Innlent

Verslaði fyrir háar upp­hæðir með stolnu kredit­korti

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Þjófurinn hafði verslað fyrir háar upphæðir.
Þjófurinn hafði verslað fyrir háar upphæðir. AP

Tilkynnt var um þjófnað á kreditkorti sem hafði svo verið notað í miðbænum til að versla fyrir háar upphæðir. Lögregla fór á staðinn til að afla upplýsinga og málið er í rannsókn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Þá var einnig tilkynnt um þjófnað í verslun, eignaspjöll á bílskúrum og var ölvuðum manni sem hafði lagt sig í sameign vísað út.

Þá hafði maður brotist inn í heimahús og neitað að fara út þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir húsráðanda, og var lögreglan kölluð á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×