Íslenski boltinn

Ágúst Orri aftur heim í Breiða­blik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ágúst Orri Þorsteinsson er kominn aftur í grænt.
Ágúst Orri Þorsteinsson er kominn aftur í grænt. breiðablik

Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa keypt Ágúst Orra Þorsteinsson til baka frá Genoa á Ítalíu.

Ágúst lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Breiðablik 2021 og gekk í raðir Malmö árið eftir. Hann kom aftur til Breiðabliks fyrir tímabilið 2023 og lék tólf deildar- og bikarleiki með liðinu áður en hann samdi við Genoa.

Hinn nítján ára Ágúst er nú kominn aftur til Breiðabliks og tekur þátt í titilvörn liðsins á næsta tímabili.

Ágúst hefur leikið 21 leik fyrir yngri landslið Íslands og lék meðal annars með U-19 ára landsliðinu á EM í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×