Íslenski boltinn

Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarða­byggð sjái að sér“

Sindri Sverrisson skrifar
Björgvin Karl Gunnarsson og Baldur Sigurðsson í ræktarsalnum sem nú er án allra ræktartækja.
Björgvin Karl Gunnarsson og Baldur Sigurðsson í ræktarsalnum sem nú er án allra ræktartækja. Stöð 2 Sport

Í lokaþætti nýrrar seríu af Lengsta undirbúningstímabili í heimi tekur Baldur Sigurðsson púlsinn á nýliðunum frá Austfjörðum í FHL sem í fyrsta sinn spila í Bestu deildinni í sumar. Þjálfarinn Björgvin Karl Gunnarsson sýnir Baldri meðal annars aðstöðuna í Fjarðabyggð.

Þátturinn um FHL er sýndur á Stöð 2 Sport 5 í kvöld klukkan 20 en þetta er sjötti og síðasti þátturinn í seríunni, þar sem Baldur heimsækir liðin sem eru að búa sig undir leiktíðina. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: LUÍH - Bærinn seldi öll tækin úr ræktinni

FHL byrjar sína fyrstu leiktíð í efstu deild með leik við Tindastól á Sauðárkróki í kvöld og tekur svo á móti Val í Fjarðabyggðarhöllinni á annan í páskum.

Á undirbúningstímabilinu urðu miklar breytingar á aðstöðunni sem leikmenn FHL njóta því að sögn Björgvins seldi Fjarðabyggð öll helstu tæki og tól úr líkamsræktaraðstöðu félagsins í desember:

„Hérna var mjög góð rækt og frábært útsýni en það var ákveðið að selja tæki og tól, og líklega á að breyta þessu í félagsmiðstöð,“ segir Björgvin Karl.

Sendi fyrirspurn á bæinn en fékk aldrei svar

„Þetta er mjög dapurt með þessa frábæru íþróttamiðstöð. Ég ætla að vona að Fjarðabyggð sjái að sér og reyni að koma upp einhverri aðstöðu. Þeir töldu sig ekki mega vera í samkeppni við aðra líkamsræktarstöð sem sér um Crossfit. Það góða fólk fékk því að kaupa tækin og er komið með aðstöðu þar, og leyfa okkur væntanlega að fara þangað. En þá ertu annars staðar og þarft að fara á milli, sem er óhagstætt fyrir afreksíþróttafólk hér í Fjarðabyggð,“ segir Björgvin Karl.

Baldur var óneitanlega hissa á þessari stöðu:

„Þið eruð flaggskipið, komin í Bestu deild kvenna og væntanlega mikil gleði og miklar væntingar, en þá er þetta skref til baka finnst manni. Að taka frá aðstöðu í stað þess að skapa betri og nýrri aðstöðu,“ segir Baldur og Björgvin Karl tekur undir:

„Ég hefði alltaf frekar viljað sjá að þessi aðstaða yrði frekar bætt. Ég sendi meðal annars fyrirspurn á bæinn um söluna en fékk ekki einu sinni svar. Mér finnst því ekki verið að gera þetta með afreksíþróttafólk í huga, hvort sem það er í fótbolta, glímu eða skíðum. Ég veit að til dæmis markvörðurinn minn, sem er að koma aftur frá Bandaríkjunum, mun fá áfall þegar hún sér þetta. Við erum hins vegar með fínustu aðstöðu í Crossfit, tækin fóru þangað og við eigum að geta leitað til þeirra, en þú hefur þá ekki tíma til að hoppa til dæmis upp og gera „activation“ æfingar eða hjóla, til að gera þig kláran [fyrir fótboltaæfingu].“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×