Handbolti

Hafn­firðingar stóðu í Svíunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Garðar Ingi Sindrason var með markahærri mönnum FH í kvöld.
Garðar Ingi Sindrason var með markahærri mönnum FH í kvöld. Vísir/Anton Brink

FH mátti þola fjögurra marka tap gegn Sävehof ytra í Evrópudeild karla í handbolta, lokatölur 30-26.

FH mætti með sjálfstraustið í lagi eftir frábæran fjögurra marka sigur á Svíunum í síðustu umferð H-riðils. Tapið í Kaplakrika var leikmönnum Sävehof því ofarlega í huga og engar líkur á vanmati í leik kvöldsins.

Framan af leik má segja að þarna hafi stálin stinn mæst, liðin héldust í hendur allt þangað til það voru fimm mínútur eftir af fyrri hálfleik. Staðan þá 13-13 en heimamenn skoruðu þrjú mörk í röð og voru því þremur mörkum yfir í hálfleik.

Í síðari hálfleik tókst FH-ingum aldrei að vinna upp þennan þriggja marka mun þrátt fyrir að ná að minnka muninn niður í aðeins eitt mark um miðbik hálfleiksins. Á endanum fór það svo að heimamenn unnu fjögurra marka sigur, lokatölur 30-26.

Gustaf Wedberg, Isak Jogvan Djurhuus Vedelsbøl og Oli Mittun voru markahæstir hjá Sävehof með fimm mörk hver.

Símon Michael Guðjónsson var markahæstur hjá FH með sex mörk. Þar á eftir komu Garðar Ingi Sindrason, Jóhannes Berg Andrason og Jón Bjarni Ólafsson með fjögur mörk hver. Í markinu vörðu Daníel Freyr Andrésson og Birkir Fannar Bragason samtals níu skot.

Í hinum leik kvöldsins i H-riðli vann franska liðið Toulouse lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach með eins marks mun, 31-30. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu í liði Gummersbach.

Guðjón Valur þegar Gummersbach sótti FH heim.Vísir/Anton Brink

Staðan er svo þannig eftir fjórar umferðir að Gummersbach og Toulouse eru með sex stig þökk sé þremur sigrum og einu tapi á lið til þessa. Sävehof og FH eru svo með tvö stig eftir einn sigur en Hafnfirðingar sitja hins vegar á botninum sem stendur á markatölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×