Öruggt hjá Milan sem reynir að elta nágrannana Smári Jökull Jónsson skrifar 6. apríl 2024 14:58 Olivier Giroud skoraði í dag eins og svo oft áður. Vísir/Getty AC Milan vann í dag öruggan sigur þegar liðið mætti Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Milan er í 2. sæti deildarinnar en þó ansi langt á eftir nágrönnunum í Inter.
Nágrannaliðin Inter og AC Milan frá Mílanóborg hafa hafa nokkra yfirburði á Ítalíu í vetur. Fyrir leik AC Milan og Lecce í dag var Inter með fjórtán stiga forskot á AC Milan á toppi deildarinnar og Milan var síðan með sex stiga forskot á Juventus sem situr í 3. sæti. Sigur Milan í dag var öruggur. Bandaríkjamaðurinn Christian Pulisic kom heimamönnum í 1-0 á 6. mínútu eftir sendingu Samuel Chukwueze og hinn síungi Frakki Olivier Giroud bætti öðru marki við á 20. mínútu og nú var það Yacine Adli sem lagði upp. Undir lok fyrri hálfleiks fékk Nikola Krstovic í liði Lecce svo rautt spjald og brekka gestanna orðin ansi brött. Í hálfleik var staðan 2-0 en Portúgalinn Rafael Leao gerði út um leikinn á 57. mínútu þegar hann skoraði eftir aðra stoðsendingu frá Adli. AC Milan minnkar því forskot Inter niður í ellefu stig og er nú níu stigum á undan Juventus í 2. sæti deildarinnar. Inter mætir Udinese á útivelli á mánudagskvöld.
Ítalski boltinn Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira