Innlent

Keyrt á tvo unga drengi

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Greint var frá málunum í dagbókarfærslu lögreglu.
Greint var frá málunum í dagbókarfærslu lögreglu.

Keyrt var á tvo unga drengi í dag, í tveimur mismunandi tilfellum, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar.

Þar segir annars vegar frá því að keyrt hafi verið á undan dreng í því umdæmi lögrelgunnar sem telur Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes. Minniháttar áverkar hafi verið á honum. 

Hins vegar var ekið á ungan dreng í því umdæmi lögreglunnar sem telur Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.

„Áverkar á fæti og drengurinn fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús til frekari skoðunar,“ segir í tilkynningu. „Lögregla gerði viðeigandi ráðstafanir þar sem óskað var eftir að öryggi verði bætt á gatnamótunum þar sem slysið varð.“

Þá var tilkynnt um enn eitt umferðaróhappið þar sem tjónvaldur hafi ekið af vettvangi án þess að grípa til viðeigandi ráðstafana. Sá hafi fundist stuttu síðar og málið afgreitt á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×