Innlent

Börnin villtu á sér heimildir og seldu kyn­ferðis­legar myndir

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Unglingarnir eru nemendur Hagaskóla.
Unglingarnir eru nemendur Hagaskóla. Vísir/Vilhelm

Skólastjórnendum Hagaskóla hefur borist upplýsingar um að nemendur í skólanum hafi á undanförnum vikum villt á sér heimildir á samfélagsmiðlum, átt í kynferðislegu spjalli við fullorðna einstaklinga og selt þeim kynferðislegar myndir sem þau sjálf hafi sótt á netið.

Þetta kemur fram í tölvupósti Ómars Arnar Magnússonar, skólastjóra Hagaskóla til foreldra barna í skólanum. Þar kemur fram að málið sé komið inn á borð lögreglu og eru foreldrar hvattir til að ræða málið við börn sín.

Ekki kemur fram í bréfi Ómars hvaða angi málsins sé til skoðunar. Að hafa hendur í hári fullorðnu einstaklinganna eða skoða blekkingarleik unglinganna.

Fjögur af hverjum tíu börnum í 8. til 10. bekk hafa verið beðin um að senda af sér nektarmynd og meira en helmingur ungmenna á framhaldsskólaaldri. Þetta kom fram í sameiginlegri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar um niðurstöður könnunarinnar „Börn og netmiðlar“ árið 2022.

Samskiptin á Snapchat og Instagram

„Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum þá fara samskiptin fram í gegnum forrit eins og Snapchat og Instagram auk þess sem Tik tok og appið Telegram hafa verið nefnd. Börnunum eru boðnar á bilinu 5.000-10.000 krónur fyrir myndina og fer upphæðin eftir því hvað sést á myndinni og hversu skýr hún er. Greiðslur hafa farið fram í gegnum öpp eins og Aur og Kass,“ segir í tilkynningu Ómars skólastjóra.

Foreldrar eru hvattir til að eiga samtal við unglinga sína um þessi mál. Þá er foreldrum bent á að fara yfir reikningsyfirlit unglinga sinna ef minnsti grunur vaknar og athuga hvort ókunnugir aðilar hafi lagt inn á þau pening, til dæmis í gegnum AUR.

„Lögreglan er að vinna með okkur í þessu máli svo ef ykkar unglingur hefur einhverjar upplýsingar þá biðjum við ykkur um að koma þeim til okkar eða hafa beint samband lögreglu eða barnavernd.“

Tölvupósturinn í heild sinni:

Kæru foreldrar

Að gefnu tilefni viljum við láta ykkur vita að okkur hafa borist upplýsingar um að einhverjir nemendur í Hagaskóla hafi á undanförnum vikum villt á sér heimildir á samfélagsmiðlum. Þar hafa þau átt í kynferðislegu spjalli við fullorðna einstaklinga og selt þeim kynferðislegar myndir sem þau sjálf hafa sótt á netið.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum þá fara samskiptin fram í gegnum forrit eins og Snapchat og Instagram auk þess sem Tik tok og appið Telegram hafa verið nefnd. Börnunum eru boðnar á bilinu 5.000-10.000 krónur fyrir myndina og fer upphæðin eftir því hvað sést á myndinni og hversu skýr hún er. Greiðslur hafa farið fram í gegnum öpp eins og Aur og Kass.

Við hvetjum ykkur foreldra til að eiga samtal við unglingana ykkar um þessi mál. Ef minnsti grunur vaknar bendum við ykkur á að fara yfir reikningsyfirlit unglingsins ykkar og athuga hvort ókunnugir aðilar hafa verið að leggja inn pening t.d. í gegnum AUR.

Reynið að ræða málin í rólegheitum og mynda öruggt rými fyrir barnið ykkar til að segja ykkur frá ef það þekkir til slíkra mála eða hefur átt í slíkum samskiptum sjálft.

Lögreglan er að vinna með okkur í þessu máli svo ef ykkar unglingur hefur einhverjar upplýsingar þá biðjum við ykkur um að koma þeim til okkar eða hafa beint samband lögreglu eða barnavernd.

Kveðja,

Ómar Örn Magnússon - skólastjóri í Hagaskóla

Ómar Örn Magnússon

Hagaskóli

sent úr Mentor.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×