Fótbolti

Neymar kaupir glæsi­villu í Miami á þrjá og hálfan milljarð

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Neymar hefur spilað 128 A-landsleiki fyrir Brasilíu og skorað í þeim 79 mörk.
Neymar hefur spilað 128 A-landsleiki fyrir Brasilíu og skorað í þeim 79 mörk. Vísir/Getty Images

Kaup brasilíska knattspyrnumannsins Neymar á glæsivillu í Flórída á þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna hafa ýtt undir þær sögusagnir að Brasilíumaðurinn gæti orðið samherji Lionel Messi hjá Inter Miami áður en langt um líður.

Hinn 32 ára gamli Neymar spilar í dag fyrir Al Hilal í Sádi-Arabíu og sneri nýverið aftur á völlinn eftir næstum ár frá keppni eftir að hann sleit krossband í hné.

Hann samdi við Al Hilal í ágúst á síðasta ári eftir sex ár hjá París Saint-Germain þar sem hann spilaði með Messi. Þeir spiluðu einnig saman hjá Barcelona þar áður.

Neymar skrifaði undir tveggja ára samning í Sádi-Arabíu og verður því samningslaus í ágúst á næsta ári. Litlar sem engar líkur eru taldar á því að Neymar framlengi samning sinn við Al Hilal.

Nú hefur hann keypt rándýra eign í Bal Harbour-hverfinu á Miami. Þar býr meðal annars Micky Arison, eigandi NBA-liðsins Miami Heat. Þá sagði Neymar fyrr á þessu ári að hann myndi vilja spila með Messi á nýjan leik.

„Vonandi getum við spilað saman á ný. Leo er frábær persóna, það þekkja hann allir og ég tel hann mjög glaðan. Ef hann er glaður er ég glaður,“ sagði Neymar í viðtali við ESPN í mars síðastliðnum.

Fari svo að Neymar myndi ganga í raðir Inter Miami þá yrði hann enn einn fyrrverandi leikmaður Barcelona sem ákveður að venda kvæði sínu í kross og flytja til Bandaríkjanna. Ásamt Messi eru Luis Suárez, Sergio Busquets og Jordi Alba allir á mála hjá félaginu sem er komið með annan fótinn í undanúrslit MLS-deildarinnar í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×