverfisáhrifum. Viðskipti erlent 2.8.2022 15:36
Banaslysið í Skötufirði: Sofnaði líklegast undir stýri eftir næturflug Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur sennilegt að ökumaður bíls, sem missti stjórn á bíl þannig að hann snerist, rann út af veginum og valt niður í sjó á Djúpvegi í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi í janúar 2021, hafi sofnað undir stýri eftir að hafa verið á ferðalagi í fimmtán klukkustundir. Tveir farþegar – 29 ára kona og eins árs drengur – létust í slysinu. Innlent 8.6.2022 07:42
Jakob Valgeir kaupir 20 prósent í Hraðfrystihúsinu Gunnvör Jakob Valgeir ehf., sem rekur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Bolungarvík, hefur keypt nærri 20 prósenta hlut í Hraðfrystihúsinu Gunnvör samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 25.5.2022 15:18
Sveitarstjórinn fékk flest atkvæði í Súðavíkurhreppi Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, fékk flest atkvæði í óhlutbundnum kosningum í Súðavíkurhreppi síðastliðinn laugardag. Hlutkesti réði því hverjir tóku fjórða og fimmta sætið í sveitarstjórn. Innlent 17.5.2022 14:39
Mun skoða hvort æskilegt sé að virkja í friðlandi Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra útilokar ekki að hann muni breyta friðlýsingarskilmálum í Vatnsfirði til að hægt verði að virkja þar. Hugmyndin er eitur í beinum sumra þingmanna Vinstri grænna. Innlent 13.5.2022 11:57
Fólksfjölgun í fyrsta skipti í þrjátíu ár Mikið uppbyggingarskeið er hafið á norðanverðum Vestfjörðum í fyrsta skipti í þrjá áratugi. Um hundrað íbúðir fara í byggingu þar í ár og gera sveitarstjórar þar ráð fyrir að nokkur hundruð manns muni flytja vestur á næstu árum. Innlent 12.5.2022 15:31