Innlent

„Mér finnst þetta ekki rosa­lega pent“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bragi Þór Thoroddsen er sveitarstjóri Súðavíkurhrepps.
Bragi Þór Thoroddsen er sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Vísir

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segir það viðvarandi vandamál að fólk dvelji í íbúðarhúsum í eldri byggðinni sem er ekki varin fyrir snjóflóðum. Það geti sett viðbragðsaðila í mikla hættu ætli fólk ekki að fylgja reglunum. 

Í gærkvöldi þurfti lögreglan á Vestfjörðum að hafa afskipti af fólki sem dvaldi í íbúðarhúsum í eldri byggð Súðavíkur. Óheimilt er að dvelja í húsunum frá 1. nóvember til 30. apríl á hverju ári þar sem byggðin er ekki varin fyrir snjóflóðum. Eftir mannskætt snjóflóð í Súðavík 1995 var byggðin færð innar í fjörðinn og þessar reglur settar á dvöl í húsunum í gömlu byggðinni.

Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir það viðvarandi vandamál að fólk dvelji í húsunum á banntíma.

„Þetta er kannski sama og þú stendur frammi fyrir þegar þú kemur að rauðu ljósi um miðja nótt á fáförnum vegi. Þú getur komist upp með að renna yfir á rauðu. En það er rautt af einhverri ástæðu. Þetta er bara ákvörðun sem fólk verður að taka. Það eru reglur um þetta og það óheppilega við það er að það eru engin ákveðin viðurlög. Það hefur lengi komið fram og hefur þróast þannig í gegnum tíðina. Það hefur ekki orðið snjóflóð af þessum skala í gömlu byggðinni en hvenær það verður næst vitum við ekki,“ segir Bragi. 

Ekki rétt í minningu þeirra sem létust

Þeir sem dvelja í húsunum þurfa ekki að láta vita hvenær þeir eru þarna og því gæti það reynst hættulegt fyrir björgunarfólk komi til snjóflóðs, ef það gerist ítrekað að fólk sé að dvelja þar utan leyfilegs tímabils.

„Mér finnst þetta sérstaklega ankannalegt í ár kannski, þar sem á þessu ári eru þrjátíu ár liðin frá því að snjóflóðið féll. Það er yfirstandandi rannsókn frá rannsóknarnefnd Alþingis til þess að fara ofan í saumana á því sem kann að hafa farið úrskeiðis eða aflaga í stjórnsýslunni í aðdraganda og eftirleik snjóflóðsins. Mér finnst ekki rosalega pent að það sé þá fólk að dvelja á óleyfilegum tíma í byggðinni. Mér finnst það ekki rétt í minningu þeirra sem létu lífið í þessum hamförum og bara allra hluta vegna. Og þess utan eru reglur reglur,“ segir Bragi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×