Innlent

Sam­keppni á ís­lenskum frjósemismarkaði í fyrsta sinn

Magnús Jochum Pálsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Frjósemisstofan Sunna er nýopnuð og er það með komin samkeppni á þeim markaði í fyrsta sinn.
Frjósemisstofan Sunna er nýopnuð og er það með komin samkeppni á þeim markaði í fyrsta sinn. Stöð 2

Ný frjósemisstofa hefur hafið starfsemi hér á landi og er í fyrsta sinn samkeppni á þessum markaði. Stofan mun bjóða upp á greiningu á genagöllum í fósturvísum sem geta leitt til alvarlegra sjúkdóma.

Frjósemisstofan Sunna var formlega opnuð í gær þegar heilbrigðisráðherra fékk leiðsögn um svæðið en starfsemi er þegar hafin og aðsókn í þjónustuna töluverð.

„Hún hefur verið mjög góð, vonum framar verð ég að segja. Við vissum náttúrulega ekkert á hverju við áttum von en talsvert áður en við opnuðum voru tugir manna búnir að hafa samband og óskað eftir þjónustu,“ segir Ingunn Jónsdóttir, meðeigandi Sunnu, í samtali við fréttastofu.

Fyrsta fósturvísisgreiningin hérlendis

Frjósemisstofan mun meðal annars bjóða upp á fósturvísisgreiningar sem þau segja að hafi hingað til ekki verið í boði hér á landi. Um er að ræða greiningu þar sem meðal annars er reynt að auka líkurnar á þungun.

„Hins vegar getur maður líka notað þessa tækni til að greina sjúkdóma. Ef að par eða einstaklingur er með arfgenga sjúkdóma getur maður tekið lífssýni og komið í veg fyrir að það fæðist einstaklingur með mjög alvarlega sjúkdóma,“ segir Þórir Harðarson, meðeigandi stofunnar.

Landsspítalinn mun koma að slíkum greiningum. Þetta er í fyrsta sinn sem samkeppni er á frjósemismarkaði á Íslandi en hingað til hefur aðeins einn aðili boðið upp á þjónustuna hérlendis. Þórir segir einokun á markaði aldrei af hinu góða.

„Bara eins og með hvaða bransa sem er. Það er mikilvægt að það sé annar valkostur og við ætlum að vera með örlítið aðrar áherslur,“ segir hann. „Okkur fannst mikilvægt að vera með annan valkost.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×