Fótbolti

Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Heimir Hallgrímsson og írsku strákarnir hans þurfa að vinna Búlgaríu til að halda sér í B-deild Þjóðadeildarinnar.
Heimir Hallgrímsson og írsku strákarnir hans þurfa að vinna Búlgaríu til að halda sér í B-deild Þjóðadeildarinnar. getty/Bradley Collyer

Dregið var í umspil fyrir Þjóðadeild karla í fótbolta í dag. Einnig var dregið í átta liða úrslit A-deildarinnar.

Ísland mætir Kósovó í tveimur leikjum um að halda sér í B-deild Þjóðadeildarinnar. Leikirnir fara fram 20. og 23. mars 2025. Óvíst er hvar heimaleikur Íslands fer fram en ekki verður hægt að spila hér á landi vegna vallarmála.

Írarnir hans Heimis Hallgrímssonar mæta Búlgörum í sama umspili og Íslendingar. Líkt og Ísland endaði Írland í 3. sæti síns riðils í B-deildinni.

Evrópu- og Þjóðadeildarmeistarar Spánar mæta Hollandi í átta liða úrslitum A-deildarinnar. Portúgal mætir Danmörku, Króatíu mætir Frakklandi og Ítalía mætir Þýskalandi.

Leikirnir í átta liða úrslitum A-deildarinnar fara fram 20. og 23. mars. Sigurvegararnir komast svo í úrslitakeppnina sem fer fram í júní 2025.

Drátturinn í Þjóðadeildinni

A-deild: 8-liða úrslit

  • Spánn - Holland
  • Portúgal - Danmörk
  • Króatía - Frakkland
  • Ítalía - Þýskaland

A-B umspil

  • Tyrkland - Ungverjaland
  • Úkraína - Belgía
  • Austurríki - Serbía
  • Grikkland - Skotland

B-C umspil

  • Kósovó - Ísland
  • Búlgaría - Írland
  • Armenía - Georgía
  • Slóvakía - Slóvenía

C-D umspil

  • Gíbraltar - Lettland
  • Malta - Lúxemborg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×