Innlent

Fangelsi oft eina úr­ræðið

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hælisleitendur sem hefur verið vísað úr landi en vilja ekki fara sjálfviljugir eru vistaðir í fangelsi.
Hælisleitendur sem hefur verið vísað úr landi en vilja ekki fara sjálfviljugir eru vistaðir í fangelsi. Vísir

Alls hafa um níutíu hælisleitendur þurft að sæta fangelsisvist áður en þeim er vísað úr landi síðustu mánuði. Verkefnisstjóri hjá ríkislögreglustjóra segir engin önnur úrræði í boði og mikilvægt að gera úrbætur. Í flestum tilvikum hafi fólkið ekki brotið neitt annað af sér en að vera ólöglegt í landinu.

Fangelsin eru sprungin og full af fólki sem á ekki heima þar, eins og einstaklingum sem á að vísa úr landi og fólki með alvarlegar geðraskanir að sögn formanns Félags fangavarða. Ástandið hafi aldrei verið eins slæmt. Yfirvöld þurfi að bregðast við því öryggi fanga, starfsmanna og almennings sé ógnað. Þetta kom fram í fréttum okkar fyrir helgi. 

Þá sendi Afstaða félag fanga frá sér yfirlýsingu um helgina þar sem gagnrýnt var að hælisleitendur sem hafa fengið synjun á umsókn um dvalarleyfi og fara ekki sjálfviljugir úr landi séu vistaðir í fangelsi þar sem þeir bíði brottvísunar, stundum vikum saman.

Mikil aukning á þvinguðum brottflutningum

Marín Þórsdóttur verkefnisstjóri hjá heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra segir að síðustu níu mánuði hafi alls 88 hælisleitendur, sem hafi verið úrskurðaðir ólöglegir í landinu en ekki viljað fara úr landi, setið í fangelsi fyrir brottvísun. Hluti þeirra sitji í gæsluvarðhaldi. Hún segir að mikil aukning hafi orðið í þvinguðum brottflutningum frá ágúst 2023.

„Við reynum alltaf að leitast eftir samvinnu við einstaklinga sem á að vísa úr landi. Ef það tekst hins vegar ekki þá þarf stundum að vista fólk í fangelsi fram að brottför. Hluti þeirra er svo vistaður í gæsluvarðhaldi. Við reynum að láta fólk ekki bíða þar inni lengur en í sólahring þó það geti dregist “ segir Marín. 

Marín segir skorta úrræði í málaflokknum

„Það er ákveðið úrræðaleysi því oftast eru þetta einstaklingar sem hafa ekkert annað unnið til saka en að vera ólöglegir í landinu. Það væri gott að hafa aðrar leiðir og vista þá ekki fólk í fangelsum heldur í annars konar lokuðu úrræði. En við höfum því miður ekki slíkt úrræði og því þarf að fara að loka fólk inni á Hólmsheiði sem er öryggisfangelsi eða á Hverfisgötu,“ segir Marín. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×