Handbolti

Mis­jöfn úr­slit hjá Ís­lendingunum í Evrópu­deildinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Enginn skoraði meira en Óðinn Þór í liði Kadetten í kvöld.
Enginn skoraði meira en Óðinn Þór í liði Kadetten í kvöld. Jan-Philipp Burmann/Getty Images

Þrír Íslendingar voru í eldlínunni með liðum sínum í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld. Úrslitin voru upp og ofan.

Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði eitt mark í mikilvægum þriggja marka sigri Bjerringbro-Silkeborg á Granollers, lokatölur 35-32.

Þetta var fyrsti sigur danska liðsins í keppninni og liðið er nú með fjögur stig í 3. sæti B-riðils, líkt og Granollers, þegar tvær umferðir eru eftir. Montpellier er með fullt hús að loknum þremur umferðum á meðan G. Zabrze er án stigá botninum en þau mætast síðar í kvöld.

Stiven Tobar Valencia skoraði fjögur mörk í öruggum 13 marka sigri Benfica á Tatran Prešov frá Slóvakíu í C-riðli, lokatölur 36-23. Í hinum leik riðilsins skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson fimm mörk þegar Kadetten mátti þola tíu marka tap gegn Limoges, lokatölur 29-39.

Staðan í riðlinum er þannig að Benfica er með fullt hús stiga eða átta talsins eftir fjórar umferðir. Limoges og Kadetten eru með fjögur stig hvort á meðan Tatran Prešov er án stiga.

Efstu tvö lið í hverjum riðli fara áfram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×