Salah setti met í sigri Liverpool

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Salah lagði upp og skoraði svo sjálfur. 
Salah lagði upp og skoraði svo sjálfur. 

Liverpool vann öruggan 2-0 sigur gegn Bologna í annarri umferð Meistaradeildarinnar. Mohamed Salah lagði fyrra markið upp á Alexis Mac Allister og skoraði síðan sjálfur eftir stoðsendingu Dominiks Szoboslai.

Forystan var tekin snemma, á 11. mínútu, fyrirgjöf Salah rataði þá á fjærstöngina þar sem Alexis Mac Allister beið eftir boltanum og stýrði í netið. Þetta var hans fyrsta mark í Meistaradeildinni á ferlinum.

Bologna var langt frá því að leggjast niður og sætta sig við stöðuna, liðið sótti vel, skaut í stöng og slá, kom boltanum síðan yfir línuna en markið var dæmt ógilt vegna rangstöðu.

Mohamed Salah kom Liverpool í þægilegri stöðu á 75. mínútu. Hann fékk boltann frá Szoboslai úti á hægri kantinum, kaus að gefa ekki á Trent Alexander-Arnold sem kom í utanáhlaupi, skaut sjálfur og skoraði.

Þetta var 45. mark Salah í Meistaradeildinni, sem gerir hann að markahæsta leikmanni frá Afríkulandi í sögu keppninnar.

Liverpool hefur unnið fyrstu tvo leikina í Meistaradeildinni, Arne Slot er eini þjálfarinn í sögu félagsins til að afreka það í sínum fyrstu leikjum. 

Bologna er með eitt eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Shaktar Donetsk í fyrstu umferðinni. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira