Handbolti

Alexander í risa­stóra EM-hópnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexander Petersson byrjaði aftur að spila í vetur eftir að hafa verið hættur í eitt ár.
Alexander Petersson byrjaði aftur að spila í vetur eftir að hafa verið hættur í eitt ár. vísir/diego

Hinn 43 ára Alexander Petersson virðist vera meðal þeirra leikmanna sem koma til greina í EM-hóp íslenska handboltalandsliðsins.

Á heimasíðu EHF, Evrópska handknattleikssambandsins, er listi yfir þá leikmenn sem koma til greina í EM-hóp Íslands.

Athygli vekur að Alexander er á listanum en hann verður 44 ára á næsta ári. Hann tók skóna úr hillunni fyrir þetta tímabil og gekk í raðir Vals. Alexander var hins vegar lánaður til Al Arabi í Katar í nóvember.

Nánast engar líkur eru þó á því að Alexander fari með á EM enda íslenska liðið afar vel skipað í stöðu hægri skyttu.

Hópurinn á heimasíðu EHF telur 49 leikmenn en venjulega skila lið 35 manna hópi inn. Á listanum er meðal annars leikmaður sem er hættur, Finnur Ingi Stefánsson, og Guðmundur Guðmundsson er enn skráður þjálfari íslenska liðsins.

Evrópumótið hefst 10. janúar og lýkur 24. janúar. Ísland er í riðli með Ungverjalandi, Serbíu og Svartfjallalandi.

Uppfært 10:30

Stóri íslenski EM-hópurinn, sem telur 35 leikmenn, hefur verið sendur út.

Stóri EM-hópurinn

Markverðir:

  • Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar (84/6)
  • Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg (48/2)
  • Björgvin Páll Gústavsson, Valur (258/21)
  • Daníel Freyr Andrésson, FH (2/0)
  • Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (49/1)

Vinstra horn:

  • Bjarki Már Elísson, Veszprém (105/365)
  • Hákon Daði Styrmisson, Eintracht Hagen (16/26)
  • Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (10/9)
  • Stiven Tobar Valencia, Benfica (6/6)

Vinstri skytta:

  • Andri Már Rúnarsson, Leipzig (0/0)
  • Aron Pálmarsson, FH (168/644)
  • Daníel Þór Ingason, Bailingen Weilstetten (39/11)
  • Einar Bragi Aðalsteinsson, FH (0/0)
  • Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (19/21)
  • Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (66/157)
  • Magnús Óli Magnússon, Valur (16/7)
  • Þorsteinn Leó Gunnarsson, Afturelding (3/1)

Leikstjórnendur:

  • Benedikt Óskarsson, Valur (0/0)
  • Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (2/0)
  • Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (51/113)
  • Haukur Þrastarson, Vive Kielce (23/28)
  • Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (72/114)

Hægri skytta:

  • Arnór Snær Óskarsson, Rhein-Neckar Löwen (0/0)
  • Kristján Örn Kristjánsson, Pays d´Aix (29/60)
  • Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (74/254)
  • Teitur Örn Einarsson, Flensburg-Handewitt (35/36)
  • Viggó Kristjánsson, Leipzig (44/114)

Hægra horn:

  • Alexander Petterson, Valur (186/726)
  • Óðinn Þór Ríkharðsson, Katten Schaffhausen (30/89)
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (63/172)

Línumenn og vörn:

  • Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (85/94)
  • Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (37/68)
  • Sveinn Jóhannsson, GWD Minden (12/24)
  • Tjörvi Týr Gíslason, Valur (0/0)
  • Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (78/35)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×