Fótbolti

Gló­dís Perla og stöllur sóttu sigur til Ítalíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tveir leikir, tveir sigrar.
Tveir leikir, tveir sigrar. Sven Hoppe/Getty Images

Bayern München lagði Juventus 2-0 á útivelli í C-riðli Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Glódís Perla Viggósdóttir bar fyrirliðaband Bayern í leiknum og stóð vaktina með prýði í miðverðinum.

Gestirnir frá Bæjaralandi voru mun sterkari aðilinn í leiknum og komust yfir strax á 17. mínútu þegar Linda Dallmann skoraði. Guilia Gwinn með stoðsendinguna.

Það reyndist eina mark leiksins þangað til rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. Pernille Harder tvöfaldaði þá forystu gestanna og þar við sat, lokatölur 0-2.

Bayern hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína í riðlakeppninni en liðið vann 5-2 sigur á Arsenal í 1. umferð keppninnar.

Í D-riðli vann Manchester City 3-2 útisigur á St. Pölten frá Austurríki. Mörk City skoruðu Alanna Kennedy, Aoba Fujino og Mary Fowler.

Man City er með sex stig eftir frábæran 2-0 sigur á Barcelona í 1. umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×