Viðskipti innlent

Opna verslanir í Kringlunni á ný

Árni Sæberg skrifar
Kultur er meðal sex verslana sem voru opnaðar í morgun.
Kultur er meðal sex verslana sem voru opnaðar í morgun. Vísir/Sigurjón

Kaupmenn í Kringlunni opnuðu í dag sex verslanir sem loka þurfti eftir alvarlegan bruna í verslunarmiðstöðinni í júní síðastliðnum. Ráðgert er að opna restina af búðunum sem var lokað í næstu viku.

Hátt í þrjátíu verslanir skemmdust þegar kviknaði í þaki Kringlunnar í júní, þegar verið var að leggja þakpappa.

Í fréttatilkynningu frá Kringlunni segir að verslanir hafi skemmst mismikið og endurbætur hafi staðið yfir síðan bruninn varð. Nú horfi allt til betri vegar og verslanir hafi verið opnaðar hver á fætur annarri.

Restin opnuð í næstu viku en þó ekki allar

Í dag hafi mikilvægum áfanga verið náð þegar verslanirnar Polarn O. Pyret, Icewear, Galleri 17, Kultur, Kultur Menn og GS skór voru opnaðar. Þær allra síðustu verði opnaðar í síðustu viku. Þó hefur verið greint frá því að ekki allar verslanir verði opnaðar á ný.

„Síðustu mánuðir hafa verið langir og erfiðir fyrir alla sem tengjast Kringlunni, viðskiptavini og rekstraraðila. Miðað við umfang skemmda er kraftaverk hvað mikið hefur áunnist við endurbætur og Kringlan í dag er jafnvel betri en ný,“ er haft eftir Baldvinu Snælaugsdóttur, markaðsstjóra Kringlunnar.

Lán í óláni

Haft er eftir Baldvinu að í erfiðleikum myndist oft tækifæri og að tekist hafi í samstarfi við rekstraraðila að endurskipuleggja verslanaeiningar, færa til verslanir sem hafi lengi beðið eftir stærra rými auk fleiri hagræðinga.

Kringlan er komin í jólabúning eins og svo margt annað.Kringlan

„Ný og spennandi verslun opnar á næstu dögum en það er Húrra Reykjavík. Við erum við afar glöð með að fá þau í húsið og ekki í vafa um að viðskiptavinir verði það líka. Við í Kringlunni erum himinlifandi með þennan áfanga í dag. Kringlan er komin í jólaskrúða og sannarlega vel í stakk búin fyrir jólagleðina á aðventunni sem nálgast óðfluga.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×