Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Árni Sæberg skrifar 31. maí 2024 13:06 Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði í morgun. Dómstóllinn tekur til þeirra mála sem koma upp á suðvesturhorni landsins. Vísir/Vilhelm Átta hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni.
Mál Lögreglustjórans á Suðurnesjum á hendur fólkinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Í ákæru, sem Vísir hefur undir höndum, hafa nöfn fólksins verið afmáð. Þinghald í málinu er lokað. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um fjölskyldu frá Palestínu að ræða. Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að málið tengist sambandsslitum konunnar við barnsföður sinn og sambandi hennar við nýjan kærasta, sem fjölskyldumeðlimir hafi tekið óstinnt upp. Reyndu að nema dætur konunnar á brott Í ákæru segir að fólkið hafi verið ákært fyrir stórfelld brot í nánu sambandi, en til vara umsáturseinelti, á tímabilinu frá 14. júní 2022 til 17. febrúar 2023, með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar með andlegu og líkamlegu ofbeldi í hennar garð, hótunum, ógnunum, húsbrotum, eignaspjöllum, þjófnaði, með því að skapa viðvarandi ógnarástand fyrir hana og með því að hafa reynt að nema dætur hennar á brott. Háttsemi hvers og eins er nánar reifuð í ákærunni. Reiddist þegar hann sá ljósmyndir af systur sinni Þar segir að þann 14. júní 2022, á ótilgreindum stað í Reykjanesbæ, hafi einn ákærðu, bróðir konunnar, reiðst vegna ljósmynda sem hann sá af henni og kallað hana illum nöfnum. Í kjölfarið, í tröppunum fyrir utan íbúðina, hafi hann kastað tveimur stígvélum og kústskapti í eða í átt að konunni. Þá hafi móðir konunnar og mágur komið að þáverandi heimili konunnar og tveggja dætra hennar þann 27. nóvember árið 2022. Þau hafi farið óboðin inn í íbúðina, þar sem móðirin hafi tekið síma af konunni, mágurinn gripið um upphandleggi hennar og haldið henni fastri á meðan móðirin sló hana með flötum lófa í andlitið. Þau hafi síðan skipað dætrum konunnar, sem ekki er tekið fram hversu gamlar eru, að koma með sér að heimili þeirra í Reykjanesbæ. Þar hafi þau hreinsað gögn af farsíma konunnar ásamt því að taka úr honum SIM-kort og klippa þau í sundur. Brutust inn um glugga og reyndu að draga dæturnar út á nærfötunum Aðfaranótt 5. desember árið 2022 hafi systir konunnar, móðirin og mágurinn komið akandi að dvalarstað konunnar. Móðirin og systirin hafi farið óboðnar inni í íbúðina, systirin inn um glugga, þar sem dæturnar lágu sofandi í rúmi sínu á nærfötunum einum klæða. Móðirin hafi kallað konuna illum nöfnum, tekið af henni farsíma og haldið henni fastri á meðan systirin hélt á annarri dótturinni út í bifreiðina. Konan hafi þá hlaupið út til að reyna að nálgast dóttur sína en mágurinn hafi læst bifreiðinni og haldið henni niðri svo hún kæmist ekki að bifreiðinni. Á sama tíma hafi systirin farið aftur inn í íbúðina að sækja hina dótturina, en skömmu síðar hafi lögreglu borið að garði. Á meðan á þessu stóð hafi fólkið sagt við stúlkurnar að þær ættu að segja að þær vildu frekar búa hjá pabba sínum, ömmu og afa, en ekki mömmu sinni. Hótuðu kærastanum lífláti Þann 22. janúar árið 2022 hafi tveir bræður konunnar, fósturbróðir og barnsfaðir komið að heimili hennar. Á bifreiðastæði þar fyrir utan hafi þeir veist að kærasta konunnar, eftir að hafa veitt honum eftirför um nokkra stund. Barnsfaðirinn hafi reynt að draga kærastann út úr bílaleigubifreið hans og síðan, þegar hann hafði náð að læsa sig inni í bifreiðinni, hafi mennirnir reynt að komast inn í bifreiðina með því að berja rúður hennar, meðal annars með grjóti. Á meðan á þessu stóð hafi þeir hótað kærastanum lífláti. Mennirnir hafi horfið af vettvangi þegar þeir heyrðu að lögreglan væri á leiðinni, en konan hefði ýtt á neyðarhnapp og nágranni hringt á Neyðarlínuna. Mennirnir hafi haldið líflátshótunum áfram símleiðis seinna um kvöldið. Ætti skilið að útlimir yrðu brotnir Þá hafi faðir konunnar greint frá því í skýrslutöku hjá lögreglu, þann 17. febrúar árið 2023, að ef bróðir konunnar hefði myrt hana, hefði það verið í góðu lagi. Hún ætti skilið refsingu í formi þess að vera lamin og fætur hennar og hendur brotnar. Einnig hafi hann greint frá því að væru hann og synir hans „í einhverju arabalandi þá væru þeir löngu búnir að slátra konunni.“ Hótuðu ítrekað að drepa hana Loks hafi tveir bræður, fósturbróðir, barnsfaðir og faðir ítrekað, á tímabilinu frá 14. júní 2022 til 17. febrúar 2023, sagt konunni að þeir myndu drepa hana ef hún sliti ekki sambandi sínu við kærastann. Afleiðingar háttsemi fólksins hafi meðal annars verið þær að konan hafi búið við viðvarandi ógnarástand, hún hafi neyðst um margra mánaða skeið til að fara huldu höfði, hún hafi óttast að hún og/eða dætur hennar yrðu fórnarlömb heiðursmorða og að dætur hennar yrðu numdar á brott. Einnig ákært fyrir brot gegn dætrunum Í öðrum ákærulið eru móðir konunnar, systir hennar og mágur ákærð fyrir brot í nánu sambandi, en til vara brot á barnaverndarlögum, með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð dætra konunnar, skapað fyrir þær viðvarandi ógnarástand, sýnt þeim vanvirðandi háttsemi, yfirgang og ruddalegt athæfi. Með þeirri háttsemi sem lýst er hér að ofan, hafi móðirin og mágurinn brotið gegn dætrunum, sem staddar hafi verið í íbúðinni umrætt sinn og þurft að horfa upp á móður sína vera beitta líkamlegu og andlegu ofbeldi á eigin heimili og vera síðan þvingaðar til að yfirgefa heimilið með fólkinu. Með því að brjótast inn á heimili þeirra, eins og lýst er hér að ofan, hafi systirin, móðirin og mágurinn brotið gegn dætrunum, sem án nokkurs fyrirvara hafi verið um nótt numdar á brott af heimili sínu og út í bifreið, úr rúmi sínu og á nærfötunum einum klæða, allt gegn vilja þeirra og móður þeirra, sem þær hafi þurft að horfa upp á vera haldið niðri á meðan, allt þar til lögregla kom á vettvang. Afleiðingar þessa hafi meðal annars verið þær að hafi upplifað viðvarandi ógnarástand, þurft að fara huldu höfði með móður sinni, dvalið í Kvennaathvarfinu í þónokkurn tíma og misst úr skóla og leikskóla vegna öryggisráðstafana. Bróðir lamdi systurina og pabbinn barnsföðurinn Þá er annar bróðir konunnar ákærður fyrir líkamsárás, með því að hafa slegið systurina einu sinni með flötum lófa á hægri kinn hennar. Loks er faðir konunnar ákærður fyrir líkamsárás með því hafa slegið í öxl barnsföður hennar og í kjölfarið slegið hann með krepptum hnefa í andlitið. Krefst tólf milljóna króna í miskabætur Í ákæru eru tilgreindar einkaréttarkröfur sem konan gerir. Hún krefst þess að annar bróðir hennar greiði henni þrjár milljónir króna vegna atviksins þegar hann kastaði stígvélum í hana. Að móðir hennar, systir og mágur greiði henni óskipt 3,5 milljónir króna vegna atvikanna á heimili hennar. Að bræður hennar, fósturbróðir og barnsfaðir greiði henni óskipt 2,5 milljónir króna vegna atviksins þegar þeir veittust að kærasta hennar fyrir utan heimili hennar. Loks krefst hún þess að móðir hennar, systir og mágur greiði dætrum hennar óskipt 1,5 milljónir króna hvorri fyrir brot þeirra gegn þeim. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, sem rekur málið, krefst þess að fólkið verði dæmt til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglumál Reykjanesbær Dómsmál Mest lesið „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Fleiri fréttir „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Sjá meira